blaðið - 01.09.2005, Side 24

blaðið - 01.09.2005, Side 24
Kaffi mánaðarins September - 2005 Costa Rica - Tarrazu San Rafael Costa Rica Tarrazu er af mörgum talið vera eitt besta og eftirsóttasta kaffi heims. Það er þekkt fyrir létt og frísklegt berjabragð og U-Já' unaðslega angan. Kaffið M Tarrazu San Rafael hefur öðlast ákveðinn "r virðingarsess meðal kaffiunnenda og er oft nefnt Burgundi Suður Ameríska kaffisins. Nú á frábæru kynningarverði í öllum verslunum Te og kaffi. 250 gr. -445 kr Kaffihús: Laugavegi 24 Smaralind Verslanir: Kringlunni Smaralind Laugavegi 27 Suðurveri “O" TE ,\ kAFFI 24 I MATUR FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaöið Ber eru hluti haustsins Það er einhver góð tilfinning sem fylgir því að vera úti í náttúrunni og týna ber. Það er jafnt friðsælt og guðdómlegt í senn. Haustið er einmitt tíminn til að týna ber og það er ýmislegt sem hægt er að geravið afraksturinn. Nýverið kom út bókin Ætigarður- inn eftir Hildi Hákonardóttur. Bók- in er titluð sem handbók grasnytj- ungsins enda eru í henni ýmis fræði og fróðleikur um jurtir, ber og móð- ur náttúru. Hildur býr vel því í garði hennar eru sólber, rifsber, reyniber, stikilsber, jarðarber og vínber. Hild- ur viðurkennir þó fúslega að henni finnist leiðinlegt að tína ber en henni þyki aðalbláberin best. „Ég borða þau bara beint, það er best. Ég hugsa að manngerðin komi fram í öllum þegar þeir tína ber. Sumum er sama þó þeir tína ekki svo mikið og vilja gera það. Svo eru aðrir sem vilja koma heim með eins mikið magn og þeir geta. Þetta er bæði manngerðin og hvað maður ætlar að nota berin í og hvað maður hefur mikinn tíma. Ég er ekki dugleg að tína. En ég reyni alltaf að gera rifsberjahlaup og geyma til jóla til að hafa spari“, seg- ir Hildur sem er svo hugulsöm að gefa okkur uppskriftina af rifsberja- hlaupina góða. Hún segir einnig að ef fólk vill ekki setja rotvarnarefni í sultu þá sé hægt að setja fjallagrös í sultuna til að hún endist betur. Þá eru grösin soðin með sultunni. svcmhvit@vbl.is Hildur Hákonardóttir Rifsberjahlaup 1 kg sykur 1 kg ber '/2 bolli vatn Ein stöng vanilla. Hrein berin, stönglar og jafnvel lauf eru soðin í vatninu í 10-15 mínútur, þangað til þau eru sprungin. Þá eru þau síuð frá og sett upp aftur með sykrinum og vanillunni. Froðan er veidd ofan af og soðið í 20 mínútur þang- að til loðir milli fingra en ekíd lengur. Það má reyna að minnka sykurinn og gera tilraunir með ijallagrös sem rotvarnarefni. Frír aögangur í þínum framhaldsskóla að: ordabok.is No kidding! Aðgangur að ordabok.is er frír innan allra framhaldsskóla á landinu og námsfólk getur því notað ordabok.is án endurgjalds, sé það tengt neti skólans. Ensk-íslensk og íslensk-ensk orðabók með samtals 140.000 uppflettiorðum. Þú munt líka vilja nota ordabok.is heima. Sanngjarnar áskriftaleiðir í boði.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.