blaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 22
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaöiö
Fjör í Eyjum um helgina
Á laugardag og sunnudag var keppt í
Vestmannaeyjum í 2. deild stúlkna í
flokki A-liða í A-riðli. Þetta eru stúlk-
ur fæddar 1990 og 1991 sem þýðir að
þær eru á fjórtanda og fimmtánda
aldursári. Fjögur lið voru við þátt-
töku og voru Eyjastúlkur sigursælar.
Liðið þjálfar Unnur Sigmarsdóttir
en Unnur þjálfaði meistaraflokk
ÍBV fyrir þremur árum. Lið ÍBV var
sigursælt og vann alla sína leiki og
þar var Elísa Viðarsdóttir marka-
hæst en Elísa er fædd 1990. Elísa er
systir Margrétar Láru, markadrottn-
ingar úr Val og íslenska landsliðsins
í knattspyrnu, en þetta er mikil
íþróttafjölskylda því Bjarni Geir
er elstur í systkinahópnum. Hann
leikur með meistaraflokki ÍBV í
knattspyrnu. Elísa er því eini fjöl-
skyldumeðlimurinn sem stundar
handbolta í dag en Margrét Lára tók
nokkra spretti á handboltavellinum
áður en hún lagði fótboltann alveg
fyrir sig. ■
KR-ingar með
tímamótasamning
I hádeginu í gær skrifaði handknatt-
leiksdeild KR undir styrktarsamn-
ing við SPRON. Samningurinn er til
þriggja ára og KR-ingar vilja meina
að um tímamótasamning hjá hand-
knattleiksdeildinni sé að ræða en
samningurinn mun tryggja rekst-
ur deildarinnar í yngri flokkunum
næstu þrjú árin að minnsta kosti.
KR-ingar hafa á ný ræst handbolta-
deildina og hafa hlotið góðar und-
irtektir - SPRON-menn hafa greini-
lega mikla trú á þeim svart-hvítu.
Æfingasókn hjá krökkunum í KR
hefur verið frábær það sem af er
vetri og greinilegt að Vesturbæingar
hafa verið að bíða eftir að handbolta-
deildin hæfi störf fyrir yngri flokk-
ana í handbolta á ný.
Hér á myndinni til hliðar eru for-
ráðamenn KR og aðilar frá SPRON
ásamt nokkrum krökkum úr hand-
boltanum i KR. ■
Gróttustelpur sigursælar
í 6. flokki stúlkna
Knattspyrnuskóli
Knattspyrnuakademíu íslands
í FÍFUNWI og EGILSHÖLL
IMámskeið fyrir stráka og stelpur
I: 24. okt. -11. nóv.
II: 14. nóv. - 2. des.
Aldur: 6. flokkur og eldri
Æfingar:
Mánud., miðvikud. og föstud. 06:30-07:30
MasterCard verð: 17.900 fyrir hvort námskeið
Almennt verð: 19.900 fyrir hvort námskeið
Ef bæði námskeiðin eru keypt saman er
MasterCard verð 32.900
Almennt verð: 35.900
Innifalið í verði:
Búningur og morgunhressing
Þrír heppnir þátttakendur sem sækja bæði
námskeiðin fá miða á leik í ensku knattspyrnunni
í boði lcelandair
4
KnattspyriíM
yVkademía Jslawds
Landsliðsþjálfarar
koma í heimsókn
Skráning og allar upplýsingar á knattspyrnuskolinn.net og hjá erla@kronos.ís
ICELANDAIR £t
skyr.is
VINTERSPOffr
Landsbankinn
Um helgina var mikið um að vera
í íþróttahúsi Seltjarnarness og þar
voru margar stúlkur í 6. flokki að
spila handbolta. 31 lið var skráð til
leiks frá 14 félögum. Keppt var í A-
B-og C-liðum og til úrslita í flokki A-
liða léku Grótta og Fram. Eftir venju-
legan leiktíma var staðan jöfn og því
var gripið til framlengingar og enn
var jafnt og því var hlutkesti látið
ráða hvort liðið væri sigurvegari.
Jafnara gat það vart verið. Grótta
vann hlutkestið og varð því sigurveg-
ari í flokki A-liða. Fram varð sem
sagt i öðru sæti og ÍR í þriðja sæti.
Haukastúlkur enduðu í fjórða sæti,
HK í fimmta, FH í sjötta sæti, ÍBV
i sjöunda og Fylkir varð i 8. sæti í
flokki A-liða í 6. flokki stúlkna.
ÍR varð svo sigurvegari í flokki B-
liða en ÍR vann Gróttu-i í hörkuleik,
5-3. í þriðja sæti varð lið HK úr Lind-
arhverfinu í Kópavogi en HK sendi
þrjú lið til keppni, þar af kom eitt úr
Lindarhverfi og eitt úr Kársnesinu.
HK-Kársnes varð í fjórða sæti í B-
liða keppninni. Fram varð í fimmta
sæti, Grótta-2 varð í sjötta sæti, ÍBV
í sjöunda og FH varð i áttunda sæti í
flokki B-liða.
I flokki C-liða var það svo lið
Gróttu-2 sem sigraði en Grótta-i
varð i öðru sæti, ÍR varð í þriðja sæti
og FH í fjórða. ■