blaðið - 29.10.2005, Page 10

blaðið - 29.10.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR LAUGAEDAGUR 29. OKTÓBER 2005 blaöiö Börn á bak við rimla Fangelsisyfirvöld í Svíþjóð munu hugsanlega leyfa karlföngum að vera með ungabörn sín innan fang- elsismúranna. „Það myndi verða möguleiki á þessu fyrir karlmenn en aðeins í undantekningartilfell- um þegar félagsmálayfirvöld telja að það sé barninu fyrir bestu,“ sagði Elisabeth Lager, talsmaður fangels- isyfirvalda. „Það yrði ekki réttur þeirra heldur aðeins möguleiki.“ Aðeins fær um tugur kvenfanga forsjá yfir börnum sínum innan sænskra fangelsa. Það er ekki af jafn- réttissjónarmiðum sem karlmönn- um verður hugsanlega veittur þessi möguleiki heldur verður það gert í því skyni að lágmarka áhrif fangels- isvistar foreldra á börnin. Eftir að þau hafa náð eins árs aldri er börn- um ekki leyft að búa bak við rimla. Fangelsismálayfirvöld leggja einn- ig til við dómsmálaráðuneytið að í fleiri fangelsum verði komið upp íbúðumþarsem börnum fanga verði boðið upp á að heimsækja foreldra sína við heimilislegri aðstæður. ■ Sænskir karlfangar munu hugsanlega eiga möguleika á þvf aö vera með ung börn sín meö sér f fangavistinni. Kanadískur frumbyggi stfgur dans innan um fjallalögreglumenn á minningarathöfn sem haldin var f Zillebeke, nálægt Ypres f Belgíu. Athöfnin var haldin til að minnast kanadískra hermanna af indíánaættum sem féllu f Evrópu í heimsstyrjöldunum tveimur. Minningar- athöfnin stendur alla helgina. Kynlíf Morð. Dulúð. Velkomin í partýið Glettilega góð og frumleg spennugrínmynd með töff leikurum. Robert Downey Jr. 1 Vai | Kilmer Frá h.öfundi Lethal Weapon KOMIN í BÍÓ! Berlusconi hugs anlega ákærður Silvio Berlusconi, forsætisráöherra Ítalíu, á enn á ný yfir höfði sér ákærur vegna spilling- armála. Vitnaleiðslur hófust í gær fyrir dóm- stól í Mílanó sem munu leiða í ljós hvort rétta þurfi yfir Silvio Berlus- coni, forsætisráðherra Ítalíu, vegna ákæra um spillingu. Dómstóllinn mun einnig kveða á um hvort rétta þurfi í máli 13 annarra ásamt Berlus- coni vegna meintra skattsvika, fjár- dráttar og peningaþvættis. Meðal þeirra sem rannsóknin beinist að er breski lögfræðingurinn David Mills sem er eiginmaður Tessu Jowell, ráð- herra í bresku ríkisstjórninni. Allir neita sakargiftum og var talið ólík- legt að þeir yrðu viðstaddir vitna- leiðslurnar í gær. Saksóknarar óskuðu eftir því í apríl á þessu ári að forsetinn og félag- ar hans yrðu ákærðir eftir rannsókn á fjölmiðlafyrirtæki hans sem stað- ið hafði í fjögur ár. Fyrirtæki hans, Mediaset, er gefið að sök að hafa keypt sýningarrétt á kvikmyndum en gefið upp rangar kostnaðartölur til að fá skattalækkun. Þá er forsætis- ráðherrann ennfremur sakaður um að hafa flutt um 280 milljónir evra frá fyrirtækinu til fyrirtækja í eigu barna sinna. Ekki í fyrsta sinn fyrir rétti Silvio Berlusconi hefur áður komið fyrir dómstóla í Mílanó. Að minnsta kosti sjö sinnum hefur verið réttað yfir honum vegna ákæra um spill- ingu í tengslum við viðskiptaumsvif hans en aldrei hefur hann þó verið afdráttarlaust dæmdur sekur og í flestum tilfellum hefur hann verið sýknaður af ákærum. ■ Frúarkirkjan vígð á ný Endurbygging Frúarkirkjunnar í borginni Dresden í Þýskalandi, sem staðið hefur í rúman áratug, er nú loksins lokið og verður hún formlega vígð á sunnudag. Kirkjan, sem er í barokkstíl, var lögð í rúst í loftárásum bandamanna í febrúar árið 1945, nokkrum mánuðum áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk í Evrópu. Að minnsta kosti 35.000 manns fórust i loftárásunum en þýsk yfirvöld telja að mun fleiri hafi farist eða allt að 100.000 þar sem mikið hafi verið um flóttafólk í borg- inni þegar loftárásirnar voru gerð- ar. Endurbygging kirkjunnar hefur mikið táknrænt gildi fyrir Þjóðverja og sagði þýska tímaritið Der Spiegel að vígsla kirkjunnar væri „tákn um siðfágaða þýska þjóðernisást." Kommúnistastjórnin í Austur- Þýskalandi lét endurbyggja nokkr- ar merkar byggingar í borginni en í meira en hálfa öld sátu sótsvartar rústir kirkjunnar óhreyfðar á sínum staðeinsogskuggalegurminnisvarði um stríðið. Það var ekki fyrr en árið Uppgerð hinnar glæsilegu Vorrar frúarkirkju í Dresden er lokið og verður hún vígð á ný á sunnudag. 1994, fimm árum eftir fall Berlínar- múrsins, að endurbygging hennar hófst. Verkefnið kostaði alls um 180 milljón evrur (rúma 10 milljarða ís- lenskra króna) og lagði þýska ríkið til fjármagn til byggingarinnar auk þess sem alþjóðlegri fjársöfnun var hrint af stokkunum. Búist er við að um 100.000 manns verði við vígslu kirkjunnar á sunnudag. ■ ***** Hr*^£***** ********************* ■BlssMf^^i1! . Iw'Ri ^jJPPflljÓÐFÆRAVERSLUN Þjóðlagagítar Rafmagns nVDVD Konnslumyndbandi yy MacjnS Poki Kr. 12.900,- CH>ið; Mán-Fös; 10-18 Lau: 11-16 í MAPEX Trommusett * * Frá kr. 43.900,- Kr. 22.900,- ns® m- ELECTRIC GUITAR 8 Stórhöfða 27 - Slmi: 552-2125 • www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.