blaðið - 22.09.2005, Side 30
30 I TÆKI OG TÖLVUR
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaðiö
Tölvur aldreijafn viðkvœmar fyrir tölvuþrjótum
Árásir á heimasíður
sjöfaldast á einu ári
Gallar í netkerfum hafa valdið því
að aldrei áður hafa tölvur verið jafn
viðkvæmar fyrir utanaðkomandi
árásum. Á sama tíma og gallar í net-
kerfum aukast hafa aðferðir tölvu-
þrjóta orðið sífellt fullkomnari og
fyrir vikið fer skráðum árásum á
tölvukerfi fjölgandi.
Aukin tíðni árása
Á fyrstu sex mánuðum þessa árs
voru um 1862 tilfelli skráð þar sem
tölvuhakkarar náðu að brjótast inn
í tölvukerfi fyrirtækja, stofnana
eða einstaklinga. Um er að ræða
46% fjölgun frá því á sama tímabili
í fyrra. Þetta kemur fram í árshelm-
ingsskýrslu bandaríska fyrirtækis-
ins Symantec en það sérhæfir sig í
öryggismálum á netinu. Að sögn
forráðamanna fyrirtækisins liggur
meginskýringin á bakvið þessa fjölg-
un í því að tölvuþrjótar eru sífellt
að verða klókari við að finna veilur
í kerfum en einnig að nú hafa þeir
undir höndum fullkomnari forrit en
áður til að finna veika punkta.
Skiptir máli að uppfæra fljótt
Þegar galli finnst í kerfum er venjan
sú að fyrst er þróuð viðbót til að laga
gallann áður en almenningur fær að
vita af honum. Þetta kemur í veg fyr-
ir að tölvuþrjótar fái upplýsingar um
gallann fyrir viðgerð. En um leið og
tilkynnt er um gallann er mikilvægt
að netstjórnendur hlaði viðbótinni
niður sem allra fyrst. Annars er
hætt við því að tölvuþrjótar nái að
komast inn í kerfið og skaða það
með einhverjum hætti. í skýrslu Sy-
mantec kemur einnig fram að árásir
á heimasíður fer sífellt fjölgandi og
hefur vaxið um 679% á síðustu sex
mánuðum. Að meðaltali verða 927
heimasíður fyrir árás daglega en á
sama tíma í fyrra voru það 119 síð-
ur. Sérfræðingar fyrirtækisins spá
meiri aukningu á næstu árum og
segja að helstu skotmörkin verði net-
símakerfi en mikil gróska er á þeim
markaði um þessar mundir. ■
Lifandi grcejur
Nú er komin lausn fyrir þá sem eiga fáa vini eða
vilja hreinlega lífga uppá dauflegt partí. Vél-
mennið iZ er sannkölluð stuðgræja sem ætti
að geta komið öllum í gott partískap. Það
stendur á þremur sogskálum með inn-
byggða hátalara sem hægt er tengja við
hljóðgræjur af öllum stærðum og gerð-
um. Þegar tónlist byrjar að streyma
í gegnum vélmennið bregst það við
með ýmsum hætti. Kúlulaga munn-
urinn byrjar að þlikka og skipta um
lit. Augun sem standa hálfpartinn Á
stiklum hendast út og inn og aldrei
að vita nema vélmennið gefi frá sér
margskonar búkhljóð. Einnig er hægt
að hlaða tónlist inn í vélmennið og gefa
því frjálsar hendur um að blanda saman
lögunum. Þannig verður iZ að einskonar
einka plötusnúði og þarf þá enginn lengur að
hafa fyrir því að skipta um diska sjálfur. ■
Smurþjónusta
TILBOÐ
á heilsársdekkjum/vetrardekkjum
£1- Betri verd!
TÍÍ'jalJ Smiöjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110
L f,,tn
Ný þróun í vélmennafrœðum
Minnsta vél-
menni í heimi
Bandarískum vísindamönnum
hefur tekist að búa til minnsta vél-
menni í heimi. Vélmenninu, sem er
aðeins um einn hundraðasti úr milli-
meter að þykkt, er hægt að stýra líkt
og fjarstýrðum bíl yfir sléttan flöt í
allar mögulegar áttir.
Þynnra en mannshár
Það voru vísindamenn við
Dartmouth háskólann í Hanovér
í New Hampshire og Berkeley há-
skólann í Kaliforníu sem hönnuðu
vélmennið í sameiningu. „Þetta er
minnsta þráðlausa silikon tækið í
þurru umhverfi og ég mundi sannar-
lega skilgreina þetta sem vélmenni,"
segir Ron Fearing, örvélmennafræð-
ingur við Berkeley háskólann. Vél-
mennið sjálft er þynnra en manns-
hár og mundi hæglega komast fyrir í
punktinum hér aftast í setningunni.
Gangandi örgjörvi
Þó vísindamönnum hafi áður tek-
ist að smíða örhluti sem hægt er að
vatns til að hreyfa sig eða verið bú-
in til að hluta úr dýravöðvum og
átt það sameiginlegt að láta illa að
stjórn. Önnur örvélmenni, betur
þekkt sem gangandi örgjörvar, voru
eiginlega örgjörvar með lappir knú-
in áfram af örlitlum sólarspegli. Þau
voru hins vegar tiu sinnum stærri
en vélmennið sem hér um ræðir.
Vélmenni þetta hefur verið lengi í
þróun en frumgerðin af því var op-
inberuð árið 2003. Það vélmenni gat
hins vegar aðeins hreyft sig í eina átt
á meðan nýja gerðin getur hreyft sig
i allar áttir. ■
Engar hljóðtruflanir lengur
Simtól fyrír
heymarskería
Örbylgjugeislar sem farsimar notast
við hafa alltaf haft slæm áhrif á
heyrnartæki. Þetta hefur þýtt að
fyrir heyrnarskerta hefur það
verið vandkvæðum bundið að tala
í farsíma án þess að hljóðtruflanir
berist í heyrnartækið. Nú er komið
á markaðinn lítið tæki sem
kallast Eli en það sameinar
kosti heyrnartóls og farsíma án
hefðbundinna truflana á meðan
á símtali stendur.
Tvær gerðir
Tækið byggir á hinni þráðlausu
Bluetooth tækni sem útilokar
allar rafmagnstruflanir. Tækið er
hægt að tengja við margar gerðir
heyrnartækja sem eru hönnuð til að
bera á bak við eyrað. Þegar hringt
er í viðkomandi flytur farsíminn
símtalið yfir í Eli búnaðinn sem
síðan flytur það inní heyrnartækið.
Lítill hljóðnemi á enda tækisins
flytur síðan hljóðið til baka yfir í
farsímann. Fyrir þá sem notast við
heyrnartæki sem stungið er inn í
eyrað er til önnur útgáfa af Eli sem
hægt er að bera um hálsinn. Það
notasteinnigviðþráðlausaBluetooth
tækni en tengist heyrnartækinu
með þráðlausri