blaðið - 18.10.2005, Side 14

blaðið - 18.10.2005, Side 14
14 I ÁLIT ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 blaöiö blaöiðH Hwgy M Wi B . Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. UTANRIKISSTEFNA ÍSLANDS Rætt hefur verið um það að þó Davíð Oddsson hafi yfirgefið svið- ið í lok landsfundar Sjálfstæðisflokksins svífi andi hans enn yfir vötnum. Það er þó ekki einhlítt. Þannig studdi fundurinn framboð fslands í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, þó efasemdir Dav- íðs um það hafi verið öllum kunnar. Blaðið tekur undir þær efasemdir. Við fslendingar erum fáir og smáir, en samt lítum við stórt á okkur og viljum að rödd okkar heyrist í samfélagi þjóðanna. Gott og vel. En það virðist orðinn almennur miskilningur að það sé best gert með tröll- auknu utanríkisráðuneyti, sem kostar meira en 7.500 milljónir á ári og stækkar stöðugt. Þarf virkilega sendiráð í öllum höfuðborgum Norðurlanda? Eða í Kan- ada? f Mózambík? Eða tvö sendiráð í Brussel? Rökin, sem helst eru nefnd fyrir öllum þessum erindrekstri hins opin- bera á erlendri grundu, eru að þannig megi efla menningartengsl, við- skipti og þjónustu við íslendinga erlendis. Þetta er hrein firra, því efna- hagslegar og tæknilegar framfarir hafa verið með þeim hætti að fólk annast sinn erindrekstur sjálft. íslenska útrásin á utanríkisráðuneytinu ekkert að þakka, Björk og Sigur Rós ekki heldur og sjávarútvegsfyrirtæk- in þurfa ekki hjálp þess til þess að selja sinn fisk. Erindisleysa utanríkisráðuneytisins í öllum heimsins hornum virðist þó ekki svala metorðagirnd starfsmanna þess og stjórnmálamanna, sem sumir sjá sjálfsagt fram á áhyggjulaust ævikvöld undir handarjaðri þess. Nú er á því hamrað að fslendingar hafi eitthvað sérstakt fram að færa við heimsbyggðina, sem tryggt geti öryggi og frið í heiminum. Væri ekki nær að huga að utanríkisstefnu íslands fyrst? ísland hefur tek- ið sér afdráttarlausa stöðu meðal vestrænna lýðræðisþjóða á alþjóðavett- vangi og við þeim hornsteini á ekki að hrófla. En á sama tíma er enginn einræðisherra heimsins nógu blóði drifinn til þess að ísland hiki við að taka upp stjórnmálasamband við hann. Þar sem ísland þarf að taka afstöðu - eins og t.d. gagnvart Kína - hallar það sér fremur að alræðis- stjórninni í Peking en lýðræðisstjórninni í Taipei. Menn eiga að velja sér vini af kostgæfni og það væri meiri ástæða fyrir ísland að endurskoða utanríkisstefnuna með það í huga en að leggja í gíf- urlegan kostnað í veikri von um að geta haft vit fyrir umheiminum. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Tveggja tuma orrusta flokkanna eins og heitan eldinn. Enda dauft yfir þeim þessa dagana og þeir mega ekki við miklum áföll- um án þess að þurrkast út í skoðana- könnunum líkt og þeir hafa þegar gert á torgi hugmyndanna. Hvor vinnur borgina? Næsta stórorrusta verður í borginni í vor. Þá verða þeir sælu dagar Sjálf- stæðisflokksins, sem hafa staðið yfir í könnunum að undanförnu og mælt flokkinn með hreinan meirihluta í Reykjavík, að öllum líkindum langt að baki. Baráttan mun standa um það hvor flokkurinn verður stærri, Samfylking eða Sjálfstæðisflokkur. Hvor fær 6-7 borgarfulltrúa og um- boð til að mynda meirihluta í borg- inni. Það verða líklega vonsvikin augu særðra Sjálfstæðismanna sem horfa öfundaraugum yfir vinstri kantinn að þeirri orrustu lokinni. Davíð mistókst sem sagt það sem til stóð að gera og blés þess í stað nýju lífi í átökin á milli stóru flokk- anna tveggja. Alveg óvart. Hann bara stóðst ekki mátið. Freistinguna sem fylgdi stóra sviðinu í síðasta sinn. Siðan féll tjaldið á foringjann og átök turnanna tveggja geisa af meiri hörku og heift en nokkru sinni fyrr. Höfundur er þingmaður Samfylking- arinnar. Eftir að leðjuslettunum í kringum Davíð Oddsson, fyrrverandi for- mann og nýjasta Seðlabankastjóra Sjálfstæðisflokksins, linnti á fundi flokksins um helgina er forvitnilegt að velta því upp hvernig svið stjórn- málanna