blaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 blaöiö SUSHI OPNAR 1. DESEMBER [LÆKJARGATA] Sjálfstœðismenn í Hafnarfirði Afgerandi sigur Haraldar Ólasonar Góð þátttaka í prófkjöri sjálfstœðismanna í Hafnarfirði. Valgerður Sigurðardóttir tekur ekki annað sœtið. Haraldur Þór Ólason, sigurvegari prófkjörs Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, telur listann vera öflugan og er bjartsýnn á framhaldið. Atvinnuleysi Yfir 1.500 á skrá Rétt rúmlega 1.500 einstak- lingar eru atvinnulausir á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir samkvæmt tölum á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Konur eru nokkuð fleiri meðal atvinnulausra, þær eru 780 á móti 744 körlum. Ef einstaka svæði eru skoðuð kemur í ljós að aðeins 12 karlmenn eru atvinnulausir á öllum Vestfjörðum, en þar ganga hinsvegar 82 konur án atvinnu um þessar mundir. Alls eru tæplega 2.600 einstaklingar án vinnu um þessar mundir, þar af eru rúmlega 1.100 karlmenn og tæplega 1.500 konur. Atvinnuleysi mælist að- eins um 1,4% þessa dagana og hefúr hefur ekki verið minna árum saman. Umferð Banaslys i Borgarfirði Karlmaður á sextugsaldri lést þegar bifreið sem hann ók lenti út í Norðurá í Borgar- firði um tvöleytið í gær. Svo virðist að maðurinn, sem var á leið suður hafi misst stjórn á bílnum í mikilli hálku með fyrrgreindum afleiðingum. Lögreglan í Borgarnesi ásamt slökkviliði, björgunarsveit og sjúkrabíl voru kölluð út á slys- stað en maðurinn var látinn þegar að var komið. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi var mikil hálka á slysstað en veður annars gott og skyggni ágætt. Vont veður var víða á landinu í gær og hálkublettir á vegum landsins. Slysið í Borgarfirði í gær er fimmtánda banaslysið í umferðinni á þessu ári sem kostað hafa um 18 mannslíf. Haraldur Þór Ólason bar sigur úr býtum í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði sem fram fór á laugardaginn. Valgerður Sigurðar- dóttir sem einnig sóttist eftir fyrsta sæti á listanum hafnaði í öðru sæti og lýsti því yfir eftir að niðurstöður lágu fyrir að hún hyggðist ekki taka annað sætið og mundi hverfa af vett- vangi bæjarmála. Hverfur af vettvangi Á kjörskrá voru 3.350 manns en alls tóku um 1.800 j>átt í prófkjör- inu. Haraldur Þór Olason fékk 921 atkvæði í fyrsta sæti og Valgerður Sigurðardóttir fékk 791 atkvæði í 1-2. sæti. Rósa Guðbjartsdóttir hafnaði í þriðja sæti, Almar Grímsson í því fjórða, María Kristín Gylfadóttir hafnaði í fimmta sæti, Bergur Ólafs- son í sjötta sæti og Skarphéðinn Orri Björnsson í því sjöunda. Sjálfstæðis- flokkurinn er nú með fimm bæjar- fulltrúa en Samfylkingin með sex. Nokkuð mikið var um nýskráningar í flokkinn fyrir prófkjörið eða um Vaxandi umræða um skipulagsmál Reykjavíkur hefur jafnan verið tekið fagnandi af borgarfulltrúum, en á hinn bóginn virðist nú æ harðar deilt á borgarskipulagið. Áform Reykjavíkurborgar um lagningu Sundabrautar hafa þannig mætt víð- tækri andstöðu íbúa í þeim hverfum, sem mestra hagsmuna eiga að gæta vegna Sundabrautar. Á kynningarfundi borgarinnar um málefni Sundabrautar í síðustu viku kom nær einvörðungu fram gagnrýni á áform borgarinnar, en á þriðja hundrað manns sótti fundinn. Ibúasamtök Grafarvogs lýstu miklum vonbrigðum með vinnu- brögð borgarinnar og sögðu tal um íbúalýðræði lítið annað en innan- tóm orð. Guðmundur Jóhann Ara- son, formaður nýstofnaðra Ibúasam- taka Laugardals, sagði á fundinum að ekkert samráð fælist í því að bjóða einn kost til umræðu og taldi jafnframt að í undirbúningsferlinu hefði þurft að taka fleiri kosti til greina en gert var. Sérstaklega er mikill kurr í þrettán hundruð manns. Valgerður Sigurðardóttir er ánægð og þakklát fyrir þann stuðning sem hún fékk en telur eðlilegt að hún hætti afskiptum af bæjarmálum. „Ég ákvað að gefa íbúum Vogahverfis og við Klepps- veg, þar sem ráð er