blaðið - 13.09.2005, Side 2
2 I INNLENDAR FRÉTTXR
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 blaóiö
Mál gegn olíu-
félögunum
þingfest
Gceti gefið fordœmi
í dag verður þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur mál
Neytendasamtakanna gegn
olíufélögunum. Að sögn Jóhann-
esar Gunnarssonar, formanns
Neytendasamtakanna, er um
að ræða skaðabótakröfu vegna
þess tjóns sem viðskiptavin-
ur varð fyrir vegna ólöglegs
verðsamráðs. Jóhannes segir
málið vera mjög merkilegt að
því leyti að þetta sé í fyrsta sinn,
að minnsta kosti í Evrópu, sem
slíkt mál sé höfðað. „Þetta er
merkilegt prófmál og gæti að
sjálfsögðu verið fordæmisgef-
andi ef málið vinnst. Þá geta
neytendur sótt það tjón sem
fyrirtæki valda þeim með ólög-
mætu verðsamráði", segir Jó-
hannes sem kveðst hvorki vera
svartsýnn né bjartsýnn á að
málið vinnist. „Réttlætiskennd
min segir mér að við eigum að
vinna þetta mál en það er ekki
þar með sagt að það vinnist“,
segir Jóhannes Gunnarsson.
Skaðabótamál Neytendasam-
takanna gegn olíufélögunum er
prófmál og gæti gefið fordæmi ef
það vinnst.
Simtöl til útlanda á 5 krónur
íslendingar eyða hátt í tveimur milljörðum í símtöl til útlanda á
ári. Ný tæknifrá Hive mun lækka þennan kostnað verulega
Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri Hive
I dag hleypir Hive af stokkunum
nýrri þjónustu, netsíma. Hér er um
að ræða tækni sem gefur öllum við-
skiptavinum Hive kost á að hringja
hvert sem er í heiminum í gegnum
heimilistölvuna, í hvaða síma sem
er, á hvaða tíma sem er. Þess ber
að geta að Sigurður G. Guðjónsson
stjórnarformaður Blaðsins er á með-
al hluthafa í Hive. Kostnaður við að
hringja til 30 helstu viðskiptalanda
byltingu en grófléga má áætla að
heildarkostnaður við útlandasím-
töl slagi hátt í 2 milljarða á einu ári.
Það er því ljóst að landsmenn geti
sparað sér fleiri hundruð milljón-
ir á ári nýti þeir sér þjónustu Hive.
90% allra símtala til útlanda eru til
þessara 30 landa sem Hive skilgrein-
ir sem helstu viðskiptalönd Islands.“
Búbót fyrir íslendinga erlendis
fslands mun verða 5 krónur á mín- Viðskiptavinir Hive sækja sér forrit-
útuna en til þessa hefur fólk verið ið ókeypis á heimasíðu Hive og síðan
að greiða um 16 krónur fyrir ódýr-
ustu símtöl til þessara landa. „Við
hjá Hive erum enn einu sinni að
færa ísland nær umheiminum með
því að bjóða útlandasímtöl á innan-
landsverði og síðustu múrarnir í
kringum landið eru að falla,“ segir
Arnþór Halldórsson framkvæmda-
stjóri Hive: „Þetta boðar klárlega
greiða þeir aðeins fyrir notkunina.
Þeir sem staddir eru í útlöndum og
hafa netsíma Hive í tölvunni sinni
greiða 2 krónur og 90 aura á mín-
útu fyrir símtal til Islands. „Þetta
opnar til dæmis möguleikann á því
að námsmenn erlendis geti hringt
heim á þessum kjörum og sama má
segja um menn í viðskiptaerindum.“
Símtöl innanlands munu einnig
kosta 2 krónur og 90 aura, en Hive
er í viðræðum við Símann um sam-
tengingu á kerfum fyrirtækjanna
sem gæfi Hive kost á að bjóða sam-
keppnishæf verð á símtölum innan-
lands. Arnþór segir þau mál skýrast
á næstu vikum. Aðspurður um gæði
símtalanna segir Arnþór þau fylli-
lega sambærileg við almenna síma
þar sem Hive. ræður yfir eigin sæ-
strengjum til Evrópu og Bandaríkj-
anna og lætur því viðskiptavini net-
símans njóta forgangs. „Við leggjum
mikla áherslu á að hafa þetta einfalt
fyrst í stað á meðan að landsmenn
kynnast tækninni, en í framtíðinni
verða fleiri möguleikar í boði og það
er margt að gerjast í þessum málum
sem kynntir verða á næstunni." ■
Landssíminn
ekki með
einkarétt
Landssími Islands hefur ekki
einkarétt til að dreifa Enska
boltanum á fjarskiptakerfum
fyrirtækisins samkvæmt bráða-
birgðaákvörðun Samkeppnis-
eftirlitsins. íslenska sjónvarps-
félagið (ÍS) neitaði að afhenda
fyrirtækjunum Tengi og Island-
smiðli sjónvarpsdagskrá Enska
boltans á þeirri forsendu einni
að Landssíminn hefði einka-
rétt á þessari dreifingu. Þar
sem ÍS byggir enn á þessum
einkarétti telur Samkeppniseft-
irlitið verulega hættu á því að
félagið haldi áfram að hafna
beiðnum um afhendingu sjón-
varpsmerkja á þessum grunni.