lítur út. Fyrir síðustu kosn- ingar var gjarnan talað um turnana tvo: Samfylkingu og Sjálfstæðis- flokk. Þær kosningar og aðdragandi þeirra var sannkallað tveggja turna tal. At sem endaði með því að Sam- fylkingin jók fylgi sitt um 5% á lands- vísu, vann fyrsta sætið í Reykjavík norður og í Suðurkjördæmi en Sjálfstæðisflokkurinn fékk á hinn bóginn sína verstu útkomu frá 1987 þegar Borgarflokkurinn klauf fylgi hans í herðar niður, eftir að vinsæll ráðherra flokksins var látinn taka pokann sinn. Landslagið er gjörbreytt frá því sem áður var. Annar flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn getur loksins myndað tveggja flokka stjórnir og í fyrsta sinn frá lýðveldisstofnun er kominn raunhæfur valkostur til hliðar við Sjálfstæðisflokkinn um forystu íslenskra stjórnmála. Þeir eiga sviðið ekki lengur einir og það kom skýrt fram í ræðu Davíðs Odds- sonar. Þar talaði skelkaður maður og ósáttur. Enda má hann vera það. Byssum beint að Samfylkingu Davíð Oddsson ætlaði svo sannar- lega að nota síðustu sýninguna til að slæma þéttu höggi á höfuðandstæð- inginn. Nú skyldu Ingibjörg Sólrún og Samfylkingin finna til tevatnsins með afgerandi hætti. En úr varð vindhögg sem ég er sannfærður um að kemur Samfylkingunni prýði- lega á pólitíska vellinum. Það heitir að falla á eigin bragði. Fyrir utan það að ummæli Davíðs og uppnefni um Samfylkinguna eru ekkert annað en aumkunarvert tuð þá blés hann nýju lífi í pólarisering- una sem átti sér stað með tilkomu Samfylkingarinnar. Aðrir flokkar eða forystumenn íslenskra stjórn- mála voru ekki ummæla verðir í huga formannsins fráfarandi. Björgvin G. Sigurðsson Öllum byssum er beint að Sam- fylkingunni og hennar forystu og Samfylkingin er örvum glöð og tek- ur bardaganum fagnandi. Orrustan stendur á ný á milli tveggja turna: Samfylkingarinnar og Sjálfstæðis- flokksins. Aðrir hverfa í skuggann og skipta litlu máli. Á milli 70-80% kjósenda eru líklegir til að taka afstöðu á milli turnanna tveggja. Þetta óttast líka forystumenn litlu Klippt & skoríð Ekki verður annað séð en að sjálfstæð- iskonur geti vel unað við sinn hlut á landsfundinum um helgina, því fyrir utan það að varaformaðurinn er kvenkyns, vekur sérstaka athygli að af ellefu miðstjórn- armönnum, sem valdir eru af landsfundi, eru niu konur. Þá er spurning hvort karlar í Sjálf- stæðisflokknum óski eftir því á næstunni að þeirra hlutur verði réttur. Einn af nýju mið- stjórnarmönnunum er Þorbjörg Helga Vigfús- dóttir, sem hlýtur að líta á kjörið sem gott vega- nesti í prófkjörsbaráttu, en hún sækist eftir 4- sætinu á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík á komandi vori. „ Tími er til kominn ai blaðamannafélagið endurskoSi [siðajreglursínarog taki tillit til gamalla og nýrra sjónarmiða um ágenga blaðamennsku. Á málþingi félagsins um helg- ina kom fram, að allir pallborðsmenn töldu tíma vera kominn á slíka endurskoðun, sem gæti sameinað blaðamenn að nýju." JónasKristjánsson, ritstjóri DV i leiöara, 17.10.2005. B , ragð er að . þá barnið finnur, en vandinn er sá að Jónas telur Blaða mannafélagið eiga að finna nógu lágan samnefnara til þess að blaðamenn DV geti haldið áfram iðju sinni óá- reittiraf siðanefnd. Jamm, efaðeins hegningar- lögin væru ekki svona ströng væri Lalli Johns örugglega með hreint sakavottorð. klipptogskorid@vbl.is lorgunblaðið tók fyrir nokkrum árum upp stífar reglur um lengd l aðsendra greina og brá jafnframt á það ráð að birta sumar greinar aðeins á vef blaðsins, með tilvísun í papplrsútgáfunni. Eink- um hefur verið brugðið á þetta ráð gagnvart skipulögðum greinaskrifum þrýstihópa í til- efni átaksdaga, prófkjörsfram- boða og ámóta, sem út af fyrir sig er þakkar- vert. Hins vegar verður ekki annað séð en að Moggi sé að bakka í þessari afstöðu sinni, því nú birtast á síðum blaðsins skipulögð greina- skrif undir sérhaus, en það er kvennafrídagur- inn, sem hlýtur þessa upphefð.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.