gert fyrir því að Sundabrautin komi á land skammt frá Kleppi, en ljóst er að þar þarf að byggja veruleg umferðarmannvirki til þess að koma umferðinni áfram. Betri byggð herjar á borgina Færsla Hringbrautarinnar hefur ekki sætt minni gagnrýni, en veru- legar umferðartafir vegna hennar eru orðinn fastur liður morgna og síðdegis. Samtök um betri byggð börðust árum saman gegn færslu Hring- brautarinnar og telja þau verstu skipulagsmistök í Reykjavík fyrr og síðar. Um helgina lýstu þau furðu á ummælum Dags B. Eggertssonar, borgarfulltrúa, í Morgunblaðinu, að „útfærsla Hringbrautar [geri] ráð fyrir því að hægt sé að byggja yfir hana þegar byggð rís í Vatns- mýri“ og kröfðust frekari skýringa á orðum hans. „Eins og hver maður getur skilið með því að skoða verk- summerkin við Vatnsmýrina er ekki mögulegt að byggja 6 m. háan og 30 m breiðan stokkyfir götu, sem kost á mér í fyrsta sætið núna. Ég er búin að vera í öðru sæti síðustu tvö kjörtímabil og vildi bara láta reyna á það hvort ég hefði stuðning. Ég er auðvitað þakklát fólkinu sem studdi er lögð í yfirborð landsins.“ Samtök um betri byggð börðust í 6 ár gegn áformum Vegagerðar- innar um færslu Hringbrautar. Samtökin lögðu fram fjölmargar tillögur, áskoranir, greinargerðir, erindi og kostnaðarmat máli sínu til stuðnings, t.d. um Hringbraut bæði i opnum og lokuðum stokki, til- lögur að niðurfellingu gömlu Hring- brautar, tillögu að mislægum gatna- mig og ég fékk mjög góðan stuðning. En ég tel í kjölfar þeirra niðurstaðna sem liggja fyrir í prófkjörinu mjög eðlilegt að ég hverfi af vettvangi bæj- armála í Hafnarfirði í vor.“ Offljótá sér Haraldur Þór Ólason er ánægður með kjörið og segir það hafa verið afgerandi og telur prófkjörið sýna vaxandi styrk Sjálfstæðisflokksins í bæjarfélaginu. „Mér sýnist að miðað við þá þátttöku og þá bylgju sem við fengum í þessu prófkjöri á móti prófkjöri Samfylkingarinnar þar sem 700 manns tóku þátt, við eiga góða möguleika í vor.“ Hann er ánægður með listann og segir hann einkennast af ungu og dugmiklu fólki. Hann telur þó að brotthvarf Valgerðar komi vissulega til með að veikja hann eitthvað. „Hún gaf út þá yfirlýsingu strax í gærkvöldi eftir síð- ustu tölur að hún væri hætt. Hún átti þarna ágætis stuðning í annað sætið og mér fannst hún hafa verið svolítið fljót á sér,“ sagði Haraldur. ■ mótum við Bústaðaveg og mat á verðmæti landsins. Segja samtökin að viðbrögðin hafi á hinn bóginn láta á sér standa. Betri byggð telur að sínu verri mis- tök séu í uppsiglingu vegna Sunda- brautar. „Þó Hringbrautarklúðrið ætti að vera ráðamönnum víti til varnaðar eru nú í uppsiglingu stór- felld skipulagsmistök, sínu verri, við hönnun Sundabrautar." ■ Kraumandi óánægja vegna skipulagsóreiðu í Reykjavík íbúasamtök deila hart á skipulagsvinnu vegna Sundabrautar og breytingar á Hringbraut sœta œ meiri gagnrýni, Ein af hugmyndunum um hvernig Sundabraut gæti legið yfir Kleppsvík, en nú er helst rætt um að reisa lágbrú á svipuðum stað og þessi svonefnda eyjalausn. ADESSO 2. hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn RETTUR DAGSINS fiskur eða kjöt alla vlrka daga komdu og smakkaðu! opið virka daga 10.00-19.00 laugardaga 10.00-18.00 sunnudaga 11.30-18.00 Sími 544 2332 www.adesso.is (3 HelSsklrt (3 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað ✓ Rlgning, litilsháttar /// Rignlng 1 9 Súld ^ 'í' Snjókoma J Slydda A/ Snjóél Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló Parfs Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublln Glasgow 11 16 04 00 06 04 00 03 06 12 19 03 06 19 02 04 01 09 02 16 08 07 '//<> / // OO éL // / // «r // / // 0 Sjj Slydda Snjóél TjJ eT0 Skúr 3° /// // Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn Byggt á upptýsingum frá Veðuratofu fslands Œf 3° 0 /// // / // O 3° (3 Ámorgun o

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.