blaðið - 01.09.2005, Side 32
32 I MENMING
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Dansað fram
ásunnudag
fengið viðurkenningu sem bylting-
arkenndur leikstjóri. Hann er með
fýsískt leiksóló á föstudagskvöldið
Wake Up Hate. Sama kvöld er verk-
ið Crystall sýnt en það er eftir Alice
Chauchat og Alix Eynaudi. Ég hef
ekki séð það verk en hef séð myndir
af því og lesið um það og það virðist
vera afar sjónrænt og fallegt. Fred
Gehrig sýnir sólóverk sitt Im Panzer
í kvöld, fimmtudagskvöld. Gerich
hefur einnig samið verkið Who is
the Horse ásamt Nadiu K. Banine
sem sýnt verður á sunnudagskvöld.
Játningar minnisleysingjans er
verk eftir Jóhann Freyr Björgvins-
son. Hann sýndi það í Kling og Bank
í vor en er búinn að betrumbæta og
laga og sýnir í annað sinn. Verkið er
samstarfsverkefni hans og íslenska
dansflokksins.
Ólöf Ingólfsdóttir hefur samið
verk fyrir börn sem heitir Heima er
best og hún dansar í þvi sjálf ásamt
tveimur öðrum dönsurum. Camer-
on Corbett hefur samið sólóverkið
Postcards from Home sem hann
dansar sjálfur í. Ungur íslenskur
höfundur, Steinunn Ketilsdóttir,
nýútskrifuð frá New York, sýnir síð-
an verkið Love Story á sunnudags-
kvöld.
No, he was white er þróunarverk-
efni eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur,
Margréti Söru Guðjónsdóttur, Anne
Tismer og Rahel Savoldelli. Þetta er
leikhúsverk með dansívafi og sýnir
það sem verið er að gera í Evrópu í
dag. Lokið verður við verkið í vetur
og þá verður það sýnt í Berlín og von-
andi víðar.
Það eru afar fjölbreytt verk á efnis-
skránni og sem flestir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi,“ segir Ástrós
Gunnarsdóttir. ■
Wý afsteypa
eftir Ásmund
Sveinsson
Listasafn Reykjavíkur hefur bætt
nýjum dýrgrip í afsteypusafn Ás-
mundar Sveinssonar. Um er að ræða
höggmyndina Vetur, sem Ásmund-
ur gerði árið 1940. Vetur er hér sýnd-
ur í líki krjúpandi konu, en í þeim
verkum þar sem myndefnið er sjálf
náttúran samsamaði listamaður-
inn iðulega viðfangsefnið konunni.
Þannig myndgerði hann árið 1940
árstíðirnar fjórar sem konur, sem
hver um sig túlkar vetur, sumar, vor
og haust með látbragði sínu.
Afsteypan er gerð í 150 númeruð-
um eintökum og ekki fyrirsjáanlegt
að fleiri eintök verði gerð. Þegar
hafa verið gerðar afsteypur af Vori
og Hausti en öll eintökin eru upp-
seld. 1 byrjun næsta árs mun Lista-
safn Reykjavíkur gera afsteypu af
Sumrinu sem einnig verður fáanleg
í verslunum safnsins.
Hæð afsteypunnar af Vetri er 35
cm og kostar hún kr. 40.000,- Hún
er fáanleg í öllum safnverslunum
Listasafns Reykjavíkur; í Ásmund-
arsafni, Hafnarhúsi og á Kjarvals-
stöðum.
Danshátíðin Reykjavík Dance Festi-
val verður haldin í fjórða sinn dag-
ana 1. - 4. september í Borgarleik-
húsinu og í Regnboganum verða
sýnd vídeóverk. „Þessi árlega hátíð
er orðin stórt og viðamikið verkefni,"
segir Ástrós Gunnarsdóttir einn af
aðstandendum hátíðarinnar. „I ár
sýnum við tíu verk, átta sviðsverk
og tvö vídeóverk. Þrjú verk koma
erlendis frá og þar eru spennandi
listmenn á ferð.
Portúgalinn Paulo Castro hefur
-
.. m
o Afnot af Suzuki Swift
heilt ár.
o Medion Black Dragon
\ fartölvur frá BT.
ol-podfrá Apple
búðinni
0 25.000.- kr úttektí
Office one
oNuddtæki frá Heilsu-
húsinu
oGjafakarfa frá Osta
og Smjörsölunni
o Árs Áskrift að
Skólavefnum
Klipptu út seðilinn hér að neðan og sendu okkur hann
(Blaðið, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur) eða sendu okkur tölvupóst
(með nafni kennitölu og símanúmeri) á netfangið skoli®vbl.is
Dregið úr innsendum svörum á mánudögum
Ath. Þú mátt taka þátt eins oft og þú vilt, því fleiri innsendir seðlar, þeim mun meiri vinningslíkur
Þátttökuseðili
Fyrirsogn:
Fullt nafn:
Kennitala:
Simi:
blaóieu
Sendist á - Blaöið, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
iðhelsuhúsið
kolavefurinnjs
25.000,-
Qílicelsuperstote