blaðið - 13.09.2005, Page 29
blaóiö ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2005
DAGSKRÁ I 37
■ Fjölmiðlar
BEINT í BÍLINN
FJÓRIR STAOIR: FELLSMÚLI, SKÚLAGATA, MJÓOD, DAROABÆR
Ríkisútvarp-
ið og íslensk
tunga
Ríkisútvarpið skal lögum sam-
kvæmt leggja rækt við íslenska
tungu. Lögin segja ekkert um það
hvernig þetta skuli gert og víst er
það svo að íslenskan sem töluð er i
miðlum Ríkisútvarpsins er hvorki
betri né verri en sú íslenska sem
almennt er notuð í öðrum fjölmiðl-
um hér á landi. Að vísu er það svo
að sumir starfsmenn Ríkisútvarps-
ins virðast telja það betri islensku
að tala um stundarfjórðunga í stað
korters. Hver kannast ekki við það
þegar þulir þess segja að klukkuna
vanti stundarfjórðung í eitt eða sé
stundarfjórðung gengin í tvö. Fjöl-
miðlun byggist m.a. á frásögnum,
umræðum, samræðum og viðtölum.
Runólfur Ágústsson rektor Bifr-
astar háskólans var t.d. í Kastljósi
Ríkissjónvarpsins á dögunum og
sagði þá m.a. að þegar að starfi hans
á Bifröst lyki ætti hann rétt á að fara
erlendis. Áuðvitað fer enginn erlend-
is heldur dvelja menn erlendis eftir
að þeir hafa farið utan. Þannig hef-
ur það líka alltaf verið og það ættu
Borgfirðingar að vita þekki þeir rit
og sögu Snorra Sturlusonar sem bjó
í Reykholti í eina tíð.
Ríkisútvarpið reynir stundum
að vera hip og kúl. Viðleitni í þá átt
er að finna í útvarpsþættinum Ung-
mennafélaginu á Rás tvö, sem Páll
Magnússon hlýtur að losa sig við
um leið og færi gefst, enda þarf rik-
ið ekki að reka dægurtónlistarrás í
samkeppni við einkaaðila.
Á dögunum var fjallað um kvik-
myndina Strákana okkar í þættin-
um. Einhver hafði verið sendur á
sýningu kvikmyndarinnar og sagði
álit sitt á henni í Ungmennafélag-
inu. Mæltist honum þá eitthvað á
þá leið að Óttar aðalpersóna mynd-
arinnar væri leikin af Björn Hlynur.
Auðvitað er aðalpersónan leikin af
Birni Hlyni. Og myndin er auk þess
skemmtileg og vekur spurningar.
Þegar ég heyrði þessa beygingu
á orðunum Björn Hlynur, rifjaðist
upp fyrir mér að í eldgamladaga þeg-
ar ríkið hafði eitt rétt til sjónvarps
og útvarps var viðtal við Matthías Á.
Mathiesen, sem þá var fjármálaráð-
herra. Þegar hann var spurður út í
einhver fjármál og skort á fé til ein-
hverra framkvæmda, svaraði hann
að hann vissi ekki hverning ætti að
afla fésins. Eftir það var Matthías Á.
oft kallaður manna á meðal fésmála-
ráðherra. Vonandi kann sonur hans
Árni Mathiesen, sem brátt verður
fjármálaráðherra að beygja orðið fé
og verður því fjármálaráðherra en
ekki fésmálaráðherra þegar hann
fylgir fjárlagafrumvarpi sínu úr
hlaði í haust. Þá ríður á að kunna að
beygja orðið fé um fé frá fé til fjár.
siggi@vbl.is
21:00-23:00 23:00-00:00 00:00-6:00
21.05 Leiftriö bjarta (1:2) Heimildamynd í tveimur hlutum um Iffshlaup og verkJóhanns Sigurjónssonar skálds. BaldurTrausti Hreinsson er sögumaður og með hlutverk Jóhanns fer Stefán Jónsson. Auk þeirra tóku um 25 leikarar þátt 1 gerð myndarinnar. Leikstjóri og handrits- höfundur er Jón Egill Bergþórsson. Seinni hlutinn verður sýndur að viku liðinni. 22.00 Tíufréttir 22.20 Rose og Maloney (8:8) (Rose and Maloney) 23.05 Málsvörn (28:29) (Forsvar) Endursýndur þáttur frá sunnudagskvöldi. 23.50 KastljósiO Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöldið. 00.15 Dagskrárlok
21:15 Eyes (10:12) (A griu svæðl) 22:00 LAX (7:13)(0ut Of Control) Hörkuspennandi myndaflokkur sem gerist á alþjóðlega flugvellinum I Los Angeles, LAX. Um flugvöllinn fara árlega milljónir farþega og stjórnendur hans hafa í mörg horn að líta. Örygglsmílin eru 1 öndvegi enda vofir ógn hryöjuverka stöðugt yfir. Aðalhlutverkið leikur Heather Locklear. 22:45 Crossing Jordan (3:21 HRéttarlæknirinn) 23:30 Hudson Hawk 01:05 Skipped Parts (Dónalegu kaflamir) Dramatísk kvikmynd um mæðgin sem eru nánast hrakin til Wyoming. Lydia og Sam, ung* lingssonur hennar, takast á við lífið á nýjum stað. Sam kynnist Maury og saman uppgötva þau leyndardóma kynfffsins. Lydia reynir að fylgjast með þeim en er sjálf upptekin vegna náinna kynna við nýjan nágranna. Aðalhlutverk: Drew Barrymore, Jennifer Jason Leigh, Bug Hall. Leik- stjóri,Tamra Davis. 2000. Bönnuð bömum. 02:45 Kóngur um stund (1:16) 03:10 Fréttir og fsland í dag 04:30 (sland í bftið 06:30 Tónlistarmyndbönd frá Popp TfVf
21:00 Innlit/útlit Innlit/útlit hefur göngu sína á ný á SkjáEinum en þetta er sjöunda þáttaröðin enda á þátturinn mikl- um vinsældum að fagna og ekkert lát virðist þar á. 22:00 Judging Amy Bandarlskir þættir um lögmanninn Amy sem gerist dómari i heimabæ sinum. Kyle fer til Minnesota 23:00 Jay Leno 23:45 The Contender (e) Raunveruleikaþættir úr smiðju Mark Burnett (Survivor). Leitin að næstu hnefaleikaleikastjörnu er hafin! Sextán hnefaleikakappar hafa verið valdir til að taka þátt i samkeppni um hver sé efni- 00:40 Cheers - 6. þáttaröð (e) 01:05 Óstöðvandi tónlist
með Heather til þess að passa son þeirra á meðan hún fer I meðferð. eru meðframleiöendur þáttanna.
21:00 Að leikslokum (e) Snorri Már Skúlason fer með stækkunargler á leiki helgarinnar. 22:00 Middlesbrough - Arsenal frá 10.09 00:00 WBA-Wiganfrá 10.09 Leikur sem fram fór síðastliðinn laugardag. 02:00 Dagskrárlok
21.00 The Cut (3:13) (You're Gonna Set Me On Fire,...) Þaö er enginn annar en Tommy Hilfiger sem er hönnuðurinn að þessum raunveruleikaþætti en Hilfiger er eitt þekktasta vörumerkið I tísku- heimlnum I dag. 22.40 David Letterman 23.30 Rescue Me (11:13) (Mom) Frábærir þættir um hóp slökkviliðsmanna I New York borg þar sem alltaf er eitthvað í gangi. Ef það eru ekki vandamál í vinnunni þá er það einkallfið sem er að angra þá. Ekki hjálpar það til að mennirn- ir eru enn að takast á við afleiðingar 11 .september sem hafði mikil áhrif á hópinn, en þarféllu margir félagar þeirra I valinn. 00.20 Friends 3 (5:25) (Vlnlr) (The One With Frank JR) 00.45 Seinfeld (12:24) (The Airport) 01.10 Kvöldþátturinn
21:20 UEFA Champlons League (Chelsea - Anderlecht) Útsending frá leik Chelsea og Anderlecht I G-riðli. Síöustu tvö árin hefur Lundúnaliðið veriö hárs- þreidd frá því að komast alla leið 1 Meistaradeild- Innl. 23:10 Meistaradeildin með Guðna Bergs 23:50 Ensku mörkin 00:20 2005 AVP Pro Beach Volleyball Strandblak kvenna og karla er Iþróttagrein sem nýtur vaxandi vinsælda og dregur að sér fjölda áhorfenda. Keppnisfólkið er það fremsta (sinni röð en í strandblaki fer saman tækni, snerpa og gott úthald.
