blaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 22

blaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 22
30 I ÍPRÓTTIR MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 blaöÍA Körfubolti: Njarðvík sigr- aði í fyrirtækja- bikarnum Úrslitin réðust i fyrirtækjabik- amum (Powerrade-bikarnum) —^ í körfubolta í karlaflokki um helgina þegar undanúrslit og úrslit voru leikin en keppnin fór ffarn í Laugardalshöll.Á fóstudeginum unnu KR-ingar Fjölnismenn og Njarðvíkingar unnu þreytta Keflvíkinga auðveldlega. Það voru þvi Njarðvík og KR sem mættust í úrslitum og þar höfðu ljónin úr Njarðvík betur, 90-78. KR-ingar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu eftir fyrsta leikhluta 19-27 og í hálfleik var staðan 36-44 fyrir ^JCR. En seinni hálfleikurinn var 'eign Njarðvíkinga. Þeir leiddu 58-51 þegar gengið var til fjórða leikhluta og juku forksot sitt þar og unnu eins og áður sagði tólf stiga sigur, 90-78. Friðrik Stefánsson var með 19 stig, 16 ffáköst og 6 stoðsend- ingar fyrir Njarðvík og Jeb Ivey skoraði 20 stig. Brenton Birming- ham var með 19 stig og fyrirliðinn Halldór Karlsson var með 13 stig. Egill Jónasson leikmaður Njarð- víkur sem er 2,16 m á hæð skoraði 9 stig, tók 5 fráköst og varði hvorki fleiri né færri en 9 skot. Hjá KR var Omari Westley með 28 stig og 19 fráköst og var yfirburðarmaður í liði KR en Skarphéðinn Ingason kom næstur Westley með 16 stig. Þá var einnig leikið í undan- úrshtum fyrirtækjabikarkeppni kvenna í körfuknattleik og þar var einnig leikið í Laugardals- höll en úrslitaleikurinn fer fram um næstu helgi. Keflavík leikur þar í úrslitum eftir 78-50 stórsigur á IS og mætir í úrslita- leiknum liði Hauka sem vann Grindavík f hörkuleik, 69-63. Enski boltinn um helgina: Chelsea jók forskot sitt á toppnum n.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í 13- knattspyrnu fór fram um helgina og lýkur reyndar í kvöld með leik Birm- ingham og Bolton og verður leikur- inn sýndur á Enska boltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea sem tók á móti Newcastle en Eiður Smári átti afbragðsleik. Lék allan leikinn og fékk fína dóma í breskum fjölmiðlum. Staðan í hálfleik í var 0-0 en Alan Shearer og Michael Owen voru ekki í leikmannahópi Newcastle vegna meiðsla. Á sjö mfn- útna kafla í upphafi seinni hálfleiks gerðu Chelsea-menn út um leikinn. Joe Cole skoraði á annarri mínútu og Hernan Crespo bætti öðru við aðeins fjórum mínútum síðar. Það var síðan Damien Duff sem skoraði þriðja og síðasta mark leiksins á síðustu mfnút- unni og 3-0 öruggur sigur Chelsea sem jók forskot sitt á toppi deildarinnar er nú með 34 stig en Wigan er í öðru sæti með 25 stig. Wigan tapaði á heimavelli fyrir Ársenal 2-3 og var það fyrsti tap- leikur nýliðanna í deildinni síðan f ágústmánuði. Þetta var aftur á móti fyrsti útisigur Arsenal í deildinni á leiktíðinni en snillingurinn Thierry Henry skoraði tvö af mörkum Arsenal og þar með eru skytturnar komnar í fjórða sæti deildarinnar ellefu stigum á eftir Chelsea. Leikmenn United sýndu klærnar Sir Alex Ferguson og strákarnir hans 1 Manchester United hafa verið mikið í fréttum undanfarna daga útaf Roy Keane fyrrum fyrirliða liðsins sem var rekinn frá félaginu. Búist var við því að það ástand sæti eitthvað í leik- mönnum þegar þeir mættu Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton á The Valley á laugardag. Svo varð nú aldeilis ekki. United-leikmennirnir sýndur svo um munaði klærnar i leiknum og unnu sannfærandi 1-3 sigur þar sem Alan Smith skoraði á 37.mínútu og Hollendingurinn Ruud van Nistelrooy skoraði tvö mörk með fimm mínútna millibili undir lok leiksins. United er því komið í þriðja sæti ensku úvalsdeildarinnar með 24 stig. Ruud van Nistelrooy hefur nú skoraði 10 mörk í deildinni en hann og Frank Lampard leikmaður Chelsea eru markahæstir. Næstir koma Darren Bent hjá Charlton og Thierry Henry með 7 mörk hvor. Liverpool átti ekki f teljandi vand- ræðum með Portsmouth á Anfield og vann auðveldan 3-0 sigur með mörkum frá Boudewijn Zenden, Dji- bril Cisse og Fernando Morientes. Þar með er Liverpool komið í 9.sæti en hefur aðeins leikið 11 leiki. Enn tapa Everton og Sunderland Sparkspekingar á Englandi spá þvf að