blaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 bla6Í6 ísafjörður: Svipti sig lífi eftir umfjöllun DV Umdeild myndbirtingá manni sem lá undirgrun vegna kynferðisbrota. Alltsem stendur í fréttinni er rétt, segir ritstjóri DV. Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, segir DV ekki hafa brotið neinar siðareglur og að ekki sé hægt að gefa sér það að umfjöllun og mynd- birting hafi valdið því að maðurinn hafi svipt sig lífi. Maður á sextugsaldri svipti sig lífi á Isafirði í gærmorgun. DV birti í gær frétt ásamt mynd á forsíðu þar sem maðurinn er sakaður um kynferð- isbrot gagnvart ungum drengjum. Ásakanir gegn manninum höfðu ekki verið.sannaðar að neinu leyti en hann staðfesti við DV að lögregla hefði gert hjá sér húsleit. Lögreglan á staðnum tjáði sig ekki um málið er DV leitaði staðfestingar á fréttinni og er málið talið hafa verið á frum- stigi. 1 fréttum NFS í gærkvöldi er haft eftir bróður mannsins að frétta- flutningur DV hafi nánast hrakið bróður sinn í dauðann. Erum ekki í dómarahlutverki Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, segist ekki hafa skoðun á því hvort fréttaflutningur DV af málinu og myndbirtingar hafi valdið þessum harmleik. „Við erum ekki í dómara- hlutverki. Við segjum fréttir og þær eru réttar. Það stendur í fréttinni að það sé lögreglurannsókn og að það hafi verið gerð húsrannsókn. Allt þetta er hægt að lesa.“ Jónas telur ekki að siðareglur hafi verið brotnar og segir að DV muni ekki endurskoða fréttastefnu sfna í fram- haldi af þessu máli. „Það er ekkert lagað með því að segja að rétt sé rangt. Ef þið segið frá einhverjum og hann deyr daginn eftir er þá eitthvað siðalögmál brotið? Það er ekkert hægt að gefa sér það að þetta sem gerðist sé bein afleiðing þess sem stendur í blaðinu." Þá segir Jónas DV fjalla mikið um barnaníð- inga og því fylgi viss áhætta. „Við höfum verið með mikið af fréttum af barnaníðingum og ef að við hefðum ekki verið með þær fréttir þá hefði t.d. Thelma Ásdísardóttir ekki getað skrifað sína bók. Þannig að það vorum við sem breyttum því að það var farið að tala um fólk undir nafni. Ef að þetta hefði ekki gerst þá hefði hún skrifað bókina undir dulnefni og ætli menn sem komu fyrir í bókinni hefðu ekki líka verið undir dulnefni. Það eru ekki aðrir fjölmiðlar í því en við og í því er meiri áhætta fólgin. Ég skil það vel að aðrir fjölmiðlar telji sig hafa fundið blóðlyktina þegar þetta kemur upp á og það er ekki heiðarlegt." Blaðamannafélapð: Stjórn BI hyggst fjalla um máliö sem fyrst Arna Schram, formaður Blaða- mannafélags íslands, sagði stjórn- armenn þess enn ekki hafa rætt mál manns, sem framdi sjálfs- morð eftir að DV birti forsíðufrétt um hann í gær. „Ég held að menn ættu að halda jafnaðargeði og varast ásakanir á þessu stigi, en ég held að það sé full ástæða til þess að rannsaka málið til hlítar,“ sagði Arna og kvað víst að stjórnin myndi fjalla um málið við fyrsta hentugleika. Á sínum tíma birti DV eigin siða- reglur og voru áhöld um það hvort með því væri blaðið í raun að segja sig úr lögum við þær siðareglur, sem Blaðamannafélagið hefur sett félagsmönnum sínum. „Við lítum svo á að blaðamenn DV lúti siðareglum Blaðamannafélagsins eins og aðrir,“ segir Arna og telur siðareglur DV eins konar vinnu- lagsreglur innanhúss. Hún kvaðst ekki vita annað en að blaðamenn DV hefðu til þessa sinnt kærum til nefndarinnar og farið að úr- skurðum hennar. Landvinnslan á Dalvík setti tvö met á nýliðnu ári. BlaDII/lngó * iinrt 'íríréttað á Uíótel rBorcj öll kvöld 2<r. 2.900.