blaðið - 01.09.2005, Síða 30

blaðið - 01.09.2005, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR FIMMTUDAGUR 1. SPEPTEMBER 2005 blaöiö Rúrikfórá2o,7 milljónir Hinn stórefnilegi leikmaður HK í Kópavogi, Rúrik Gíslason, skrifaði í gær undir samning við enska úr- valsdeildarliðið Charlton Athletic og gildir samningurinn til tveggja ára. Rúrik, sem er aðeins 17 ára, var hjá belgíska liðinu Anderlecth um tíma en kom aftur til að spila með HK í sumar og var þá laus undan samningi við Anderlecht. Samkvæmt breska blaðinu The Formúla i um helgina á Ítalíu Um helgina verður keppt á Ítalíu í Formúla 1 kappakstrinum. Það er hinn frægi Monsa-kappakstur sem er heimavöllur Ferrari-liðsins. Heimamenn vonast eftir betra gengi í mótinu um helgina en í Tyrklandi fyrir hálfum mánuði. Það má búast við nánast alrauðum stúkum við brautina en það er litur Ferrari. Mót hafa verið haldin á Monza síðan 1950 en það var Guiseppe Far- ina á Ferrari sem vann fyrsta mótið. Ferrari er staðsett í hálftíma fjar- lægð frá brautinni og Minardi liðið er enn skemmra frá, í Faenza. Það er mikill munur á ítölsku liðunum tveimur. Ferrari hefur unnið meist- aratitla fimm ár í röð en Minardi hefur ekið í yfir 300 mótum án þess að komast á verðlaunapall. Árið 2003 vann Schumacher sinn fimmtugasta sigur á Ferrari á Monza-brautinni en Rubens Bar- richello vann í fyrra, varð fimm sekúndum á undan Schumacher. Sá síðarnefndi hafði unnið sig upp úr botnsæti eftir að hafa snúið bílnum í fyrsta hring. í ár hefur Ferrari heið- ur að verja á heimavelli á meðan Fernando Alonso á Renault og Kimi Raikkönen á McLaren berjast um titilinn. Ferrari og Schumacher eiga enn tölfræðilega möguleika á titlum en líkurnar eru hverfandi. Jean Todt aðalmaður hjá Ferrari hefur þegar gefið titlana frá sér í fjölmiðlum. Úrslit í Monsa 2004 1. Rubens Barrichello - Ferrari 2. Michael Schumacher - Ferrari 3. Jenson Button - BAR Honda 4. Takuma Sato - BAR Honda 5. Juan Pablo Montoya - bmw wiiiiams Guardian þarf Charlton að punga út um 180.000 sterlingspundum sem er jafnvirði um 20.7 milljóna íslenskra króna. Það telst vera hin ágætasta búbót fyrir Kópavogs- menn sem leika í 1. deild hér heima. Hjá Charlton er Hermann Hreið- arsson einn aðalmaðurinn í liðinu og á vefsíðu Charlton í gær kom fram að Hermann hafi átt drjúgan þátt í að fá Rúrik til Charlton en pilturinn hafi verið mjög eftir- sóttur af mörgum liðum Evrópu. Fjármögnun til kaupa á þessum unga Kópavogspilti kom í gegnum unglingasjóð félagsins sem er meðal annars greitt í af stuðnings- mönnum Charlton. Samningur Rúriks er eins og áður kom fram til tveggja ára og um er að ræða fullgildan atvinnumannasamning. Hanneser farinn til Stoke I gær náðust loks samningar á milli eigenda Islendingaliðsins Stoke City á Englandi og norska liðsins Viking frá Stavangri um íslenska landsliðs- manninn Hannes Þ. Sigurðsson. Stoke og Hannes hafa gert samning til þriggja ára sem gildir frá og með næstu áramótum og forráðamenn Stoke hafa reynt undanfarnar vikur að fá Hannes að láni til áramóta eða þar til samningur hans tekur gildi. Erik Forgaard og félagar hjá Viking hafa til þessa ekki viljað ljá máls á þessu fyrr en Allan Borgvardt gekk til liðs við Viking frá FH. Það setti málið í nýja stöðu og í gær var geng- ið frá lánssamningnum. Þetta þýðir að Hannes Þ. Sigurðsson er tilbúinn í næsta leik með Stoke en hann er þó reyndar meiddur eins og er og getur til dæmis ekki verið með ís- lenska landsliðinu í verkefninu gegn Króatíu og Búlgaríu. Hjá Stoke hitt- ir Hannes íslendinginn Þórð Guð- jónsson sem hefur verið á mála þar að undanförnu en Þórður hefur þó ekki verið í leikmannahópi Stoke City að undanförnu en vonandi verður breyting þar á á allra næstu vikum. ekkert pikknikk í Laugardalnum... ...