það syttist í brottrekstur David Moyes framkvæmdastjóra Everton, Alain Perrin framkvæmdastjóra Port- smouth eða Mick McCarthy fram- kvæmdastjóra Sunderland eftir leiki helgarinnar. Þeir töpuðu allir en Sund- erland hefur aðeins unnið einn leik á leiktíðinni og hefur 5 stig í neðsta sæti. Sunderland steinlá á heimavelli fyrir Aston Villa 1-3 þar sem Kevin Phillips, Milan Baros og Gareth Barry skoruðu mörk Villa. Everton lék á útivelli við W.B.A. og þar var um mikinn fallbar- áttuslag að ræða. Piltarnir hans Bryan Robson í W.B.A. gengu yfir slakt Ever- tonliðið og unnu 4-0 þar sem Nathan Ellington skoraði tvö mörk. Þetta þýðir að Everton er í þriðja neðsta sæti og fallsæti með 10 stig og hefur reyndar jafnmörg stig og Portsmouth sem er í sætinu fyrir ofan. Portsmouth hefur hagstæðari markatölu en Birm- ingham er f næstneðsta sæti en þar er farið að hitna heldur betur undir Steve Bruce sem framkvæmdastjóra félagsins. Macnhester City og Blackburn gerðu markalaust jafntefli og Lundúnars- lagur Tottenham og West Ham endaði með 1-1 jafntefli. Mido skoraði fyrir Tottenham eftir um 15 mínútna íeik en Anton Ferdinand jafnaði metin eftir hornspyrnu þegar leiktíminn var kominn rúmar 3 mfnútur framyfir venjuegan leiktíma. Middlesbro tók á móti Heiðari Helgusyni og félögum í Fulham en Heiðar byrjaði leikinn á varamanna- bekknum. Collins John kom Fulham yfir á 9.mínútu og þannig stóðu leikar allt þar til á 64.mfnútu að James Morrison jafnaði metin fyrir Middles- brough en Papa Bouba Diop kom Ful- ham yfir á ný 20 mfnútum fyrir leiks- lok. Yakubu jafnaði metin á ný fyrir Middlesbrough 14 mínútum fyrir leikslok og það var síðan Jimmy Floyd Hasselbaink sem skoraði sigurmark Middlsebrough 6 mínútum fyrir leiks- lok. Heiðar Helguson kom inná sem varamaður í liði Fulham á 78.mínútu. Spœnski boltinn Ronaldinho er án efa sá besti Það er alltaf mikið um að vera á Spáni þegar risaliðin Real Madrid og Barcelona mætast á knattspyrnu- vellinum. Á laugardagskvöld mætt- ust liðin á Santiago Bernabeu-leik- vanginum í Madrid. Að vanda var uppselt og um 100.000 áhorfendur mættu á leikinn og einhver 500 stuðningsmenn Barca voru fyrir aftan annað markið. Frank Rijkaard þjálfari Barcelona var með óvænt út- spil í leiknum og setti hinn 18 ára argentíska snilling Lionel Messi í byrjunarliðið í staðinn fyrir Ludovic Giuly. Þetta virkaði vel og Messi átti mjög góðan leik eins og allt Barc- elona-liðið. Kamerúninn Samuel Eto’o skoraði fyrir Barcelona eftir að- eins fimmtán mínútna leik og þá var alveg sýnt hvert stefndi. Besti kantt- spyrnumaður heims, brasilíumaður- inn Ronaldinho, sýndi svo í tvfgang í seinni hálfleik afhverju hann er álitinn sá besti. Eftir um klukku- stundarleik fékk hann boltann á miðjum vellinum, geystist upp völl- inn með boltann og lék á Sergio Ra- mos og Ivan Helguera varnarmenn Real Madrid eins og þeir væru ekki til og skoraði þetta líka glæsilega mark. Þriðja mark Barcelona og hið seinna frá Ronaldinho kom 13 mínútum fyrir leikslok og þar sól- aði hann Ramos upp úr skónum og skoraði af öryggi framhjá Iker Ca- sillas markverði Real Madrid. Stór- kostlegur leikmaður og áhangendur Real Madrid á vellinum klöppuðu fyrir Ronaldinho eftir að hann skor- aði seinna mark sitt og það segir allt sem segja þarf. 0-3 fyrir Barca og þeir eru í efsta sæti á Spáni með 25 stig en Real Madrid er í þriðja sæti með 21 stig. Það verður að teljast til tíðinda þegar hið mikla sóknar- lið Real Madrid á aðeins tvö skot sem hittir á mark andstæðingsins í heilum leik á heimavelli. Það gerðist á laugardagskvöld en marktilraunir Real Madrid voru í það heila 5 á móti 20 hjá Barcelona. 15% afsláttur af öllum fótboltaskóm hjá okkur í nóvember Láttu gá þig og geröu góö kaup EnSHÍ% BO LTiN Splunkunýr spurningaþáttur um fótbolta, fótbolta og meiri fótbolta. SPARK er óheföbundinn spurningaþáttur um fótbolta sem stjórnaö er af Stefáni Pálssyni sem jafnframt er höfundur spurninga. Honum til aöstoöar er stuðboltinn Þórhallur Dan, knattspyrnukappi meö meiru. Sýndur á SKJÁE//VL//W og Enska Boltanum á föstudögum, kl. 20.00. SKJÁR EINN Laugardaga kl. 22.30 • Sunnudaga kl. 22.30 • Föstudaga kl. 19.30

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.