blaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaðiö
Kjarasamningar:
Gott ástand á Höfn i Hornafirði
Eituref ni láku út
Verkalýðs-
forystan á
fund forsæt-
isráðherra
Fulltrúar verkalýðsforystunnar
ganga til fundar forsætisráð-
herra í dag. Ljóst þykir að
forsendur kjarasamninga
eru brostnar og er markmið
fundarins meðal annars að
ræða hvort, og þá hvernig,
stjórnvöld koma að málinu.
í forsendum kjarasamninga
er gert ráð fyrir ákveðinni kaup-
máttaraukningu lægstu launa.
Þær hafa ekki staðist og því
gerist annað af tvennu - samið
verður um viðbót við kjara-
samninginn til að bæta launa-
fólki þetta upp, eða að samn-
ingnum verður rift um áramót
og samið upp á nýtt. Ljóst er að
aðilar vinnumarkaðarins kjósa
flestir að fyrri leiðin verði farin
en ennfremur er ljóst að margir
telja að stjórnvöld verði að
koma að málinu til að svo megi
verða. Hver möguleg aðkoma
ríkisins verður liggur ekki fyrir
á þessari stundu en nokkrir
liðir hafa verið ræddir, svo sem
endurskoðun á örorkubirgði
lífeyrissjóða, endurskoðun
atvinnuleysistrygginga og
aukið fé í fullorðinsfræðslu
svo eitthvað sé nefnt. ■
Flóðin sem urðu á Höfn í Hornafirði um helgina hafa rénað. Töluvert tjón varð ogflœddi
inn í um 20 hús. Unnið er að því að kortleggja þau svœði þar semflœddi inn tilfólks tilþess
að skoða hvort megi koma í vegfyrir að ástandiðfrá því um helgina endurtaki sig.
Sýra lak úrgámi eftir að farmskipið Akrafell lenti íslœmum sjó rétt
fyrir utan land.
Slökkviliðið var kallað út í gærnótt
til að aðstoða starfsmenn Samskipa
við losun gáms þar sem eiturefni
höfðu lekið út. Um var að ræða sýru
sem getur verið skaðleg mönnum ef
hún kemst í snertingu við húð.
Pakkningar rofnuðu
Gámurinn var um borð í Akrafelli,
skipi Samskipa, þegar stæður af
járnrörum féllu á hann þegar skip-
ið lenti í slæmum sjó rétt fyrir utan
land. Gámurinn laskaðist mikið við
höggið með þeim afleiðingum að
pakkningar sem geymdu sýrurnar
rofnuðu. I kjölfarið var haft sam-
band við slökkviliðið sem sendi
menn í sérstökum eiturefnabúning-
um til að losa gáminn. Skipið lagði
við Vogabakka í Kleppsvík rétt eftir
miðnætti í gær en hreinsun hófst
skömmu eftir það.
Hreinsun gekk vel
Unnið var að hreinsuninni alla
nóttina en henni lauk svo í morg-
unsárið. Að sögn upplýsingafulltrúa
Samskipa var aldrei hætta á ferðum
og unnið var eftir sérstökum örygg-
isreglum sem eiga við í svona tilvik-
um. Samkvæmt slökkviliðinu var
sýran þess eðlis að hún myndaði
ekki eiturefnaský og auðvelt reynd-
ist að ganga frá henni eftir að búið
var að losa gáminn úr skipinu. ■
Akrafellið við bryggju í gærmorgun. Um 300 lítrar af sýru reyndust vera í gámnum sem
skemmdist.
„Staðan er bara góð núna, allir poll-
ar að hverfa og nú erum við að
skrásetja það tjón sem orðið hef-
ur,“ segir Helgi Már Pálsson, fram-
kvæmdastjóri tækni- og umhverfis-
sviðs bæjarins. „Það flæddi inn í um
það bil 20 hús, inn í kjallara og eitt-
hvað af íbúðum. Húseigendatrygg-
ing bætir tjón á húsnæðinu sjálfu og
þeir sem eru með heimilistrygging-
ar fá tjón á húsgögnum sínum bætt
Helgi segir að það hafi ekkert farið
úrskeiðis í sambandi við lagnakerfi
bæjarins. „Það klikkaði í raun ekk-
ert en úrkoman var svo gífurleg að
kerfin eru engann veginn hönnuð
með þetta mikla úrkomu í huga frek-
ar en í öðrum bæjum. Hins vegar er-
um við að kortleggja flóðasvæðin og
þar sem hefur flætt inn og við mun-
um í framhaldinu skoða hvort
hægt sé að gera einhverjar úr-
bætur á þeim svæðum ef svona
ástand myndi skapast aftur.
En þetta er bara eitthvað sem
menn verða að lifa við held
ég, að svona tjón verði öðru
hvoru.“ Skemmdir urðu einn-
ig nokkrar á gangstéttum og
hellulögnum í bænum þegar
sandurinn undir lögnunum fór
á hreyfingu. Orkoman í bænum
var alveg gríðarleg segir Helgi. „Mér
skilst að úrkoman á þessum eina
sólarhring hafi nálgast það að vera
jafnmikil venjulegri úrkomu í okt-
óbermánuði. Það gerði okkur líka
erfitt fyrir hve mikið lauffall hefur
verið að undanförnu sem olli þvi að
niðurföll stífluðust sem og dælurn-
ar sem við notuðum til að draga úr
vatnsmagninu.“ Jón Bjarnason hjá
Vegagerðinni sagði að verið væri
að vinna að viðgerðum á þeim stöð-
um sem skemmdust í rigningunum
og aurskriðunum sem fylgdu í kjöl-
farið og gengu viðgerðir ágætlega.
„Ástandið er bara nokkuð gott, enda
hætt að rigna og það er fyrir öllu.“*
nnimnnn
Tveir litir Hvítt-Silfur
Ljosmyml/hornatjordur.is
Starfsmenn bæjarins og slökkviliðsins lentu í vandræðum með að dæla vatni í burtu
vegna nýfallinna laufa sem stífluðu dælurnar.
Korpuskóli tekinn í notkun
Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók formlega í notkun nýja skólabyggingu fyrir Korpuskóla
f gær. Skólinn, sem hannaður er af teiknistofu Arkís ehf, rúmar 170 grunnskólanemend-
ur og er hluti hússins hannaður sem leikskóli. Ráðgert er að nýta megi það rými fyrir
leikskólabörn þegar grunnskólanemendum fækkar. Um 220 nemendur stunda nám í
Korpuskóla í dag en áætlað er að þeim muni fjölga upp f 260 á næstu árum.
Pljótlegt að koma við og taka með sér rétti
Græna línan, Bæjarhrauni 4, S;565-2075
564 0950
—, *
PUSTÞJONUSTA
Smiójuvegur 50, Kóp., sími: 564 0950
Setfum [prf]sGlte[fíir]
í allar geróir bíla
Ef við eigum
það ekki til þá bara búum við það til!
Launamál:
Aukið gegn-
sæi fyrir
launþega
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík vill leggja
til að framvegis verði sérstak-
lega sundurliðað á launaseðli
borgarstarfsmanna skipting
opinberra gjalda milli ríkis
og sveitarféíags. Með þessu
vilja sjálfstæðismenn auka á
gegnsæi fyrir launafólk og líka
að það átti sig betur á uppbygg-
ingu skattkerfisins. Þeir benda
á að í launaseðlum sé ítarleg
sundurliðun á nærri öllum
frádráttarliðum nema sköttum
og fólk geri sér ekki alltaf
grein fýrir því að þeir skiptast
milli tveggja stjórnsýslustiga. ■