blaðið - 18.10.2005, Side 6

blaðið - 18.10.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaöiö Ölvunarakstur Fluguhnýtingar: Fjaðrirnar hættulausar Fluguhnýtingamenn þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að smit- ast af fuglaflensu þrátt fyrir að meðhöndla fjaðrir af fuglum alls staðar að úr heiminum. Þetta kemur fram á heimasíðu Stangveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) í gær. Þar segir að félagsmaður í SVFR hafi sent fyrirspurn til félagsins þess efnis. Henni var komið áfram til Landlæknisembættisins sem svaraði því til að „fuglaflensa smitast eftir öðrum leiðum en umgengni við fjaðrir." ■ Viðskipti: Avion Group næst fram- sæknast Avion Group er í öðru sæti á lista Europe’s 500 yfir fram- sæknustu fyrirtæki Evrópu í ár. Þetta er í fyrsta sinn sem islenskt fyrirtæki nær svo ofarlega á þennan lista, en fyr- irtækið var vahð úr þúsundum fyrirtækja frá 18 Evrópulönd- um. í tilkynningu frá samtök- unum segir að stjórnendum Avion Group hafi tekist að búa til framsækið fyrirtæki sem náð hafi góðum árangri. Verðlaunin verða veitt formlega 19. nóvember næstkomandi. ■ Sömu aðilar bijóta af sér með stuttu millibili íslensk rannsókn sýnir aðfjórði hver ökumaður sem tekinn er undir áhrifum áfengis eða fíkniefna hér á landifremur slíkt brot aftur I sænskri rannsókninni, sem kynnt var fyrir skömmu, kemur fram að meirihluti þeirra sem teknir eru við að keyra undir áhrifum áfengis og fíkniefna eru á aldrinum 21 til 40 ára og aðeins nái að stöðva brot af þeim sem keyra daglega um götur Svíþjóðar í þessu annarlega ástandi. íslenskar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessu sýna svipaða nið- urstöðu. fslensk rannsókn í rannsókn sem Haukur Freyr Gylfa- son, Marius Peersen og Jón Friðrik Sigurðsson unnu, og birt var í bók- inni Rannsóknir í félagsvfsindum, kemur fram að um 27% ökumanna hér á landi fremji ítrekað ölvunar- brot. Rannsóknin nær yfir tíma- bilið frá janúar 1989 til mars 2002. Þar kemur einnig fram að um 30% þeirra sem gerast sekir um ítrekað ölvunarbrot eru karlmenn og um 18% kvenmenn. Þetta er í nokkru samræmi við þær tölur sem sænska rannsóknin sýnir þó íslensku tölurn- ar séu örlítið lægri. f rannsókninni kemur einnig fram að ítrekun brota eigi sér venjulega stað innan sex mánaða frá upprunalegu broti. Konur komast upp með brot Rannveig Þórisdóttir, hjá Ríkis- lögreglustjóra, segir að það stutta tímabil sem líði frá upprunalegu broti þangað til einstaklingur brýt- ur af sér aftur gæti þýtt að í flestum tilvikum sé um að ræða eitthvað ákveðið erfiðleikatímabil sem fólk er að ganga í gegnum og valdi mik- illi drykkju. Rannveig segir einnig að þó að karlmenn séu í meirihluta í þessum tegundum umferðabrota sé ekki sjálfgefið að þeir séu oftar full- ir undir stýri. „Samkvæmt skýrslu um unga ökumenn eru konur lík- legastar til að komast upp með ölv- unarakstur. Þetta tengist ákveðnum ímyndunarþætti. Við trúum því að einhverjir hegði sér á ákveðinn hátt og fylgjumst því kannski frek- ar með þeim. Þetta er vel þekkt fyr- irbæri bæði hér heima og erlendis." Hún segir einnig að þær tölur sem hún hafi undir höndum sýni litla hlutfallslega breytingu á milli ára varðandi tíðni ölvunaraksturs en inn í þær sé reyndar ekki reiknað með fjölgun ökutækja og það gæti haft áhrif á niðurstöður. ■ ftrekaður ölvunarakstur mælist hærri hjá körlum en konum GOÐ HEILSA GULU BETRI fi*UI www.nowfoods.com V~7 Vorum að taka upp glœsilegan 3 náttfatnað frá Y//r Glæsilegur undirfatnaður fyrir allar konur ffá hinum heims- þekktu amleiðendum BlaSll/FMi Vímuvarnarvika Hafnarfirði Vímavarnarvikan var sett formlega í Hafnarfiröi í gær. Um er aö ræöa samstarfsverkefni 19 félagasamtaka í Hafnarfirði. Meö átakinu er ætlunin að beina athyglinni að líkamleg- um og félagslegum afleiðingum fikniefnaneyslu og forvarnastarfi almennt. Út vikuna verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá m.a. ráðstefnu og opna fjölskylduskemmtun í ráðhúsinu svo eitthvað sé nefnt. Viðskipti Oánægja með afkomu Skeljungs Nokkur óánægja er með rekstur Skeljungs á síðasta ári og afkoma fyrirtækisins undir væntingum. Þetta kemur fram í ársskýrslu Haga hf., móðuríyrirtækis Skelj- ungs. í ársskýrslunni segir að trú neytenda á olíufyrirtækjum hafi miimkað sem hafi svo skilað sér í minnkandi sölu. Þar kemur einnig fram að ytra umhverfi hafi verið félaginu erfitt t.a.m. styrking krónunnar og hækkandi oliuverð. í skýrslu Jóns Bjöms- sonar, forstjóra Haga, segir að dómur samkeppnisyfirvalda yfir olíufélögunum hafi verið áfelús- dómur og ljóst að næsta verkefhi fyrirtækisins verði að vinna sig aítur í álit hjá viðskiptavinum og almenningi. Með hliðsjón af þessum orðum vekur athygli að á öðrum stað í ársskýrslunni segir að Skeljungur hyggist áfrýja niðurstöðum dómstóla þar sem kveðið er á um sektarupphæð. * Hamraborg 7 • Sími 544 4088 Útsölustaðir: Esar Húsavík • Dalakjör Búðardal SYNCRO Heyrnartœki með gervigreind Afgreiðslutími innan þriggja vikna Bjóðum margar tegundir af sjólfvirkum, stafrœnum heyrnaitœkjum Verðfró 47.000-170.000 kr fyrir eitt tœki Persónuleg og góð þjónusta Akureyri - ísafíröi - Egilsstöðum Heyrnurtœkni Betri heyrn -bœtt lífsgœði www.heymartaeknLis Glæsibær Álfheimum 74 104 Reykjavík • IVyggvabraut 22 600 Akureyri • símí: 568 6880

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.