blaðið - 11.01.2006, Síða 24
32 I MENNING
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 blaðiö
Andri Snœr Magnason valinn á
fyrirlestraröð í Columbiu háskóla
Andri Snær Magnason rithöfundur
hefur verið valinn, einn af fimm fyrir-
lesurum, til að ávarpa nemendur i
Columbia háskóla í Bandaríkjunum.
Fyrirlestraröð vorannar er undir
y firskriftinni: „Orð og gj örðir“. Aðrir
fyrirlesarar undir þessari yfirskrift
á þessari önn eru George Bizos, lög-
fræðingur Nelsons Mandela, George
D. Yancopoulos, læknir, doktor í
lífefnafræði og sameindalíffræði
og forstjóri líftæknifyrirtækisins
Regeneron, Peter Goldmark, stjórn-
andi Environmental Defense Fund,
óopinberra umhverfissamtaka í New
York og Stewart Sukuma, tónlistar-
og baráttumaður frá Mósambík.
Columbiu háskólinn er einn virt-
asti háskóli í heimi. Á hverri önn
eru mánaðarlegir fyrirlestrar sem
eru ætlaðir afburðanemendum
skólans og styrkþegum sem sýnt
hafa eindregna hæfni til að axla leið-
togahlutverk í framtíðinni. Á hverju
skólaári eru fengnir fyrirlesarar
hvarvetna úr heiminum í því skyni
að kynna þeim sem flest sjónarmið í
samfélagsmálum, stjórnmálum, vís-
indum og listum. Markmiðið er að
auka víðsýni nemendanna, brýna
hugsjónir þeirra og veita þeim nýja
sýn á heiminn og vandamál hans.
Margir af helstu og þekktustu forvíg-
ismönnum bandarísks efnahagslífs,
háskóla og stjórnmála hafa á undan-
förnum árum verið þátttakendur i
þessu námi.
Andri Snær Magnason hefur
þrátt fyrir ungan aldur markað sér
stöðu sem einn helsti rithöfundur
íslendinga. Blái hnötturinn fékk í
vor fimm tilnefningar til helstu leik-
listarverðlauna Kanada og er vænt-
anleg á svið í Finnlandi í september.
Fyrir söguna af bláa hnettinum
hlaut hann íslensku bókmenntaverð-
launin 1999 en LoveStar var tilnefnd
til sömu verðlauna árið 2002. Vænt-
anleg er á næstunni ný bók eftir
hann sem er ætlað að hrista upp í
hugmyndaheimi og heimsmynd Is-
lendinga. Verk hans hafa verið gefin
út á 17 tungumálum.
Andri Snær Magnason. Fyrirlesari í einum
virtasta háskóla heims.
Tværbækur
fráMáliog
menningu
Mál og menning hefur sent
frá sér þrjár bœkur í kilju.
FörLewiseftirPer
Olov Enquist er saga
öflugrar fjöldahreyfmgar
sem borin var uppi
af konum sem fundu
lífisínutilgangog
merkingu á mögnuðum
samkomum þar sem þær komust i
algleymisástand fjarri fátækt,bama-
nauð og eymd hversdagsins. Leiðtogi
hreyfingarinnar, Lewi Petrus, heillaði
þessar konur með kennimennsku
sinni og einlægri trú sem snerist
ekki síst um að byggja upp réttlátt
samfélag í Svíþjóð þar sem samábyrgð
og náungakærleikur væru lífsgildin.
Hugsjónamaðurinn Lewi Petrus,
stofnandi og leiðtogi sænsku hvíta-
sunnuhreyfingarinnar.bar hana
uppi á viðkvæmum tímum milli-
stríðsáranna þegar sterkir leiðtogar
voru settir á stall og stóra sannleika
veifað á ýmsum vígstöðvum. En
kvennamaðurinn og nautnaseggurinn
Sven Lidman ætlaði sér einnig stóra
hluti í hvítasunnuhreyfingunni, sem
átti sterk ítök í sænsku þjóðlífi, en
óvíst hvort hún rúmaði þá báða.
Halla Kjartansdóttir þýðir.
Námskeið um Pétur Gaut
Þjóðleikhúsið stendur fyrir
námskeiði fyrir almenning í
tengslum við sýningu leikhússins
á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen
í leikstjórn Baltasars Kormáks.
Pétur Gautur verður vígslusýning
Kassans, sem er nýtt leiksvið í
Þjóðleikhúsinu. Námskeiðið hefst
7. febrúar.
