blaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 23

blaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 23
blaðið MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 ÍPRÓTTIR I 31 Enski boltinn: Sommeil fékkþríggja leikjabann David Sommeil, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City, var í gær dæmdur í þriggja leikja bann af aganefnd enska knatt- spyrnusambandsins. Sommeil braut gróflega á Young-Pyo Lee leikmanni Tottenham í leik liðanna nú fyrir stuttu og Martin Jol, framkvæmda- stjóri Tottenham, sagði eftir leikinn að þetta væri grófasta brot sem hann hefði orðið vitni að í leik. Sommeil var ekki refsað í leiknum þar sem dómari leiksins, Alan Wiley, og aðstoðardómarar sáu atvikið ekki og er það með ólíkindum. Sommeil missir af leikjum Manchester City gegn Man- chester United um næstu helgi i úrvalsdeildinni og einnig af leiknum gegn Bolton í úrvalsdeildinni. Þá missir David Sommeil af leik Manchester City gegn Wigan eða Leeds í bikarkeppni enska knattspyrnusambandsins sem fer fram undir lok mánaðar- ins. Kappinn hefur þannig lokið leik i þessum mánuði. Enski boltinn: Redknapp leitarað mönnum Harry Redknapp, framkvæmda- stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth, er þessa dagana á fullu að leita að nýjum leikmönnum til að styrkja leik- mannahóp sinn. Nýjustu frétt- irnar eru þær að Steffen Iversen, fyrrum leikmaður Tottenham sem nú leikur með Válerenga í Noregi, æfi nú með Portmouth og það þykir líklegt að hann spili með þeim það sem eftir lifir leiktíðar. Þá er Harry Redknapp á eftir nokkrum leikmönnum Tottenham. Það nýjasta í þeim efnum er að Peter Storrie, stjórnarformaður Portsmouth, er að fá leyfi hjá Tottenham til að fá að tala við Sean Davis og Noe Pamarot. Þá er einnig talið að Redknapp ætli að fá leyfi fyrir að tala við þrjá aðra leikmenn Tottenham sem eru Anthony Gardner, Pe- dro Mendes og Michael Brown. Leikmannamarkaðinum á Englandi lokar 31. janúar og á þessu má sjá að það má búast við nokkrum sviptingum á þeim markaði það sem eft ir lifir mánaðar. Harry Redknapp lét Frakkann Laurent Robert fara til Frakklands og það er jafnvel búist við að hann losi sig við fleiri leikmenn í mánuðinum. Körfubolti: Dregið í 8-liða úrslit I gær var dregið í 8-liða úrslit bikar- keppni KKl og Lýsingar í karla-og kvennaflokki. Það var fyrrum landsliðshetja Islands, fyrirliði og landsliðsþjálf- ari, Jón Kr. Gíslason sem dró liðin saman að þessu sinni. Haukar eru núverandi bikarmeist- arar kvenna í körfuknattleik og Njarðvíkingar eru núverandi bikar- meistarar karla. Það má segja að allir leikirnir í karlaflokki séu toppleikir en senni- lega verður athyglisverðasta viður- eignin á milli KR og Keflavíkur sem fer fram í DHL-höll KR-inga. Liðin sem drógust saman í karlaflokki eru þessi: Snæfell - Njarðvík, KR - Keflavík, Skallagrímur - Þór Akureyri, Hamar/Selfoss - Grindavík. f kvennaflokki drógust eftirfarandi lið saman: Grindavík - Haukar(b), Keflavík(b) - Breiðablik, (S - Haukar, Skallagrímur - Keflavík. Leikirnir í 8-liða úrslitunum f bik- arkeppni KKÍ og Lýsingar í karla- og kvennaflokki fara fram helgina 21.- 22. janúar næstkomandi. BlaMÆrikki Valþór S. Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.