blaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 2
2 I mWLEWDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaAÍð
Staða ellilífeyrisþega:
Þriðjungur vart fjárhagslega
stæður til að halda heimili
Viðrœður standa nú yfir milli Landssambands eldri borgara og stjórnvalda um endurskoðun á tekjustofni eldri
borgara. Formaður sambandsins segir verkefnið brýnt.
,Einn af hverjum þremur ellilífeyr-
isþegum býr við svo þröng kjör að
það gæti rekið eftir fólki að fara
inn á stofnanir,” segir Ólafur Ólafs-
son, formaður Landssambands eldri
borgara. Hann segir að þessi hópur
eigi fjárhagslega erfitt með að halda
heimili og það ýti þeim fyrr inn á
stofnanir en ella. Fulltrúar eldri
borgara hafa undanfarinn mánuð
fundað með fulltrúum heilbrigð-
is- og fjármálaráðuneytis um tekju-
stofn ellilífeyrisþega.
„Við viljum fá leiðréttingu á kjör-
um þessa hóps. Fyrst og fremst vilj-
um við að bilið milli ellilauna og
launavísitölu verði þurrkað út og að
mjög verði dregið úr skerðingum
og sköttum ef ellilífeyrisþegar fá
sér einhverja vinnu. Einnig viljum
við að grunnlífeyrir verði skattlaus,”
segir Ólafur. Hann vill þó taka fram
að viðbrögð núverandi heilbrigðis-
ráðherra við málinu hafi verið mjög
jákvæð.
Eitt af fimm
stærstu í heiminum
Róbert Wessman, t.v., og Frederick J. Lynch handsala samninginn f höf uöstöðvum Acta-
vis i Hafnarfirði.
Actavis hefur gengið frá samningi
um kaup á samheitalyfjastarf-
semi alþjóðlega lyfjafyrirtækisins
Alpharma. Með kaupunum hefur
Actavis skipað sér í hóp meðal fimm
stærstu fyrirtækja á sviði samheita-
lyfja í heiminum. Kaupverðið nem-
ur um 50 milljörðum íslenskra
króna. Róbert Wessman, forstjóri
Actavis Group, segir það hafa ver-
ið yfirlýsta stefnu fyrirtækisins að
komast í hóp þeirra fimm stærstu.
Hann telur kaupin til þess fallin að
auka arðsemi hluthafanna til lengri
tíma litið. Frederick J. Lynch, hjá
samheitalyfjasviði Alpharma, sagð-
ist vera mjög ánægður með þann
gagnkvæma ávinning sem kaupin
hefðu í för með sér og sagði það
.sérstaklega ánægjulegt að tengjast
félagi sem hefur það skýra mark-
mið að vera leiðandi á sínu sviði.“
Eftir kaupin mun Actavis vera með
sterka markaðsstöðu í Evrópu og
Bandaríkjunum og munu um 35% af
tekjum þess koma frá Bandaríkjun-
um. Framleiðslugeta Actavis eykst
einnig verulega en Alpharma er með
verksmiðjur í Bandaríkjunum, Bret-
landi, Noregi, Kína og Indónesíu. ■
Spennandi ævintýraferðirtil allra heimsálfa með Encounter,
Dragoman, Contiki, Intrepid, Imaginative Traveller, Tucan o.fl.
Allar nánari upplýsingar liggja frammi á skrifstofu okkar eöa á www.exit.is.
Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is
FærÖ þú MasterCard
Ferdaávísun?
STUDENTA
e it.is
Aðstaða aldraðra er misjöfn
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráð-
herra, segir samráðsnefnd ríkis-
stjórnarinnar, með fimm ráðherra
innanborðs, fara yfir málið um þess-
ar mundir.
„Tilgangur starfshópsins er að
komast að sameiginlegri niðurstöðu
um tekjuþróun á síðustu árum og
stöðu samkomulags sem gert var
fyrir tveimur árum. Svo munum við
funda með forystu landssamtaka
aldraðra þegar því verður lokið,“ seg-
ir Jón. Hann segir það rétt að ellilíf-
eyririnn hafi ekki fylgt launavísitölu
eins og aldraðir hafi sóst eftir.
„Ég hef mestar áhyggjur af þeim
sem eiga að lifa af bótum eingöngu,
hafa t.d. takmarkaðan rétt í lífeyris-
sjóðum. Aðstaða aldraðra er mjög
misjöfn að þessu leyti,“ segir Jón en
hann segir að málið verði rætt við
fulltrúa aldraðra á næstunni.
