blaðið - 22.09.2005, Síða 40
40 I MENNING
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 blaöiö
íslenskur Staupasteinn
Sunnudagskvöldið 25. september kl.
20.00 hefur Sjónvarpið sýningar á
Kallakaffi, nýrri íslenskri gaman-
þáttaröð í tólf þáttum. „Þetta er eins
konar íslensk útgáfa af Staupasteini
eða Frasier og hver þáttur er ein
saga,“ segir Hilmar Oddsson leik-
stjóri verksins. „Þetta eru þættir sem
eiga að vera fyrir breiðan aldurshóp.
Ég hafði ákaflega gaman af að leik-
stýra þáttunum og gæti hugsað mér
að gera meira af þessu. Ég var með
góðan hóp enda var hann vel valinn.
Þarna ríkti góður andi og við vor-
um stöðugt að læra. Þegar ég horfi
núna á þættina þá finnst mér þeir
fara batnandi með hverjum þætti af
því tökin verða sífellt öruggari. Ég
hefði gjarnan viljað gera tólf þætti í
viðbót. Þetta er efni sem hægt er að
halda endalaust áfram með.“
Þórhallur Sigurðsson, Laddi, leik-
ur strætisvagnabflstjóra í þáttunum.
,Það var ákaflega gaman að leika í
þáttunum enda hópurinn frábær.
Andrúmsloftið á kaffihúsinu var því
mjög gott. Ég held að það skili sér í
leiknum hvað okkur fannst gaman,“
segir Þórhallur.
Kallakaffi gerist í Reykjavík sam-
tímans. Þar segir frá þeim Kalla og
Margréti, hjónum á miðjum aldri
sem eru í upphafi fyrsta þáttar að
ganga frá skilnaði eftir að hafa verið
í sambúð frá því á menntaskólaárun-
um. Þrátt fyrir skilnaðinn ákveða
þau að reka áfram sameiginlegt
fyrirtæki sitt, Kallakaffi, lítinn mat-
sölu- og kaffistað sem þau hafa átt
í nokkur ár. Margrét býr áfram í
húsinu sem þau áttu saman en Kalli
er fluttur uppá loft i Kallakaffi. En
þetta fyrirkomulag: að vera skilin
en þó saman alla daga er ekki alveg
eins auðvelt og þau höfðu hugsað sér,
sérstaklega ekki af þvi að tilfinning-
ar þeirra til hvors annars eru ekki
alveg kulnaðar.
Guðmundur Ólafsson er aðalhand-
ritshöfundur og aðalleikendur eru
Valdimar Örn Flygering, Rósa Guð-
ný Þórsdóttir, Þórhallur Sigurðsson,
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir.
Aðalleikendur Kallakaffis sem leikstjór-
inn Hilmar Oddsson lýsir sem samblandi
af Staupasteini og Frasier.
Ferill hönnuöar
Laugardaginn 24. september
verður haldið í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi Sjónþing
um feril Þórdísar Zoéga hönnuðar
FHI. Sama dag opnar yfirlitssýn-
ing á verkum Þórdísar. Sýningin
og Sjónþingið er haldið i tilefni af
50 ára afmæli Félags innanhúss- og
húsgagnaarkitekta.
„Ég hef starfað við hönnun í 25
ár. Eg lauk námi í Danmörku árið
1981 en Danmörk var þá Mekka hús-
gagnahönnunar. Þegar ég kem heim
þá fór ég að vinna við innréttingar
og húsgögn og kom húsgagnahönn-
un minni á framfæri, bæði hér á
landi og erlendis," segir Þórdís.
Hverju sækistu eftir í hönnun?
„Ég sækist eftir því að hluturinn
sem ég vinn með sé þægilegur í um-
gengni og lifi með þér, að hann sé
ekki einnota heldur endist með ein-
hverjum hætti.“
Þórdfsar Zoéga. „Mér hefur fundist að hlutur sem hefur bæði notagildi og fegurð hafi
lifitfma."
Skiptir þig máli að hluturinn sem
þú hannar sé fallegur?
„Þegar maður er að vinna að hönn-
un þá setur maður sér markmið, það
að hluturinn sé fallegur fyrir augað,
þægilegur og hafi notagildi. Mér hef-
ur fundist að hlutur sem hefur bæði
notagildi og fegurð hafi lifitíma. Ef
maður horfir á hönnunarsöguna þá
lifa þeir hlutir sem fólk hefur not fyr-
ir og eru fallegir.“
Hver er staða hönnunar á Islandi
„Ég held að hún sé ágæt. Námið
hefur breyst mikið frá því ég lærði.
1 byrjun var húsgagnahönnum nær
eingöngu handverk og þeir menn
sem fóru í húsgagnahönnun áður
fyrr voru yfirleitt húsgagnasmiðir. I
dag er verið að leggja meiri áherslu á
hugmyndavinnu, að hugmyndin sé í
samhengi við annað og sé ákveðinn
lífsstíll.
Stóll eftir Þórdfsi.
Lýrískur sópran
í Hafnarborg
Sunnudaginn 25. september kl.
20:00 mun Kristín Þuriður Halliday
halda tónleika í Hafnarborg, Hafnar-
firði. Kristín er lýrískur sópran sem
hefur m.a. numið við Musical Arts í
New York og haldið tónleika viðsveg-
ar um Bandaríkin og í Þýskalandi.
Efnisskráin verður afar fjölbreytt
og má þar nefna verk eftir Hendel,
Vivaldi, Schubert, Puccini, Gounod
og fleiri ásamt sígildri bandarískri
tónlist.
Undirleikari Kristínar er Antonía
Hevesi, ásamt Einari Jóhannessyni
klarinettuleikara og Peter Tomkins.
Forsala aðgöngumiða er í Hafnar-
borg.
Metsölulisti erlendra bóka
^ The New York Trilogy
Paul Auster
2 The Broker
John Grisham
. The Big Bookof Sudoku
Mark Huckvale
ALongWayÐown
Nick Hornby
5 ThePeople'sArtofLove
James Meeks
VernonfiodLittle
DBC Pierre
? DeathandthePenguin
Andrey Kurkov
What I Loved
Siri Hustvedt
Thud
Terry Pratchett
1() StateofFear
Michael Crichton
Listinn er gerður út frá sölu dagana
14.09.05 - 20.09.05 f Bókabúðum Máls og
menningar, Eymundsson og Pennanum
Metsölulistinn - allar bækur
^ Skotgrafarvegur - kilja
Kari Hotakainen
2 Dansað við engil - kilja
Áke Edwardson
3 Friðland - kilja
Liza Marklund
4 Hálfbróðirinn - kilja
Lars Saabye Christensen
Myndafósýnilegummanni
Paul Auster
6 Dauðarósir - kilja
Arnaldur Indriðason
? Hvað segja stjörnumerkin um þig..
Jamie Stokes
8 Móðir 1' hjáverkum - kilja
Allison Pearson
9 Spænsk-ísiyfsl.-spænsk orðabók
Orðabókaútgáfan
Alkemistinn - kilja
Paulo Coelho
Listinn er gerður út frá sölu dagana
14.09.05 - 20.09.05 í Bókabúðum Máls og
menningar, Eymundsson og Pennanum