blaðið - 29.10.2005, Síða 46

blaðið - 29.10.2005, Síða 46
461 FÓLK LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER blaöið SKÆLBROSANDI í BYLNUM Smáborgarinn kunni sér ekki kæti þegar hann leit út um eldhúsglugg- ann í gærmorgun, íklæddur sloppi og bleikum inniskóm. Eins og svo margir Reykvíkingar varð það fyrsta sem fyrir augu Par þann morguninn fyrsta snjó- koma vetrar í höfuðPorginni. Það var þó ekki fyrr en Smáborgarinn mætti til vinnu að hann gerði sér grein fyrir muninum á því sem Smáborgarinn sá út um eldhúsgluggann sinn og því sem samstarfsmennirnir sáu út um sína eldhúsglugga, þó að vegalengdin milli glugganna sé I raun ekki svo löng. Samstarfsfólkið leit út og sá kulda, það sá snjóinn feykjast I hálsmálið og fest- ast á rúðum bílsins sem sat saklaus í bílastæðinu. Það sá fyrir sér geymsl- una sem hafði gleypt rúðusköfuna I vor og hrollinn sem myndi hljótast af því að skafa bílrúðurnar. Smáborgarinn sá hins vegar gleði út um eldhúsgluggann, hann sá snjóinn festast í görðunum, börnum á öllum aldri til mikillar gleði. Hann sá snjókarla og -kerlingar fyrir sér hjá snjóhúsum og snjóslag við nágrannana. Hann sá bílinn fyrir sér drekkhlaðinn af snjó- brettum og skíðum (og heitu kakói fyrir hádegismatinn). Þið verðið að skilja að Smáborgarinn er nefnilega í eðli sínu einstaklega bjartsýnn og hefur gaman af öllu. Hann rifjar reglulega upp setningu sem datt upp úr félaga hans í slagviðri fyrir nokkrum árum; ,Ég hata veður'. Þetta er eins langt frá hugsunum Smá- borgarans og hægt er því hann elskar fjölbreytnina sem einkennir ísienskt veðurfar og samræðurnar sem oftast fylgja í matartímum. Smáborgarinn lít- ur frekar upp til orða manns eins sem rætt var við í sjónvarpsfréttum Stöðvar 21 vikunni. Sá sagði að það væri ekkert til sem héti slæmt veður, aðeins illa klætt fólk. HVAÐ FINNST ÞÉR? Þorsteinn V. Jónsson, veðurfrœðingur Hvað finnst þér um að veturinn skuli vera kominn með tilheyrandi hörku? „Mér lfst nú bara vel á hann og er töluvert ánægður með að veturinn skuli genginn í garð. Ég kann mjög vel við vetrartímann og það eru margar ástæður fyrir því. Það getur verið mjög huggulegt að vera inni í hlýjunni í myrkrinu og kuldanum. Það má ylja sér við ýmislegt, til dæmis kakóbolla, kaffibolla eða eitthvað annað. Veturinn er líka fínn að því leyti að það er alltaf hægt að klæða af sér kuldann. Það er verra með hitann. Hann klæðir maður ekki af sér né flýr hann. Ég held nú að það sé ekkert óvenjulegt þó það snjói svolítið í lok októbermánaðar. Ég man nú reyndar ekki mjög vel hvernig veður hafa verið undanfarin ár en þessi stormur er ekkert óvenju- legur að mínu mati. Stökustund í umsjón Péturs Stefánssonar í síðasta þætti misritaðist fyrsta hending í vísunni „Flestir stóðu fast í mót“ og varð óvart „Margir stóðu fast í mót“ sem er sjáanleg vitleysa og er beðist velvirðingar á því. V.L. botnar: Upp til heiða ýmsir skeiða ogpar veiða aœgriti löng. Rjúpnabreiður suma seiða, að sjá þar reiðarmikilföng. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd: Murtur deyða oggirni greiða, grettir reioa háttpar stöng. Hallberg Hallmundsson: Þarflaust meiða dýr og deyða, drussum reiða matarföng. Grétar Ingvarsson, Akureyri: Til að eyða lífsins leiða leti og neyð með byssu ogstöng. Hilmar H. Svavarsson: Vilja eyða vetrarleiða, við að seiða fisk á stöng Auðunn Bragi Sveinsson: Skotum eyða, skolla devða, skjótt svo reiða heim stnföng. Jón Hjörleifur Jónsson: Rjúpnabreiður bragna seiða bratta leið um fjalla göng. M.E.B.: Á sig reiða, rjúpu að seiða, reifir greiðaúr matarþröng. Magnús Hagalínsson: Víð er breiða vatna leiða í vökum seiðafisk á stöng. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd botnar: Þó lífsins tími líði hratt, lítum fram á veginn. Böl er á við aukaskatt að eldast niðurdreginn. V.L.: Tökum strax vorn staf og hatt, stöndum sólarmegin. Hallberg Hallmundsson: Þar við blasir segi égsatt siðleysi beggja megin. M.E.B.: Þaðýmsum reynist cerið bratt því eflaust veldur treginn. Finnur Sturluson: Þó fjallið virðist blautt og bratt þá birtir hinu megin. Auðunn Bragi Sveinsson: Ogvið greiðum okkarskatt ennþá,-nœsta fegin Jón Hjörleifur Jónsson: Anaartakið enginn batt né endurheimtifeginn. Jón Hjörleifur bætir við Anaartakið eitt ogsér enginn náði’að líta, í eðli sínu innstþó ber eilífð sem má nýta. Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd yrkir: Sprakk í sundur sitt á hvað sameiningarblaðran. Undan hrökk í auman stað yfirráðanaðran. áfram yrkir Rúnar: Blöðru sem hér sundur sprakk svört afandúð manna, valfrelsis með vopni stakk vilji kjósendanna. Sigrún Haraldsdóttir yrkir: Sjaldnast neitt á karla kíki kann mér hóf íflestu. Alveg laus við astarsýki -eða svona’að mestu. Grétar Ingvarsson, Akureyri yrkir: Nú erum við loksins laus við lítilmennið blanka með skítlegt eðli, úfinn haus inn í Seðlabanka. Davíð Hjálmar Haraldsson, Akureyri yrkir að gefnu tilefni: Oft má nota útlentþý enda kemst í vana, Kínverjum að kveikja í ogkýla Pólverjana. Skagstrendingar gerðu grín að Hallbirni Hjartarsyni. Auðunn Bragi yrkir: Skagstrendingar gerðu grin að honum, gramdistþetta Hallbirni að vonum. Þá gleymdir eru allir þessir menn, andi Hallbjörns veit ég, lifir enn. V.L. yrkir: Fljóðin blanda mætiu mér mjöðinn andans búna. Ljóðin stranda. Andinn er eitthvað vandur núna. Bóklestri barna og ungmenna fer hrakandi. Auðunn Bragi yrkir: Börnunum leiðast bœkurnar, og bækur lesa tregar. Ja, það er afsem áður var; -en eru þær læsilegart Fyrripartar: Þó vetrartíð sé víða blíð, þá veit ég hríðar síðar. V.L. sendir fyrripart: Kvennadagsins djarfa lund, dável körlum sýndi viljann. Botnar, vísur og fyrripartar sendist til: stokustund@vbl.is eða á Blaðið, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur ORÐLAUS, MAC og EMM kynna: SPENNANDI OG ÖÐRUVÍSI NÁMSKEIÐ í FÖRÐUN Föröunarmeistarar frá MAC og kennarar frá EMM school of make up kenna þér öll undirstöðuatriði í förðun ásamt nýjustu tískustraumum. NÁMSKEIÐ Tvö kvöld: 31.okt og l.nóv frá kl: 19.00-23.00 Kennarar: Sóley Ástudóttir og Margrét R. Jónasardóttir Skráðu þig með því að senda e-mail á ordlaus@ordlaus.is eða í síma 517-1070 VERÐ AÐEINS 23.500 KR. innffalið I verði er: Kennsla, kennslugögn, facechört, Mac snyrtivörur og óvæntur glaðingur errm eftir Jim Unger 1-12 O Jim Unger/diGt. by Uniled Media, 2001 HEYRST HEFUR... Yfirmenn Símans voru boð- aðir til fundar í Bláa lóninu fyrir skömmu þar sem farið var yfir rekst- urinn. Með nýjum herrum koma nýir siðir - siðir sem gamlir ríkisstarfsmenn eiga erfitt með að skilja. Þann- ig voru gefin ákveðin fyrirmæli um niðurskurð í flestum deild- um og mun mörgum þykja nóg um. Uppsagnir eru þegar hafn- ar hjá fyrirtækinu og miðað við stefnuna sem búið er að taka má búast við að þeim eigi eftir að fjölga fram til jóla. Samkeppnin á bygginga- vörumarkaðinum er gíf- urlega hörð eins glöggt hefur komið fram að undanförnu. Deilurnar um verðverndaraug- lýsingarnar hafa A''kristallað þessa BYKO niiklu hörku og r\ / {ljóst er að enginn kærleikur er með BYKO og Húsa- smiðjunni þessa dagana. Ásdís Halla Bragadóttir hefur óneit- anlega stimplað sig inn sem sterkur stjórnandi, en margir höfðu í upphafi efasemdir um að byggingavörugeirinn hent- aði henni, enda viðurkenndi hún í upphafi að hún þekkti varla nagla í sjón... Hún er hins vegar fljót að læra. Símon Birgisson, sem átt hef- ur mörg helstu „skúbb“ DV undanfarin ár, mun vera hætt- ur á því blaði og kominn yfir á Hér og nú. Símon þessi hefur vægast sagt verið umdeildur á undanförnum árum og þykir j ansi oft hafa ' farið hressilega yfir strikið í umfjöllun sinni um nafngreinda einstaklinga. Hvaða áhrif þetta hefur á DV skal ósagt látið, en rétt er að benda á að Eiríkur Jónsson er enn þar við störf. Símon mun væntanlega einbeita sér að fræga og fína fólkinu á næst- unni. Glæpasagnaunnendur bíða í ofvæni eftir mánudegin- um en þá verður miðnæturopn- un í Pennanum þegar nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, Vetrarborgin, kemur út. Athygli vekur að gamli blaðamaðurinn B**' jmtJM Arnaldur virðist r sérlega fjölmiðla- fælinn. Þannig I veitti hann að- eins tvö viðtöl fyrir síðustu jól og óvíst er hversu mörg þau verða að þessu sinni. Útgefandi hans mun ekki vera hrifinn af þessari tregðu metsöluhöfund- arins.Þá má ekki gleyma því að þetta virðist engin áhrif hafa á söluna - bækurnar eru farnar að auglýsa sig sjálfar. m Olafur Teitur Guðnason, blaðamaður á Viðskipta- blaðinu, gerir að umtalsefni villandi framsetningu Frétta- blaðsins á niðurstöðum les- endakannana. Þannig er hlut- föllum í súluritum blaðsins breytt með það fyrir augum að stækka köku Baugsmiðlanna á kostnað Morgunblaðsins og Blaðsins. Með þessu er verið að blekkja, bæði auglýsendur og almenning. Aukin samkeppni kallar auðvitað á ný og áhrifa- ríkari meðul... „Er rétt athugað að þér hafið ekki reynslu í lýtalækningum?"

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.