Skringilegar áherslur
Búsetumál aldraðra hafa verið til
umfjöllunar að undanförnu. Ólafur
segir að stjórnmálamenn beini fólki
í raun inn á stofnanir með áherslum
sínum.
„Við erum með þrisvar sinnum fleiri
stofnanarými hér á landi en víðast
hvar erlendis en á móti kemur að
þjónustuíbúðir eru mun færri og
aðstoð utan stofnana sömuleiðs.
Stofnanir eru mun dýrari leið og
óskiljanlegt að hún sé valin þrátt
fyrir ítrekaðar óskir og tilmæli um
breytta stefnu.“
„Þar erum við sammála. Við þurf-
um að beita okkur fyrir því að auka
þjónustu við aldraða úti í samfélag-
inu og tryggja að það séu meira en
stofnanaúrræði í búsetu. Þar greinir
okkur ekkert á,“ segir heilbrigðisráð-
herra um málið. ■
Breytingar á 500 kallinum
í gær var nýr og breyttur fimm
hundruð króna seðill settur í um-
ferð af Seðlabankanum. Seðillinn
er að mestu eins og sá eldri en á hon-
um hafa verið gerðar nokkrar endur-
bætur. Breytingarnar miða að því
að gera seðilinn öruggari þannig að
auðveldara er að greina hann og erf-
iðara að falsa. Eldri seðillinn er enn
í gildi en reiknað er með að hann
hverfi úr umferð að mestu á næstu
12 mánuðum. „Með þessum breyt-
ingum erum við að ljúka uppfærslu
á okkar seðlaröð,“ segir Tryggvi
Pálsson hjá Seðlabankan-
um. „Gamli fimm hundruð
króna seðillinn kom út fyr-
ir tæpum 25 árum. Frá því
við byrjuðum á þessum end-
urbótum hefur fölsuðum
seðlum fækkað verulega.
Þó höfum við fengið fjóra
falsaða seðla inn á borð til
okkar í ár.“
12 ára fangelsi fyrir fölsun
Viðurlög við peningafölsun nema
allt að 12 ára fangelsi. Otlitsbreyting-
arnar felast í því að fyllt
hefur verið út í spássíur
að nokkru, bætt hefur
verið við öryggisþræði
i litbrigðum og komið
hefur verið fyrir vatns-
merkjum í hornum
seðilsins. Vatnsmerkið
styrkir seðilinn og ger-
ir hann endingarbetri.
Ennfremur er á nýja seðlinum reit-
ur sem sést í útfjólubláu ljósi ásamt
fleiri þáttum sem aðeins verða
greindir með sérstökum búnaði. ■
Bakkavör kaupir í Bretlandi
Bakkavör Group hefur keypt Hitc-
hen Foods plc. í Bretlandi og er kaup-
verðið 4,7 milljarðar króna, eða 44
milljónir punda. Hitchen Foods
framleiðir ferskt niðursoðið græn-
meti og salat fyrir allar stærstu versl-
anakeðjur Bretlands. 1 tilkynningu
frá Bakkavör segir að aðalávinn-
ingur kaupanna sé að öðlast aukna
markaðshlutdeild á vörusviði Hitc-
hen, en markaður fyrir ferskt niður-
soðið grænmeti hefur vaxið um 80%
síðan á árinu 2000 og er áframhald-
andi vexti spáð. Samningar hafa
náðst við helstu stjórnendur fyrir-
tækisins um að þeir haldi áfram
störfum. Ágúst Guðmundsson,
stjórnarformaður Bakkavör Group,
segir yfirtökuna endurspegla stefnu
fyrirtækisins um áframhaldandi
vöxt á sviði ferskra og kældra tilbú-
inna matvæla og segir kaupin „jafn-
framt gott tækifæri til að styrkja
stöðu okkar á markaðinum fyrir
ferskt niðurskorið grænmeti sem
vex hratt.“ ■
(~j HeiðskJrt (3 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað
i
Rlgnlng, litilsháttar //' Rignlng ? ? Súld ^ '1' Snjúkoma
9 *
*
Slydda ^~J Snjóél ^jj
Skúr
Amsterdam 13
Barcelona 21
Beriín 09
Chicago 10
Frankfurt 12
Hamborg 12
Helsinki 08
Kaupmannahöfn 11
London 14
Madrid 16
Mallorka 23
Montreal 06
NewYork 12
Orlando 20
Osló 10
París 10
Stokkhólmur 08
Þórshöfn 10
Vín 10
Algarve 20
Dublin 13
Glasgow 12
9
40
9
6°
9
9°
40
9
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 1021 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
8°
logn
///
'/A
/ //
40»°
8°
Breytileg
9
Á morgun
'// ('A1'
'// /'/