blaðið - 29.10.2005, Page 6

blaðið - 29.10.2005, Page 6
6 I IWWLEWDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 I blaöiö Hátt í 70 börn fæðast árlega með hjartagalla Misjafnt hvort skólar hœta upp tapaðan námstíma vegna aðgerða Nokkur hjartveik böm skemmta sér f haustferð Neistans Guðrún Bergmann Franzdóttir, varafor- maður Neistans Árlega fæðast á milli 60-70 börn með hjartagalla hér á landi eða um 1,5% barna. Tæplega helmingur þess- ara barna þarf að gangast undir að- gerð af einhverju tagi og þriðjungur þeirra er framkvæmdur erlendis. Hjartveik börn geta því misst heil- mikið úr skóla án þess að njóta skóla- kennslu á spítölunum og skiljanlega getur þetta háð námsferli þeirra. Guðrún Bergmann Franzdóttir, varaformaður Neistans, styrktarfé- lags hjartveikra barna, segir að það sé mjög misjafnt hvort skólar bæti börnunum upp þann tíma sem þau missa úr skólunum. „Ég veit ekki eftir hverju það fer en það getur far- ið eftir bæjarfélögum. Þetta kemur smátt og smátt og verður eflaust mjög fínt eftir nokkur ár,“ segir Guð- rún og bætir við að nauðsynlegt sé að opna umræðuna. Sum börn glíma viö hjartagalla alla ævi I gær var málþing um skólagöngu hjartveikra barna í Gerðubergi og tilgangurinn var að leiða saman sér- fræðinga úr skólakerfinu og foreldra í tilefni tíu ára afmælis Neistans. Guðrún segir að það þurfi að vera meira upplýsingaflæði til kennara, foreldra og hjúkrunarfræðinga í skól- um. Að sama skapi segir Guðrún að það sé í raun ekki verið að kalla eftir breytingum heldur góðum skilningi og þekkingu hjá skólastjórnendum, kennurum og öðru fólki. „Þannig að skólarnir viti um þessi veiku börn, hvað ber að varast ef eitthvað kem- ur upp á og hvert þeir eiga að leita,“ segir Guðrún. Börn sem eru með algengustu hjartagallana fara í aðgerð á Islandi en börn með sjald- gæfari hjartagalla fara í aðgerðir til Boston. Samkvæmt Guðrúnu er ein aðgerð oft nægileg en önnur börn þurfa að fara mun oftar. Að sama skapi fer það eftir sjúkdómum hvort börnin þurfa að glíma við hjartagall- ana alla ævi eða ekki. ■ Dómsmál DV dæmt fyrir meiðyrði Mikael Torfason, ritstjóri DV, og Illugi Jökulsson, fyrrum ritstjóri, voru dæmdir fyrir meiðyrði í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær vegna ummæla sem birtust á forsíðu blaðsins um Ásmund Gunnlaugsson, jógakennara. Ritstjórarnir voru dæmdir til að greiða 50 þúsund krónur hvor auk 200 þúsund krónur í miskabætur.Um var að ræða forsíðu DV frá 8. október á síðasta ári þar sem birtist stór mynd af Ásmundi í fylgd lögreglumanna en ákæranda þótti texti sem fylgdi með myndinni hafa falið í sér meið- yrði. 1 yfirlýsingu ffá DV sem send var út í gær kom fram að blaðið hyggist áfrýja dómnum. Verslunareigendur og útstillingahönnuði ALLT FYRIR JOLAUTSTI • fni • pappír • boröar • slaufur • púðar • gluggaskreytingar • jólaskraut • gjafapokar jólaseríur * kerti • silkiblóm • greinar • jólatré • kertastjakar • jólakúlur *dúkar blómaskreytingar • greinar • pakkaskrai^t • gjafabðnd • servéttur • ðskjur • kransar • Melabraut 19 • 220 Hafnarfjörður • Sími 575 0200 • danco@danco.is DANCO HEILDVERSLUN Flutt í Mörkina 1 Árleg bókaútsala SKJALDBORGAR hefst 28. október 2005 Eitthvað fyrir alla. OP'Ð'- 9-A7 Verð í algjöru lágmarki og bónus við magnkaup. '°-17 Gríptu bókina, jólin nálgast. LaugafðaS3 SunnudaS8 13-17 Skjaldborg - Mörkinni 1 - sími: 588 2400 Netfang: skjaldborg@skjaldborg.is Markaðsverðlaun ÍMARK 2005 afhent Kona valin markaðsmaður ársins í fyrsta sinn í 15 ár Svanhildur Konráðsdóttir tekur við verðlaunum af Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta fslands. Svanhildur Konráðsdóttir var val- in markaðsmaður ársins 2005 af iMARK, félagi íslensks markaðs- fólks, við hátíðlega athöfn á Apótek- inu í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem konu er veitt þessi verðlaun í 15 ára sögu verðlaunanna. Síminn var val- inn markaðsfyrirtæki ársins 2005 en auk þess voru Stöð 2 og CCP til- nefnd til verðlauna. Fram kom að þessi fyrirtæki hafi sýnt frábæran árangur hvert á sínu sviði. í máli Elísabetar Sveinsdóttur, stjórnarformanns í iMARK, kom fram að markviss stefna Símans í markaðsmálum og góður rekstrar- legur árangur haldist í hendur þvi á fyrstu 6 mánuðum þessa árs var hagnaður Símans nærri milljarði hærri en á sama tíma í fyrra. Fyr- irtækið var síðan selt á árinu fyrir metverð. Svanhildur Konráðsdóttir hefur meðal annars unnið við fjöl- miðla, sem kynningarstjóri Reykja- víkur, stýrt Höfuðborgarstofu og í dag er hún sviðsstjóri Menning- ar-og ferðamálasviðs Reykjavíkur- borgar. Formaður ÍMARK, Ingólf- ur Guðmundsson, sagði Svanhildi vera mikla markaðsmanneskju og öflugur stjórnandi sem sýni frum- kvæði. m Blaðið/Frikki Frú Vigdís Finnbogadóttir opnaði Btómaval formlega i gær en verslunin er flutt i stærra og glæsilegra húsnæði að Skútuvogi 16.1 dag verður kveikt á öllum jólaljósum Blóma- vals við hátíðlega stund og meðal annars verður kveikt á stærsta jólatré landsins sem er 17 metrar á hæð. Barnabókahöfundar lesa upp úr bókum sfnum fyrir börnin og boðið verður upp á heitt kakó og vöfflur

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.