blaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaöiö
Spenna eykst milli írana og
vesturveldanna
Bretar vilja að öryggisráðið íhugi aðgerðir gegn írönum eftir að þeir lýstu því yfir að þeir
myndu hefja kjarnorkurannsóknir á ný. Utanríkisráðherrar nokkurra ESB-ríkja funda
um málið í dag.
Bretar vilja að öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna íhugi aðgerðir
gegn Irönum eftir að þeir hófu
rannsóknir á kjarnorkueldsneyti
á ný en Akbar Hashemi Rafsanj-
ani, fyrrum forseti Irans, sagði að
refsiaðgerðir yrðu gagnslausar.
Rafsanjani réðst harkalega að
alþjóðasamfélaginu í gær vegna
viðbragða þess við kjarnorkurann-
sóknum írana. Hann segist vera
skelkaður á yfirganginum, sér-
staklega á tímum lýðræðis, frelsis
og mannréttinda.
íranar rufu innsigli á kjarn-
orkurannsóknastofum sínum í
fyrradag og lýstu því yfir að þeir
myndu hefja rannsóknir á ný. Við
það jókst spenna á milli þeirra og
alþjóðasamfélagsins og hafa bæði
Bandaríkin og ríki í Evrópu for-
dæmt aðgerðirnar. Vesturveldin
óttast að Iranar hafi í hyggju að
koma sér upp kjarnavopnum en
Iranar hafna því.
Utanríkisráðherrar Bretlands,
Akbar Hashemi Rafsanjani fyrrum forseti
frans
Frakklands og Þýskalands munu
funda sérstaklega með Javier Sol-
ana utanríkismálastjóra Evrópu-
sambandsins í dag vegna málsins.
Mögulega verður boðað til neyðar-
fundarhjáAlþjóðakjarnorkumála-
stofnuninni eftir tvær til þrjár
vikur og þar verður væntanlega
tekin ákvörðun um hvort íranar
verði kærðir til öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna.
Kadima, flokkur Ariels Sharons, forsaet-
isráðherra, mælist með metfylgi i kjölfar
veikinda Sharons.
Fylgi Kadima
aldrei meira
Viðbrögð viðfuglaflensu í Tyrklandi og víðar:
Reynt að draga úr ótta fólks
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) reyndi í gær að draga úr ótta
fólks við fuglaflensu sem hefur orðið
vart i Tyrklandi. Hún hvatti fólk til að
halda ró sinni og forðast snertingu
við veika eða dauða alifugla. Bráða-
birgðarannsóknir leiddu í ljós að 15
manns í Tyrklandi hefðu smitast af
hinu banvæna HsNi-afbrigði fugla-
flensuveirunnar. Ekki hafa jafnmörg
tilfelli greinst í einni viku síðan síðla
árs 2003 þegar veiran hóf að breiðast
út um Asíu. Þrjú börn hafa látist en
aðeins hefur verið staðfest í tveimur
tilfellum að um fuglaflensu hafi verið
að ræða.
Landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna varaði við því í gær að fugla-
flensan i Tyrklandi gæti breiðst út til
nágrannalandanna.
I Evrópu hefur verið gripið til
margvíslegra aðgerða, meðal annars
eru flutningabílar frá Tyrklandi sótt-
hreinsaðir og á Ítalíu fóru samtök ney t-
enda fram á að ríkisstjórnin bannaði
ferðalög til Tyrklands.
Tyrkir hafa fyrirskipað förgun
meira en 300.000 alifugla og dreift
upplýsingabæklingum í austurhluta
landsins þar sem flensan hefur verið
einna skæðust. Um 70 manns voru
lagðir á sjúkrahús með einkenni fugla-
flensu en heilbrigðisyfirvöld segja að
meirihluti þeirra hafi ekki reynst
vera með sjúkdóminn.
Kadima, flokkur Ariels Sharons, for-
sætisráðherra ísraels, myndi vinna
auðveldan sigur í þingkosningunum
í mars jafnvel þó að Sharons njóti
ekki við. Nýjustu skoðanakannanir
sýna að flokkurinn hefur talsvert for-
skot á keppinautana. Kosningabar-
átta hefur legið niðri síðan Sharon
fékk heilablóðfall fyrir rúmri viku.
Kadima myndi hljóta 44-45 sæti
af 120 á ísraelska þinginu undir
stjórn Ehuds Olmerts, starfandi
forsætisráðherra og hefur fylgi hans
aldrei mælst meira. Eitan Cabel, aðal-
ritari Verkamannaflokksins, gerði
lítið úr fylgisaukningu Kadima og
sagði að hana mætti skýra með því
að almenningur fyndi til samúðar
með Sharon og hún myndi minnka
eftir því sem nær dregur kjördegi.
Læknar sögðu á þriðjudag að
Sharon sýndi batamerki og væri
ekki lengur í lífshættu. Ekki verður
þó ljóst hversu víðtækar afleiðingar
he ilablóð fallið hefur haft á heilastarf-
semi hans fyrr en eftir nokkra daga.
NISSAN
X-TRAIL
SKIPT_um væntingar
Nýárstilboó - 250.000,- kaupauki
Ingvar Helgason
Tegund
Verd
Opiö: Mánudaga - fðstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
SKOÐAÐU HINA FYRST!
Hann er strangt til tekið jepplingur, bara staeni og öflugri en sambærilegir
bllar. Hann er einstaklega skemmtilegur ( akstri og umgengni og
áreiðanlegur eins og Nissan er von og vlsa Þetta er einfaldlega frábærlega
heppnaður blll. