blaðið - 22.09.2005, Page 18
18 IFERÐALÖG
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaðiö
Hópurinn á Þingvöllum í júlí
Stefnumót þriggja eyja
Eldíjalla ungmenni
Yfir þrjátíu manna hópur frá þremur
Evrópulöndum hittist á Sikiley í byrj-
un september en fundur þessi var
endapunkturinn í nærri árs löngu
verkefni sem áætlunin Ungt fólk
f Evrópu styrkti. Um var að ræða
ungmenni frá Sikiley, Kanaríeyjum
og lslandi en allar eiga þessar eyjur
það sameiginlegt að vera eldfjalla-
eyjur. Kjartan Smári Höskuldsson,
forsvarsmaður íslenska hópsins, seg-
ir þetta verkefni hafa verið afar gef-
andi og fræðandi í senn.
Blóðheitt fólk
Samkvæmt Kjartani fæddist hug-
myndin að verkefninu þegar fulltrú-
ar þessara þriggja eyja hittust á eld-
fjallaráðstefnu á eyjunni Réunion í
Indlandshafi. „Á ráðstefnunni hitti
ég hópstjórana frá Sikiley og Kan-
aríeyjum. Okkur kom vel saman og
í kjölfarið sóttum við um styrk frá
stykjaáætluninni Ungt fólk í Evrópu
til að fara til Kanaríeyja og hittast
þar. Þetta var í september í fyrra,“
segir Kjartan. Á Kanaríeyjum, nán-
ar tiltekið á eyjunni Lanzarote, var
unnið að verkefnum í tengslum við
útivist og náttúruvernd. Um var að
ræða þrjá hópa sem í voru tíu ein-
staklingar á aldrinum 23 til 25 ára.
.Lanzarote er eldfjallaeyja eins og
sland og er mjög virk. Umhverfið
)ar svipar mjög til umhverfisins á
slandi. Pælingin í þessu verkefni
var að kynnast náttúrunni og skoða
hvernig þeir á Kanaríeyjum eru að
nýta sér eldfjöllin í sambandi við
ferðamennsku sem er allt öðruvísi
en við erum að gera. Þeir eru t.d.mik-
ið í því að gera hella og annað sem
tengist eldfjöllum og eldstöðvum
aðgengilegt fyrir ferðamenn. Svo
vorum við líka að skoða hvort íbúar
eldfjallaeyja eiga eitthvað sameigin-
legt. Þ.e. það eru ákveðnir hlutir sem
við eigum sameiginlega í menning-
unni sem felst í því að búa í nánd við
eldfjöll. Islendingar, Sikileyingar og
Kanaríeyingar eru t.d. mun blóðheit-
ari en Norðmenn.“
Umhverfismál í ólestri
í júlí á þessu ári hittist hópurinn
svo aftur en í þetta skiptið á Islandi.
t,Við ferðuðumst mikið. Við byrjuð-
um á að fara um suðurlandið en
síðan fórum við yfir hálendið uppá
Hveravelli. Við lögðum áherslu á að
sýna þeim hvað er ólíkt með landinu
okkar og þeirra," segir Kjartan og
bætir við að það sem hafi vakið hvað
mesta athygli hinna erlendu gesta
hafi verið hálendið, jöklarnir og hin
hreina náttúra íslands. „Síðan fór-
um við með þau til Akureyrar og vor-
um á norðurlandinu að vinna mikið
með náttúruna og náttúruvernd."
I ágúst hittist hópurinn svo í
þriðja og síðasta sinn á Sikiley. „Þar
vorum við mikið í íþróttum. Vorum
að ganga á fjöll, syndandi og kaf-
andi.“
Kjartan segir að umhverfismál á
Sikiley séu í miklum ólestri og að
hann hafi fundið fyrir áhuga frá
sikileyska hópnum að læra af Islend-
ingum í þess efnum. Þeir hafi t.d.
lítið skoðað möguleikana á nýtingu
jarðhita. „Þeir eru reyndar með
minni jarðhita. Þetta eru öðruvísi
eldfjallasvæði en þeir hafa nánast
ekkert nýtt það. Á Kanaríeyjum hef-
ur þetta eitthvað verið rannsakað
en það er ótrúlega lítið sem þessar
auðlindir hafa verið nýttar hjá þeim
miðað við hjá okkur.“
Gefandi verkefni
Kjartan segir að þetta verkefni hafi
verið gríðarlega gefandi og hjálpað
þátttakendum í því að víkka sjón-
deildarhring sinn til muna. Hann
segir ennfremur að þetta verkefni
hefði aldrei verið mögulegt án góðs
stuðnings frá styrkjaáætluninni
Ungt fólk í Evrópu. „Maður gerir sér
betur grein fyrir því hvað er hægt
að gera með aðstoð svona styrkja-
áætlanna. Ef þú ert með hóp að fólki
sem hefur áhuga á að gera eitthvað
uppbyggilegt þá er gott að vita af því
að það eru aðilar þarna úti sem eru
tilbúnir til að hjálpa manni í því að
láta það rætast.“
hoskuldur@vbl.is
Kjartan, lengst til vlnstri, meö tveimur félögum á Sikiley
BORÐSTOFUSTÆRÐ
TILBOÐSVERÐ
'd
1 C O/ AFSLÁTTUR
o /0
MIKIÐ URVAL AF
STÓRUM TEPPUM.
BORÐSTOFUSTÆRÐ 200 X 300.
í STOFUNA, BORÐSTOFUNA,
OG FORSTOFUNA.
Persía
TEPPAGALLERÍ
Bæjarlind 16, Simi: 568 6999
OPIÐ
MÁN-FÖS: kl.10 - 18
LAU: kl. 11 - 16
Teppið á myndinni er Mohair
< Stærð : 200 x 300.
TEPPI í BORÐSTOFUNA
v ;}a