blaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 16
16 IHÖNNUN
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005 Uaöiö
2S
SmHRHV} BÍÓ
REGHBOGinH
FYRSTI HLUTINN í EPÍSKUM FANTA5IU PHiLtitv
[MPCHKOI riniZDWl
FRUMSÝND 1 B • Q9
ALDREI HEFUR ANNAÐ EINS SÉST í BÍÓ HÉRLENDIS ÁÐUR!
- MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
“NIGHT WATCH IS F***ING 0001!“
•TARANTINO
Philippe Starck
Verner Panton
Verner Panton fæddist árið 1926 en dó
árið 1998 og er talinn vera einn af
áhrifamestu húsgagna- og innanhúss-
hönnuðum í Danmörku á tuttugustu öldinni.
Hönnun hans var nýjungagjörn úr alls kyns
efnum, sérstaklega plasti, og litríkum litum
enda með mikla framtíðarsýn. Stíll Verners
var frá sjötta áratugnum en vörur hans urðu
vinsælar aftur á síðasta ári og þekktustu hús-
gögn hans eru enn í framleiðslu.
Bjóðum ávallt hagstæðustu verðin. Útvegum alla bíla frá USA.
örugg þjónusta hjá löggiltum bifreiðasala. 11 ára reynsia.
Uppl. í s. 897-9227 sjá nánar á www.is-band.is
ATH 2 til 5 ára Abyrgð
hilippe Starck var fæddur í París 18. janúar 1949 og er hann einn
þekktasti nútímahönnuður í heimi. Hann hefur ekki aðeins hlot-
ið almennar viðurkenningar fyrir innanhússhönnun sína heldur
hefur hann líka reynst vera vinsæll arkitekt og vöruhönnuður.
Mikið af vörum hans hafa verið fjöldaframleiddar eins og
tannburstar og stólar. Starck hefur unnið sjálfstætt sem
innanhúss- og vöruhönnuður síðan árið 1975 og hef-
ur á þeim tíma skapað fjöldann allan af tiltölulega
ódýrri hönnun fyrir ameríska smásölumarkaðinn.
Ólíkt öðrum hönnuðum einbeitir Starck sér ekki
að þvi að skapa ögrandi og dýra hönnun. Þess í
stað einblínir hann á hluti sem fara inn á hvert
heimili og eru fjöldaframleidd. Framleiðni Starck
er oftar en ekki stílfærð og hagkvæm í útliti. Starck
er einnig þekktur fyrir að nota óvenjulega blöndu
efna eins og gler og stein og plast og ál. Nútíminn og
tíska hafa áhrif á flest verka hans og hefur stundum
verið sagt að þau séu of mikið hönnuð. Starck hefur lát-
ið hafa eftir sér að heiðarleiki eigi að vera kjarni hönn-
unar. Vörur ættu ekki að vera hannaðar með það í huga
að endast aðeins svo lengi sem þau eru í tísku heldur
ættu þau að hafa endingar- og notagildi. Hann trúir
því staðfast að hönnuðir eiga að vera heiðarlegir og
hlutlægir.
Alvar Alto
Alvar Alto fæddist í Finnlandi árið 1898
og lést þar árið 1976. Innblástur Alto var
finnska náttúran og form hennar sem
gerðu verk hans óhefðbundin og takmarkalaus.
Fyrri verk hans einkenndust af neo-klassísku
hreyfingunni en í eldri verkum hans má sjá
fúnksjónisma og mannlegan stíl sem hann nýtti
vð hönnun bókasafna, kirkna og fleira. Alvar
hannaði til að mynda Norræna húsið og er því
Islendingum vel kunnugur. Alvar hafði gott vald
á formi og skipulagningu og hannaði því einkar
notendavænar byggingar. Manneskjan og náttúr-
an voru grunnelement í hönnun Alto og ástríða
hans fyrir formum gaf hönnun hans hlýju og nánd.
Stiklað
á stóru
- Fjórir þekktir hönnuðir skoðaðir nánar
Ut um allan heim eru hönnuðir að vinna verk sín, svo við hin getum
fyllt heimili okkar af fallegum hlutum. Hlutum sem jafnvel flokkast
undir listaverk. Ljóst er að ef hönnuður er orðinn frægur þá eru verk
hans þeim mun dýrari en kannski má líka segja að þau séu þeim mun vand-
aðri. Hér verður minnst á fjóra fræga hönnuði en verk þeirra má án efa finna
á mörgum íslenskum heimilum.
svanhvit@vbl.is
Eero Aarnio
Eero Aarnio fæddist árið 1932 í
Finnlandi og er þekktur fyrir
nýjungagjarna innanhúss-
hönnun sína og þá sérstaklega
plast- og trefjaglersstóla sína.
Þekktasta hönnun Eero er
einmitt „Ball Chair“ sem
lítur út eins og opin kúla á
standi. Stóllinn var fram-
leiddur í kringum 1963
og efnið og stíllinn var
algert nýjung á þessum
tíma. Eero hefur
unnið með hefðbi
efni eins og við og stál á sín-
um langa ferli en stíll hans ein-
kennist af öðruvísi formum og
litríkum vörum sem margar hverjar
eru framleiddar úr plasti.
:inmg