22:00 Ring of Fire (Ródeókappar) Dramatlskur vestri þar sem rómantíkin er ekki langt undan. Bræðurnir Ely og Hank eru ródeókappar. Ely er nýr I bransanum en hann þykir óttalaus með öllu. Bræðurnir eru gott teymi en þegar annar verður ástfanginn blossar öfundin upp hjá hinum. Aðalhlutverk: Kiefer Sutherland, MarcusThomas, Daryl Hannah, Molly Rlngwald. Leikstjóri, Xavier Koller. 2001. Bönnuð börnum. 00:00 Men With Brooms (Sópað til sigurs) Rómantisk gamanmynd á dramatiskum nótum. Nokkrir vinlr 1 kanadískum smábæ snúa bökum saman á nýjan leik til að láta draum sinn og gamla þjálfarans rætast-Takmarkið er að vinna meistaratitilinn 1 kurii (Curling). Aðalhlutverk: Leslle Nielsen, Paul Gross, Connor Price. Leik- stjóri, Paul Gross. 2002. Bönnuð börnum. 02:00 People 1 Know (Kunningjar) 04:00 Ring of Fire (Ródeókappar)
■ Af netinu
Mér finnst ansi pirrandi hvað ís-
lensku sjónvarpsstöðvarnar eru allt-
af að gefa einhverjum fyrirsætum
eða ungfrú Islandsstelpum eða bara
þátttakendum í ungfrú fsland, sína
eigin þætti á sjónvarpsstöðvunum.
Óháð því hvort þær hafi hæfileika
til að vera í sjónvarpi eða ekki... Nýj-
asta dæmið finnst mér vera skelfi-
lega leiðinlegi kvikmyndaþátturinn
SJÁÐU á Sirkus sem núverandi ung-
frú ísland sér um. Af hverju talar
hún við mig eins og ég sé áttræð??
Ógeðslega hátt og vandar sig líka
við að tala skýrt. Stendur grafkyrr
í sömu sporunum, óaðfinnanlega
máluð, í fötum úr Sautján og les
texta sem einhver annar skrifaði fyr-
ir hana af skjá. Steingelt sjónvarps-
efni ef það hefur einhverntíman ver-
ið eitthvað...
http://gebba.blogspot.com/
Annars fór ég aðeins að pæla í sjón-
varpsþáttum. Ég horfði alltaf á
Monk og 24. Nú eru Monk búnir og
því horfi ég bara á 24. Seinustu tvo
sunnudaga hef ég reyndar líka lent
inn á Cold Case. Þætti sem fjalla
um gömul óupplýst mál sem eruð
opnuð á ný. Fínir þættir, skemmti-
leg pæling og það sem ég fíla er
myndatakan og uppsetningin. Auk
þess sem að tónlistin í þættinum er
alltaf í samræmi við hvenær morð-
ið var framið. Þannig að ef það var
framið t.d sextíuogeitthvað var spil-
að The Byrds - Turn, Turn, Turn.
Sniðugt. Áftur á móti er ekki eins
sniðugt að framleiðandinn er Jerry
Bruckheimer og því er alltaf 5 mín.
lokasenan voða mússí mússí allir
ánægðir og hamingjusamir og þetta
leystist á sem besta veg. Video klipp-
ur af hamingjusömu fólki grátandi
yfir því að málið leystist. Æi þessi
týpíski Bruckheimer vella. Annars
fínir þættir.
http://bergur.is/index.
asp?pid=2&cid=4ió
Hvað er málið þegar ég horfi á Lost,
þá skelf ég öll frá toppi til táar. Frek-
ar óþægileg tilfinning sérstaklega
þegar maður situr og er að reyna að
einbeita sér. I staðin situr maður i ein-
hverjumherpingiogfærstrengiímag-
ann og kjálkann. Þátturinn í kvöld
var ógnvænlegur og eitthvað segir
mér að næsti þáttur verði ekki síðri.
Svo byrjar serían úti í Ameríku
21. sept og þá getur maður farið að
horfa á þetta nokkurn vegin ferskt
http://www.reykjahn.com/blog/
Reyklaust á neöri hœöinni
á meöan eldhúsið er opið.
Eldhúsið er opið frá kl. 8:00 fil kl. 22:00.
OLIVGR
www.cafeolivGr.is