blaðið - 13.09.2005, Blaðsíða 24
32 I MENNING
ÞRIÐJUDAGURINN 13. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Góð bókasala á
Bókmenntahátíð
Bókmenntahátíð í Reykjavík er í
fullum gangi. Bækur hinna erlendu
gesta eru til sölu í stærstu bókabúðum
landsins og salan gengur vel að sögn
Óttarrs Proppe, vörustjóra erlendra
bóka í Pennanum-Eymundsson. „Sal-
an hófst um leið og byrjað var að stilla
bókunum upp,“ segir Ottarr. „Það eru
ákveðnir höfundar sem fólk kveikir á
enda hafa þeir verið í umfjölluninni.
Rússinn Andrej Kurkov er skemmti-
legur höfundur og íslenska þýðingin á
Dauðinn og mörgæsin hefur orðið til
þess að fólk vill lesa aðrar bækur hans.
James Meek er að taka við sér og svo
eru menn að rifja upp bækur höfunda
sem hafa notið vinsælda eins og Paul
Auster og Margaret Atwood.”
Bækur erlendu höfundanna eru
seldar í Norræna húsinu og Iðnó og
höfundarnir hafa áritað eftir upp-
lestra sína og spjall á þeim stöðum.
Til dæmis var biðröð hjá Margaret At-
wood þegar hún gaf kost á áritun.
Þátttökuseöill
Fyrirsögn
Kennitala
Sími: -----------------------------
Sendist á - Blaðið, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
kolavefurinn
iilsuhúsið
v O Afnot af Suzuki Swift i
12) heiltár.
o Medion Black Dragon
fartölvur frá BT.
'2 o |-pod frá Apple
< búðinni
o 25.000.- kr úttekt í
jg Office one
oNuddtækifrá Heilsu-
húsinu
oGjafakarfa frá Osta
■j og Smjörsölunni
2 ° Árs Áskrift að
Skólavefnum
Klipptu út seðilinn hér að neðan og sendu okkur hann
(Blaðið, Bæjarlind 14 - 16, 201 Kópavogur) eða sendu okkur tölvupóst
(með nafni kennitölu og símanúmeri) á netfangið skoli@vbl.is
Dregið úr innsendum svörum á mánudögum
Ath. Þú mátt taka þátt eins oft og þú vilt, því fleiri innsendir seðlar, þeim mun meiri vinningslíkur
blaóió
Ollicelsuperstore
r
— # iMlfl
Brotúr
skáldsögu
Plath kemur
i leitirnar
Blaðsíður og minnispunktar úr
óbirtri skáldsögu eftir Sylviu Plath
komu nýlega í leitirnar. Þar er sögð
saga bandarískrar stúlku sem flytur
til London til að finna sjálfa sig og
giftist elskhuga sínum sem er skáld.
Nokkrir hlutar sögunnar eru vélritað-
ir en aðrir eru handskrifaðir af Sylvíu
á bakhlið pappíra Teds Hughes, eigin-
manns skáldkonunnar.
Sérfræðingar höfðu talið að bókin
hefði verið brennd eða aldrei verið til.
Verkið ber titilinn Falcon Yard, sem er
staðurinn i Cambridge þar sem Plath
hitti Hughes. Hún vann að bókinni á
árunum 1957-1959 og hún átti að enda
með giftingu aðalpersónanna.
Kaflarnir úr skáldsögunni fundust
í skjölum Ted Hughes. Plath framdi
sjálfsmorð árið 1963 eftir að eiginmað-
ur hennar hafði yfirgefið hana vegna
annarrar konu. m
Kalli og sæl-
gætisgerðin
Hjá Máli og menningu er komin aft-
ur út hin vinsæla bók Roalds Dahl,
Kalli og sælgætisgerðin, í þýðingu
Böðvars Guðmundssonar.
Villi Wonka er besti og frumleg-
asti sælgætisframleiðandi í heimi.
Um það eru allir sammála. En ým-
islegt er dularfullt við Villa og verk-
smiðjuna hans. Þess vegna verður
uppi fótur og fit þegar han lýsir því
yfir að fimm heppin börn fái að
skoða sælgætisgerðina hans. Eins
og öll börn í landinu langar Kalla að
vera i þeim hópi en samt veit hann
ekki hversu ótrúlegt ævintýri hann
á í vændum.
Kalli og sælgætisgerðin sló strax i
gegn þegar hún kom út og er löngu
orðin sígild, enda er hún bráðfynd-
in og frumleg.