blaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 blaðiö Albert II. vígður í embætti Mónakófursta Albert II. prins af Mónakó var vígður í embætti fursta síðastliðinn laugardag. Við emb- ættistökuna var margt konungborinna fyrirmenna og þjóðhöfðingja. Prinsar Evrópu- og Afríkuríkja voru þeirra á meðal, sem og prinsar frá Miðausturlöndum. Fyrst gengu gestirtil messu í dómkirkjunni í Mónakó og þaðan í veisluhöld. Á laugar- dagskvöldið var viðhafnarhátíð í óperuhúsi borgarinnar ásamt flugeldasýningu sem var haldin yfirfrægu spilavíti landsins. Nýfrjálshyggju úthýst á Sri Lanka Nýr forseti lofar tígrunum viðræðum Kínaheimsókn Georg W. Bush, Bandaríkjaforseti, hvatti kínverska ráðamenn til að auka frelsi landsmanna, svo sem eins og tjáningarfrelsi, trúfrelsi og pólitískt frelsi en hann er staddur í Peking í opinberri heimsókn. Bush hitti Hu Jintao, forseta Kína í gær- dag í Alþýðuhöllinni í Peking en samræður þeirra snérust um við- skiptahallan milli Bandaríkjana og Kína. Bandaríkjamenn flytja mun meira inn af varningi frá Kína en Kínverjar gera af bandarískum varn- ingi og þrátt fyrir hækkun á gengi kínverska júansins telur Bandaríkja- stjórn að það sé enn of lágt miðað við gengi dollars. Umframhagnaður Kínverja vegna þessa nemur um tvöhundruð milljörðum dollara en Jintao gaf Bush loforð um kaup á 70 Boeingþotum á næstu misserum til að draga úr þessum mismun. Forsetahjónin bandarísku sóttu messu í Gangwashi kirkjunni, til að leggja áherslu á ákall sitt um aukið frelsi til handa Kínverjum, en hún er ein af fimm mótmælendakirkjum i Peking sem hafa starfað án afskipta kínverskra yfirvalda. ■ Kínverska tískuvikan stendur nú yfir en sýningarstúlkurnar á myndinni klæðast hátískulínu hönnuðarins Mary Ma en hún leggur áherslu á íburðamikinn fatnað, skæra liti og vandaða vefnaðarvöru. Nýsettur forseti Sri Lanka, Mahinda Rajapakse, sagði eftir að hann var settur í embætti um helgina að hann hefði allan hug á að halda vopnahlé við tamíla- tígrana en um það var samið fyrir þremur árum. Rajapakse hafði áður gefið út að tígrunum yrði ekkert svigrúm sýnt. Tígrarnir styðja engan Tígrarnir gáfu ekki út stuðningyfirlýsingu við nokkurn forsetaframbjóðanda, sögðu engan forsetaframbjóðandann hliðhollan tígrunum og talið er að þeir hafi komið í veg fyrir kosningaþáttöku á sínu yfirráðasvæði en eftirlitsmenn frá ESB hafa staðfest þann grun að miklu leyti. „Stjórnvöld gátu ekki sett upp atkvæðakassa í tigrasvæðunum því lögreglumenn gættu kassanna og vopnaðir lögreglumenn mega ekki koma inn á tígrasvæðin. Stjórnvöld settu í staðinn upp kjörstaði við öll landamærin en svo kom nánast enginn yfir til að kjósa. Þessi litla kosningaþáttaka hafði áhrif á niðurstöðurkosninganna,“segirHelen Ólafsdóttir talskona friðargæslunnar á Sri Lanka. Kæra kosningarnar Mótframbjóðendur Rajapakse hafa kært kosningarnar vegna þessa en kosningaeftirlit Sri Lanka hefur gefið út að ekki verði kosið á ný á þeim kjörsvæðum þar sem tígrarnir eru ráðandi. Fyrir kosningar gerði Rajapaksesamningviðharðlínuflokka um að ekkert yrði gefið eftir við tígrana og að vopnasamkomulagið yrði endurskoðað. Það gæti þó aldrei orðið einhliða því tígrarnir verða að samþykkja allar breytingar. Margir eru uggandi vegna stuðnings harðlínuflokkana við Rajapakse en eftir yfirlýsinguna um helgina sem var öllu mildari en sá málflutningur sem hann hefur haft uppi í aðdraganda kosninganna er talið að forsetinn hafi gengið á bak orða sinna og svikið flokkana sem hann gerði samkomulag við. Ríkisstjórn Sri Lanka er samblanda kommúnista, þjóðernissinna og búddista en það er talið erfitt verk fyrir jafnaðarmanninn Rajapakse að halda góðri sátt og samvinnu innan hennar auk þess sem hann er andvígur nýfrjálshyggju og er andvígur einkavæðingu fýrirtækja. Það hefur farið illa í viðskiptalífið en þegar úrslit kosninga voru ljós hrapaði gengi fyrirtækja í landinu. Helen segir að í raun sé ekki búist við miklum breytingum eftir kosningarnar. „Við vonumst til þess að hægt verði að koma á mikilvægum viðræðum á milli háttsettra tígra og manna innan stjórnsýslunnar. Það verður að gerast og einnig verður að ráðast í umsvifamikla trúnaðaruppbyggingu þarna á milli. Það eru fyrstu skrefin í átt að því að stoppa drápin í austrinu en það eru pólitísk morð að mestu. Við teljum að báðir aðilar séu ákveðnir í að halda vopnahléið og á meðan svo er höldum við áfram að miðla málum“, segir Helen. ■ Hjálparstarfsmenn leita í rústum lítillar flugvélar sem hrapaði við rússneska bæinn Staroye en hann er um hundrað kílómetrum suðaustur af Moskvu. Átta farþegar voru í vélinni og óttast er að þeir hafi allir látið lífið. Fjöldaslagsmál Talið er að 40 ungmenni hafa slegist hatrammlega á diskótekinu Nelly's í bænum Frederica í Danmörku um helgina. Þurfti lögreglan að óska eftir liðsauka úr nærliggjandi smábæjum til þess að yfirbuga ung- mennin sem voru undir áhrifum alsælu. Það tók 16 lögreglumenn klukkutíma að stilla til friðar og talið að það hafi tafið fyrir að ung- mennin voru undir áhrifum. Kvíðagenið fundið? Breskir vísindamenn hafa uppg- vötað gen sem stjórnar hræðslu- viðbrögðum. I rannsóknum á músum kom í ljós að þær mýs sem skorti genið stathmin sýndu engin hræðsluviðbrögð í aðstæðum sem áttu að vekja hræðslu. Þessi uppgvötun er talin geta varpað ljósi á fælni og kvíðaraskanir hjá mönnum. Rannsóknin gæti einnig flýtt fyrir þróun lyfja sem væru sér- sniðin fyrir hvern kvíðasjúk- ling. Þeir sem að rannsókninni standa setja þó spuringarmerki við hvort kvíði sé eingöngu til kominn vegna innri þátta. Kaupmannahöfn - La Yilla ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn. Tölum íslensku. Sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905 _____www.lavilla.dk • Geymiðauglýsinguna_

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.