blaðið - 13.09.2005, Side 6

blaðið - 13.09.2005, Side 6
6 I XNNLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 blaöiö Myndlistarsýning: Bjarni Bern- harður sýnir á Mokka Tíu þúsund útlending- ar við störf hér á landi íslenskfyrirtœki þurfa œ oftar að sœkja á erlendan markað í leit að vinnuafli. Um 10% starfsmanna stóru byggingarfélaganna um þess- ar mundir eru útlendingar. Listamaðurinn við eitt verka sinna á Mokka. Bjarni Bernharður, málari og skáld, heldur nú sína fjórðu einkasýningu á Kaffi Mokka við Skólavörðustíg. Bjarni er landskunnur listamaður, sem selur ljóðabækur sínar á götum úti, gjarnan á horni Austurstræt- is og Pósthússtrætis, en hann hefur gefið út íjórar bækur á undanförnum þremur árum. Á sýningunni getur að líta nýjustu málverk Bjarna og hef- ur hann einnig bækurnar sínar til sölu. Bjarni er sjálfmennt- aður í málaralistinni og hefur þróað sinn eigin stíl. Sýningin stendur yfir til 5. október. ■ Gera má ráð fyrir að um tíu þúsund útlendingar vinni nú hér á landi að sögn Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar. „Við höfum nákvæmar tölur yfir þá sem fá atvinnuleyfi, svokallaða þriðjuríkisborgara. En það er ekki eins vel haldið utan um upplýsing- ar um þá sem koma frá Evrópu og Norðurlöndunum sem er náttúru- lega mjög stór hluti af erlendu vinnu- afli.“ Langflestir koma frá Póllandi en næststærsti hópurinn kemur frá Suð-Austur Asíu. Nauðsynlegt vinnuafl „Það gengur erfiðlega að bæta við mönnum þar sem það er mikil eftir- spurn eftir vinnuafli og náttúrulega mörg verkefni í gangi og víða. Ef við eigum að geta staðið skil á því sem að við höfum tekið að okkur þá er þetta ein af leiðunum til þess að bæta við okkur fólki“, segir Páll Daníel Sigurðsson, sviðsstjóri fram- kvæmdasviðs Eyktar. Hann segir það skipta miklu máli fyrir félagið að hafa greiðan aðgang að erlendu vinnuafli eins og atvinnuástandið er. Sömu sögu var að heyra hjá öðr- um byggingarfélögum. „Það er ekki til íslenskt vinnuafl", segir Árni Ingi Stefánsson, starfsmannastjóri íslenskra aðalverktaka. „Við aug- lýstum laus störf í síðustu viku og það svaraði einn maður auglýsing- unni. Þess vegna skiptir okkur öllu máli að eiga auðvelt með að fá erlent starfsfólk til okkar. Við gætum ekki verið að framkvæma það sem við erum að gera ef við hefðum ekki að- gang að erlendu vinnuafli." Nýtt verklag flýtir afgreiðslu Forsvarsmenn byggingarfélaganna fagna fyrirhuguðu nýju verklagi hjá Vinnumálastofnun sem kemur til með að auðvelda og flýta fyrir af- greiðslu á atvinnuleyfum fyrir fólk frá hinum nýju löndum EES. „Þetta er gert til þess að reyna að kveða nið- ur þróun sem hefur verið í svokölluð- umþjónustusamningum. Þeirliggja oft á mörkum þess að vera löglegir miðað við íslensk vinnumarkaðslög. Síðan erum við líka að gera atvinnu- lífinu kleift að fá til sín vinnuafl þeg- ar þörfin er svona mikil eins og raun ber vitni á ekki lengri tíma“, segir forstjóri stofnunarinnar. „Pappírsvinnsla hefur tekið lang- an tíma en nú á að stytta þann tíma og við tökum því náttúrulega fagn- andi“, segir Árni Ingi hjá ÍAV. „Þetta tekur tíma, en það þarf reyndar ekk- ert að vera óeðlilegt", segir Páll Daní- el frá Eykt sem tekur breytingunum fagnandi. ■ Úrskurðarnefnd lögð niður Samgönguráðherra hefur lagt til að Úrskurðarnefnd um póst- og fjarskiptamál verði lögð niður. Þykir einfaldara að samgönguráðuneytið úrskurði í ágreiningsmálum um ákvarðan- ir Póst- og íjarskiptastofnunar. Samkvæmt lögum er heimilt að kæra ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar til úrskurð- arnefndarinnar. Sá sem á verulegra hagsmuna að gæta getur kært hvort heldur er máls- meðferð eða efni ákvörðunar. ■ Davíð í Japan Davið Oddson utanríkisráð- herra er staddur í Japan þar sem hann fer fyrir íslenskri viðskiptanefnd. í gær skoðaði hann heimssýninguna í Aichi og í dag fundar hann með japanska utanríkisráðherr- anum Nobutaka Machimura. Á morgun mun hann taka þátt í viðskiptaráðstefnu þar sem islensk fyrirtæki munu kynna starfsemi sína. ■ Sjávarútvegssýningunni lokið Marorka með bestu nýju vöruna Fljótlegt að koma við og taka með sér rétti Græna línan, Baejarhravmi 4, S: 565-2075 íslensku sjávarútvegssýningunni lauk á laugardaginn var. Fjöldi gesta var ívið meiri en árið 2002. Aukning var sérstaklega á meðal erlendra gesta. Á sýningarhófi sem haldið var á Broadway á föstudagskvöldið voru fern verðlaun veitt. Þar var um að ræða verðlaun fyrir bestu básana og verðlaun fyrir bestu nýju fram- leiðsluvöruna. Marorka með bestu nýju vöruna Marorka fékk verðlaun fyrir bestu nýju framleiðsluvöruna, en þar er um að ræða nýja útgáfu af orku- stjórnunarkerfi fyrirtækisins sem hlotið hefur heitið Maren 2. Krist- inn Aspelund sölu- og markaðstjóri segir það mikinn heiður að fá þessi verðlaun og þau hvetji fvritækið til enn betri verka. Halldór Asgrímsson forsætisráðherra afhjúpaði kerfið Empower ( s i i£mpowf Empower Vourself to Se Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Marorku kynnir forsætisráðherra fyrir Mar- en 2. á miðvikudaginn var. Kerfið er hið eina sinnar tegundar í heiminum og fellst sérstaða þess í flóknum aðferð- um sem notaðar eru til þess að lág- marka orkunotkun skipa. Fyrri út- gáfur kerfisins hafa verið settar upp í nokkrum skipum með góðum ár- angri og binda Marorkumenn mikl- ar vonir við nýju útgáfuna. Stærsta verk sem Marorka hefur komið að til þessa er uppsetning Maren kerf- is um borð i kanadísku kúfiskveiði- skipi sem verið er að smíða í Taivan um þessar mundir. Olís með besta básinn Bás Olís vakti mikla athygli á sýn- ingunni, enda kom á daginn að fyr- irtækið fékk verðlaun fyrir besta einstaka básinn yfir 40 fermetrum. Olís menn höfðu hannað bás sinn eins og skipsbrú og lögðu margir leið sína í brúna á MB Héðni Valdi- marssyni RE 1927 á meðan á sýning- unni stóð. Matvælafyirtækið Katla fékk verðlaun fyrir besta básinn undir 40 fermetrum og besti básinn sem fleiri en einn aðili standa að var valinn bás færeyskra fyrirtækja. ■ Pevsur í miku úrvali Nýfoýlavegi 12 • 200 Kópavogl Sími 551 4433 Opnunartími mán - föst. 10-18 laugardaga 10-16

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.