blaðið - 21.11.2005, Síða 26

blaðið - 21.11.2005, Síða 26
34 I KVIKMYWDIR MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 blaöiö Matthew McConaughey kynþokkafyllstur Jæja, hver er kynþokkafyllsti mað- urinn á lífi? Maður skyldi ætla að það væri mjög erfitt að finna hann, þar sem Hollywood er full af fal- legum piltum. En tímaritið People á ekki í neinum erfiðleikum með að velja, og fyrir valinu varð Matt- hew McConaughey. Fólki hefur lengi þótt hann sætur, en að hann sé sætari en George og meiri töffari en Orlando eða Johnny? Samkvæmt talsmanni People var engin sam- keppni: „Okkur fannst hann einfald- lega hinn fullkomni pakki.“ Það er öruggt að Penelope Cruz sem er kær- astan hans er á sama máli, en hún kannast við tilfinninguna að vera með sætasta manninum, enda var hún með Tom Cruise sem fékk titil- inn árið 1990. Þeir sem voru einnig tilnefndir þetta árið voru Jake Gyllenhaal, Owen Wilson, Patrick Dempsey og Antonio Banderas. Og svo auðvitað þessir vanalegu Brad, George og Orlando. Orðlaus i þrjú ár Blalii/SteinarHugi Tímaritið Orðlaus hélt upp á þriggja ára afmæli sitt með pompi og prakt á efri hæð Kaffi Sólon um helgina. Þar komu saman ðu yfirlæti. Upphafskonurnar: Hrefna Sverrisdóttir, Steinunn Jakobsdóttir og Erna Þrastardóttir byrjuðu með Orðlaus fyrir þremur árum. Leikkonurnar Brynhildur Guðjónsdótt- ir og llmur Kristjánsdóttir voru hressar. Ný plata með Magnúsi Pór Ný hljómplata með Magnúsi Þór Sig- mundssyni kemur út í dag. Magnús hefur áunnið sér sess sem einn ást- sælasti lagahöfundur þjóðarinnar og samið lög sem jafnt eldri sem yngri kynslóðir íslendinga þekkja vel. Á plötunni Hljóð er nóttin sýnir hann á sér nýja hlið, því lögin er sungin með þeirri hlýju, djúpu rödd sem Magnús notar þegar hann er að semja lögin sín á nóttunni við eldhúsborðið heima í Hveragerði. Segja má að hugmyndin að gerð plötunnar byggi á ofannefndum tveimur meginforsendum. Annars vegar þeim frábæru lögum sem ‘Magnús hefur samið ásamt þeim söngstíl sem hann hefur tamið sér við samningu laganna. Þannig var leitast við að vinna með heilsteypt safn laga og finna útsetningarlega umgjörð sem hentaði. Nokkrir af fremstu tónlistarmönnum landsins voru fengnir til þess að leggja fram hæfileika sína og taka þátt í að móta Róbert Þórhallsson á trommur og slagverk, Stefán Már Magnússon á rafmagnsgítar, Sigurður Halldórs- son á selló, Guðmundur Kristmunds- son á víólu, Samúel Jón Samúelsson á básúnu, Óskar Guðjónsson á tenór- saxófón og Þórunn Antónía syngur. Upptökustjórn og útsetningar á plötunni voru í höndum Jóns Ól- afssonar en Magnús Þór kom einnig að upptöku- stjórninni ásamt því að leika á kassagítar. Þá söng Stefán Hilmars- son með honum í laginu Dag sem dimma nátt, en Stefán er höfundur texta þess lags. Magnús Þór mun halda tónleika ásamt hljómsveit sinni þann 29. nóvember n.k. í Salnum í Kópavogi. heildarhljóm plötunnar. Þeir sem leika á plötunni með Magnúsi eru Jón Ólafsson sem spilar á píanó, orgel og rafpíanó, Birgir Baldursson sem leikur á trommur og slagverk, Róbert Þórhallsson leikur á trommur og slagverk, Vangaveltur um Óskarínn Kvikmyndaáhugamenn í Bretlandi eru þegar farnir að velta vöngum yfir því hverjir munu verða til- nefndir á næstu Óskarsverðlaunahá- tíð og einkum með það í huga hvaða bresku myndir komist á listann. Það eru einkum teiknimyndir sem þeir hafa áhuga á enda eru margir sannfærðir um að myndin Wallace and Gromit: The Curse of the Were- Rabbit muni verða ofarlega enda hefur myndin verið meðal vinsælli myndanna í bióhúsum í Banda- ríkjunum og Bretlandi. Myndin er þegar komin á tíu mynda lista yfir þær myndir sem verða tilnefndar. Lokaniðurstaða um tilnefningar verða tilkynntar 31. janúar. Talið er að myndin muni keppa við mynd- irnar Litli kjúlli, Robots og Tim Bur- ton's Corpse Bride. Óskarsverðlauna- afhendingin mun fara fram þann 5. mars næstkomandi. Tónleikar i plötu- búð Smekkleysu A morgun verða tónleikar með hljómsveitunum Drekka og Vollmar sem munu taka nokkur vel valin lög klukkan fimm síðdegis. Drekka, sem er aukasjálf Michael Anderson eiganda BlueSanct útgáf- unnar, ætti að vera orðinn mörgum tónlistaráhugamönnum kunnugur, enda í fjórða sinn á jafnmörgum árum sem hann heldur tónleika hér á landi. Þrátt fyrir það vita fæstir hverju þeir eiga von á þegar Drekka stígur á svið þar sem tónlist hans byggir á ákveðinni stemningu fremur en uppbyggingu. Justin Voll- mar er á mála hjá BlueSanct útgáf- unni og fæst við lágstemmda og ljúfs- ára þjóðlaga tónlist. Hann nýtur við það aðstoðar vina og vandamanna en að þessu sinni er Nathan bróðir hans með í för en hann mun leika undir. ■

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.