Pétur Gautur er eitt af meistara-
verkum Henriks Ibsens, snilldar-
legur ljóðleikur sem aflaði skáldinu
heimsfrægðar. Verkið kom fyrst út
á bók árið 1867 en tæpum áratug
síðar var það frumflutt og það hefur
reglulega verið sett upp í frægum
uppsetningum f helstu leikhúsum
heims síðan þá. Hin margbrotna
titilpersóna verksins og knýjandi
spurningar um það sem skiptir máli
f lífinu og kjarna mannsins hafa
heltekið jafnt leikhúslistafólk sem
Baltasar Kormákur og Björn Hlynur,
leikstjóri og aðalleikari í Pétri Gaut, en
Þjóðleikhúsið stendur fyrir námskeiði fyr-
ir almenning í tengslum við sýninguna.
áhorfendur í gegnum tíðina. Mann-
legt innsæi höfundarins nýtur sín
hér til fulls og ímyndunarafl og hug-
myndaauðgi hans fara á óviðjafnan-
legt flug, í verki sem er leiftrandi af
húmor.
Á námskeiðinu verður lögð
áhersla á að opna þátttakendum
heim leikhússins og veita þeim inn-
sýn í aðferðir þess. Þátttakendum er
boðið í heimsókn á æfingu á Pétri
Gaut og þeir kynnast innviðum
Þjóðleikhússins og starfinu í húsinu.
Fjallað verður um leikritið Pétur
Gaut og þátttakendur fá til lestrar
nýja þýðingu Karls Ágústs Úlfs-
sonar á verkinu. Þeir sjá sýninguna
svo fullbúna og námskeiðinu lýkur
með umræðum um verkið og sýn-
inguna með þátttöku leikstjóra, list-
rænna aðstandenda og leikara í sýn-
ingunni. Námskeiðið verður haldið
þrjú þriðjudagskvöld á tímabilinu
frá 7. febrúar til 7. mars, auk sýning-
arinnar. Þátttakendur geta valið á
milli tveggja sýningarkvölda undir
VERKSTJORAR
í bréfadeild Póstmiðstöðvar -110 Reykjavík
Framkvæmdasvið óskar að ráða tvo verkstjóra
í vaktavinnu í bréfadeild Póstmiðstöðvar.
Störfin henta bæði konum og körlum.
Hæfniskröfun Reynsla af stjórnun æskileg og hæfni
I mannlegum samskiptum.
Nánari upptýsingarveitir Helga Bolladóttir. slmi: 580 1000.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2006.
Umsóknum skal skilað til:
Islandspóstur hf.
Póstmiðstöð
Helga Bolladóttir
Stórhöfða 32
110 Reykjavík
Umsóknum er einnig hægt að skila á www.postur.is
lok febrúar.
Leikstjóri sýningarinnar verður
Baltasar Kormákur, sem hefur
vakið athygli fyrir frumlegar og
myndrænar leiksýningar, bæði á
klassískum verkum á borð við Ham-
let og Draum á Jónsmessunótt, sem
og nýrri verkum. Grétar Reynisson
gerir leikmynd sýningarinnar á Pétri
Gaut. í titilhlutverkinu verður Björn
Hlynur Haraldsson sem þreytir nú
frumraun sína í Þjóðleikhúsinu. I
þessari nýju sýningu verður sjónum
beint að Pétri Gaut í nútímanum.
Umsjón með námskeiðinu hafa
Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leik-
listarráðunautur Þjóðleikhússins
og Ingibjörg Þórisdóttir, verkefna-
stjóri fræðsludeildar. Skráning og
nánari upplýsingar hjá fræðsludeild
Þjóðleikhússins.
michael
CONNELLV
Blóðskuld eftir
Michael Connelly
kemurútíþýðingu
Brynhildar
Bjömsdóttur.
Terrell McCaleb,
I fyrrum lögreglumaður
hjá FBI, er að jafna sig
eftir hjartaígræðslu
þegar Garciella Rivers
biður hann um aðstoð við að hafa uppi
á morðingja systur sinnar. í ljós kemur
að honum er máhð skylt og maðurinn
með nýja hjartað lendir í háskalegri leit
að sálarlausum og óútreiknanlegum
morðingja þar sem ekkert er sem sýn-
ist. Æsispennandi saga sem heldur
lesandanum föngnum frá fýrstu til
síðustu blaðsíðu. Michael Connelly er
einn vinsælasti glæpasagnahöfúndur
heims um þessar mundir. Áður hefúr
komið út eftir hann spennusagan
Skáldiðáíslensku.
109 SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eöa lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
niu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
1 4 6
5 2 7 9
2
9 2 7
8 6 3 2
7 6 1
7
2 3 9 5
7 3 8
4 7 3 9 2 8 1 5 6
8 5 1 7 6 3 4 9 2
6 9 2 5 4 1 3 8 7
7 1 4 6 9 5 8 2 3
3 2 9 8 7 4 6 1 5
5 8 6 1 3 2 9 7 4
1 4 7 2 8 6 5 3 9
9 3 8 4 5 7 2 6 1
2 6 5 3 1 9 7 4 8