þess vegna verða allir að mæta! Fylgstu með í Blaðinu og þú gætir farið frítt á völlinn! ísland - Króatía, Laugardalsvelli, 3. september Forsala hafin á ksi.is og esso.is - tryggið ykkur miða tímanlega! BE35SH <R> Laugardaginn 3. september kl. 18dX) maetast landslið íslands og Króatíu á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2006. Markmiðið er að ná toppleik gegn efsta liðinu í riðlinum. Til þess að sigra sterkt lið Króata þurfa strákamir allan þann stuðning sem þeir geta fengið. Áfram ísland! Forsala á Netinu til 1. september. Forsala á völdum ESSO stöðvum 2. september frá kl. 12 Sala á leikdag 3. september Gamla stúka 3.000 kr. 3.000 kr. 3.500 kr. Nýjastúka 2.000 kr. 2.000 kr. 2.500 kr. Athugið að eingöngu verða selcfir miðar í númeruð sæti. Miðar geta selst upp (forsölu. 50% afsláttur fyrir 16 ára og yngri í hvaða saeti sem er. r 30 fyrstu sem koma með afrifuna á Blaðið Bæjarlind 14-16 Kópavogi fá frítt á leikinn blaðiðu Njarðvík hætt- irviðkeppni Stjórn körfuknattleikssambands Islands barst í morgun tilkynning frá körfuknattleiksdeild Njarðvík- ur um að félagið hafi ákveðið að draga kvennalið Njarðvíkur í 1. deild úr keppni á íslandsmótinu í vetur. Eins og segir í tilkynning- unni er ákvörðunin óumflýjanleg. Stjórn Körfuknattleikssambands Islands ákvað í kjölfar alls þessa að bjóða KR sæti Njarðvíkur og hefur stjórn KR þekkst það boð. Mótanefnd KKl harmar þetta brotthvarf Njarðvíkur úr kvenna- körfuboltanum en vonar um leið að félagið geti fljótlega teflt fram kvennaliði í körfunni á ný. Tvær breytingar á U 21 árs liðinu Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálf- ari undir 21 árs landsliðs karla í knattspyrnu, hefur þurft að gera tvær breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Króatíu á morgun. Bjarni Þórður Halldórsson, mark- vörður Fylkis, er meiddur og leikur ekki knattspyrnu næstu daga og jafnvel vikur og þá er Viktor Bjarki Arnarsson leikmaður Fylkis einnig meiddur. I þeirra stað koma Magn- ús Þormar, varamarkvörður Keflav- íkurliðsins, og Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Fylkis. Það er nokkuð áfall fyrir landsliðið að Bjarni Þórð- ur geti ekki leikið með í leiknum gegn Króötum. Þegar liðin mættust i Króatíu í marsmánuði á þessu ári unnu Króatar með tveimur mörkum gegn einu í mjög jöfnum og spennandi leik þar sem meðal annars var dæmt löglegt mark af íslenska liðinu. ísland er i fjórða sæti riðils síns f undankeppni Evrópumótsins með 7 stig. Island hefur unnið tvo leiki, gert eitt jafntefli og tapað fjórum leikjum. Króatar eru í efsta sæti með 15 stig og hafa aðeins tapað einum leik. Leikurinn á morgun fer fram á KR- vellinum og hefst klukkan 17.00. Reykjavíkurmótið í körfubolta hefstí kvöld Undirbúningstímabil körfu- boltamanna er nú byrjaðir og í kvöld verður flautað til leiks á Reykjavíkurmótinu í körfuknatt- leik i karlaflokki. I karlaflokki eru lið KR, Vals, ÍR, ÍS og Fjölnis skráð til leiks. Fyrstu tveir leikirnir fara fram í kvöld. KR og Valur mætast í DHL-höll þeirra KR-inga og ÍR leikur gegn ÍS f Seljaskóla. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15. Næstu leikir eru eftir viku en Reykja- víkurmótinu í karlaflokki lýkur svo 29. september. I kvenna- flokki hefst mótið 12. septemb- er og lýkur 26. september.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.