- Vgríð v^lkornm Metár hjá landvinnslu Samherja á Dalvík Árið 2005 var metár í sögu land- vinnslu Samherja á Dalvík. Fram- leitt var úr 10.483 tonnum af hrá- efni, samanborið við 9.588 tonn árið áður, sem þá var met. Aukn- ingin er rúm 9% á milli ára. Landvinnslan á Dalvík setti annað met á nýliðnu ári því þá voru flutt út um 1.200 tonn af ferskum afurðum, samanborið við 900 tonn árið 2004. Það var einnig framleiðslumet í þessum afurðaflokki en um er að ræða þá vöru sem mest er greitt fyrir í bolfiskvinnslu í dag. 1 áætlunum Samherja fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir áframhaldandi framleiðsluaukningu á Dalvík og að hráefnismagnið verði liðlega 11 þúsund tonn. Vantar fólktil starfa Um 120 stöðugildi eru hjá land- vinnslunni á Dalvík og vantar fólk til starfa. í fréttum í síðustu viku var greint frá því að Samherji hygð- ist fly tja pökkun á smápakkningum til Englands. 1 tilkynningu frá fyrir- tækinu segir að sumir kunni að hafa skilið fréttina þannig að um stór- kostlegan samdrátt væri að ræða á Dalvík en það sé fjarri öllu sanni þar sem aðeins hafi verið um sex stöðugildi að ræða og þeim starfs- mönnum sem um ræðir hafi verið boðin önnur vinna á staðnum. Fréttaflutningur DV: Siðanefnd blaðamanna tjáir sig ekki Blaðið hafði samband við Kristinn Hallgrímsson, hæstaréttarlög- mann og formann siðanefndar Blaðamannafélags Islands, til þess að grennslast fyrir um það hvort hann teldi frétt DV um meint afbrot vestfirsks manns, sem féll fyrir eigin hendi eftir birtingu hennar, bryti í bága við siðareglur Blaðamannafélagsins. „Siðanefndin - eða einstakir nefndarmenn - tjáir sig ekkert nema um þau málefni, sem borin eru undir hana, og þá aðeins í úrskurði. Við erum því þögul sem gröfin," sagði Kristinn. Auga: Gjafsókn til goðra verka Auglýsingaiðnaðurinn hefur stofnað sjóð með það að mark- miði að styðja við góð málefni. Valið verður úr umsóknum á næstunni og sett í gang viðamikil herferð í fjölmiðlum. Þeir sem telja sig standa að baki góðum málefhum sem vert er að koma á framfæri við alþjóð eiga þess nú kost að senda inn umsókn til AUGA. Stefnt er að því að sjóður- inn standi fyrir a.m.k. einni mynd- arlegri auglýsingaherferð árlega. Ingólfur Hjörleifsson, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra auglýs- ingastofa (SÍA), segir auglýsingaiðn- aðinn búa yfir einstakri þekkingu á boðmiðlun en auglýsingastofur innan vébanda SlA leggja til vinnu við herferðina, auglýsendur leggja til fjármagn og fjölmiðlar birtinga- pláss.„Umsóloiirnar eru að berast inn og það er gaman að sjá hvað þeir hópar sem sækja um eru af ólíkum toga. Það er sérstaklega gaman að sjá minni hópa og samtök skila inn umsókn, því það eru oft á tíðum þeir aðilar sem verða undir í baráttunni um athygli og fjármagn til þess að kynna sitt málefni." Ing- ólfur segir að þriðjungi þess fjár sem fæst inn í sjóðinn verði haldið eftir þannig að í framtíðinni megi byggja upp öflugri sjóð sem veitt gæti fleiri verkefnum á ári brautar- gengi. „Fljótlega í febrúar munum við velja einn aðila en við ákváðum að setja engan skilafrest á umsókn- irnar þannig að það er enn mögu- leiki til þess að skila inn umsóknum til SÍA, á vefslóðina sia.is/auga. Þar er hægt að sækja um á rafrænan hátt.“Það sem er sérstakt við herferð- ina að sögn Ingólfs er það að ekki er um beinan fjárstuðning að ræða, heldur fá þeir það sem kölluð hefur verið gjafsókn til þess að koma sínu málefni á framfæri í fjölmiðlum. Flugstöð Leifs Eiríkssonar: Farþegum fjölg- ar jafnt og þétt Á árinu 2005 fjölgaði farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar um 11% ef miðað er við árið 2004.1.817 þús- und farþegar fóru í gegnum stöðina á síðasta ári. Farþegum sem milli- lenda hér á landi á leið yfir Norður- Atlantshafið fjölgaði um 13% á sama tíma. Þessi fjölgun er í samræmi við þá farþegaspá sem gerð var í upphafi ársins 2005 en hún gerir ráð fyrir því að farþegafjöldinn verði kominn í 3,2 milljónir árið 2015. Til þess að bregðast við aukn- ingunni eru framkvæmdir hafnar við stækkun flugstöðvarinnar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.