Telur Samkeppniseftirlitið enn
fremur að það geti haft veru-
lega skaðleg áhrif á samkeppni
ef ákvörðun samkeppnisráðs
um skilyrði fyrir kaupum
Landssímans á ÍS nær ekki
fram að ganga að öllu leyti.
Baugsmál
þingfest
1 dag verður mál ríkisins á hend-
ur stjórnenda Baugs þingfest í
Héraðsdómi. Þá munu verjend-
ur hinna ákærðu sem og ákæru-
valdið fá tækifæri til þess að tjá
sig um ákærurnar og bréf það
sem dómendur sendu málsaðil-
um og fjallað hefur verið um í
fréttum síðustu viku. Þar segir
að svo illa hafi verið staðið að
sumum ákæruliðunum að marg-
ar þeirra standi ekki fyrir rétti.
Gler augnaverslunin
Si ónar hÓl 1
'i;
stærri verslun
meira úrval
frábær tilboð
fíeykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði S.565-5970
www.sjonarholl.is
Undirfatnaður
fyrir allar konur
Vorum að taka upp
nýjar vörur frá
LoMjrruC
Frábær verð og gæði.
Persónuleg þjónusta
Hamraborg 7, Kópavogi
Sími 5444088
www.ynja.is
Samningar milli símafélags og Neyðarlínunnar vantar
Björgunarstarf tafðist
Blaðið hefur heimildir fyrir því að
björgunarstörf á Viðeyjarsundi síð-
astliðna föstudagsnótt hafi reynst
tafsamari en ella þar sem ekki
reyndist unnt að fá nákvæma stað-
setningu á slysstað. Tilkynning um
slysið barst um GSM síma, en tækni-
lega er mögulegt að staðsetja slík
símtæki með nokkurri nákvæmni.
Símtöl til Neyðarlínunnar sem ber-
ast um GSM símkerfi Símans eru
þannig staðsett en hið sama á ekki
við um Og Vodafone. Síminn sem
hringt var úr í Neyðarlínuna nótt-
ina örlagaríku var einmitt í því kerfi.
Samkvæmt heimildum Blaðsins er
þetta ekki í fyrsta skipti sem þessar
upplýsingar vantar.
Ekki haft samband
Dóra SifTynes, lögfræðingur Og Vod-
afone, segir að ekki hafi verið reynt
að hafa samband við bakvakt félags-
ins á aðfararnótt laugardagsins sem
gefur lögreglu staðsetningu GSM
síma þegar óskað er eftir upplýsing-
unum. „Síminn er með sérstakt kerfi
sem þeir tengja við Neyðarlínuna og
gefur þessar upplýsingar. Þeir hafa
ekki viljað hleypa okkur inn á það
kerfi og í raun liggur vandamálið
þar. Þetta snýst um kerfi sem Sím-
inn á og rekur og þá skilmála sem
eru á aðgangi að því kerfi." Dóra Sif
hefur ennfremur eftir tæknimönn-
um Og Vodafone að staðsetning á
símtalinu til Neyðarlínunnar hefði
ekki stytt tímann sem tók að finna
slysstað sökum þess um hversu stórt
svæði var að ræða.
o Heiðskírt Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað
i
Rigning, lítilsháttar /'/s Rignlng 9 9 Súld Snjókoma
' 9
*
jj Slydda Snjóél ^
Skúr
Amsterdam 19
Barcelona 25
Berlín 18
Chicago 22
Frankfurt 20
Hamborg 17
Helsinki 13
Kaupmannahöfn 18
London 20
Madrid 23
Mallorka 25
Montreal 22
New York 21
Orlando 24
Osló 14
París 23
Stokkhólmur 14
Þórshöfn 13
Vín 20
Algarve 25
Dublin 18
Glasgow 16
///
///
///
/ x
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
7° / /
P
/ /
/ /
?1ÖV0
Á morgun
4' ^
t 0 /; 5°