blaðið - 01.09.2005, Síða 10

blaðið - 01.09.2005, Síða 10
10 I IMNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaðiö Umdeild ákvörð un um pilluna Akvörðun bandaríska matvæla- og lyfja- eftirlitsins um að leyfa ekki sölu á neyð- argetnaðarvarnapillu án lyfseðils þykir umdeild. Susan Wood, háttsettur starfsmað- ur bandaríska matvæla- og lyfja- eftirlitsins, sagði af sér í gær til að mótmæla því að stofnunin hefði hafnað því að leyft yrði að selja neyð- argetnaðarvarnapillu án lyfseðils. Matvæla- og lyfjaeftirlitið frestaði á föstudag ákvörðun um hvort leyfa ætti slíka sölu á pillunni. Eftirlitið sagði að óhætt væri fyrir fullorðið fólk að nota pilluna án samráðs við lækni en unglingar þyrftu enn sem fyrr á lyfseðli að halda og það gæti ekki tekið ákvörðun um hvaða ald- urstakmörk skyldi setja. Var þessi ákvörðun í mótsögn við ráðlegg- ingar ráðgjafa eftirlitsins. „Ég get ekki unnið hér lengur þegar litið er framhjá vísindalegum og iæknis- fræðilegum staðreyndum sem kann- aðar hafa verið til hlítar og fagmenn mæla með“, segir Wood og bætir við að þessi ákvörðun muni hamla enn frekar aðgengi kvenna að vöru sem geti komið í veg fyrir ótímabærar þunganir og dregið úr fóstureyðing- um. ■ Smart í skólann írakskir menn flytja lík konu sem dó i troðningnum við Kadhim moskuna í Bagdad f gær. Ný sending Leðurjakkar Litir: svart - brúnt hvítt - rautt áður 14.990 nú 11.990 M Laugavegi 54, sími 552 5201 Hundruð látast í troðningi í Bagdad -ekki jafnmikið mannfall í einufrá innrásinni 2003 Talið er að allt að 1000 manns hafi farist og rúmlega 300 særst í mikl- um troðningi við Kadhim moskuna í Bagdad í gær. Tildrög harmleiks- ins voru þau að örvænting greip um sig vegna orðróms um að tveir sjálfs- morðssprengjumenn væru í hópi pílagríma sem safnast höfðu saman í tilefni af trúarhátíð sjítamúslíma. Flestir hinna látnu voru konur og börn sem tróðust undir eða drukkn- uðu í ánni Tígris eftir að handrið brúar yfir ána gaf sig. Talið er að um milljón pílagríma úr röðum sjíta-múslima hafi verið við moskuna þegar atvikið átti sér stað og var mikil spenna í lofti þar sem sprengjuárás varð 16 manns að bana og særði 36 í grennd mos- kunnar rúmum tveimur tímum fyrr. Samkvæmt yfirlýsingu sem birt var á vefsíðu sem tengist A1 Kaída sam- tökunum bar hópur súnni-múslima ábyrgð á árásinni. Algengt er að öfga- menn úr röðum súnni-múslima ráð- ist á sjíta-pílagríma. Ekki jafnmikið mannfall í einu frá innrás Að sögn dr. Swadi Karim, talsmanns írakska heilbrigðisráðuneytisins, fórust 769 og 307 særðust í troðn- ingnum. Þó að endanlegar tölur um særða og látna liggi ekki fyrir er ljóst að ekki hefur jafnmikið mann- fall orðið í einu í Irak síðan innrásin á landið hófst í mars 2003. ■ Dalvegur16a 201 Kópavogur Sími 544 4656 Fax 544 4657 mhg@mhg.is otvinnumQnninn í MHG versiuninni Oflugir sláttutraktorar - allt fyrir atvinnumanninn 15 ti118 hestafla í * * Jn n_______________________

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.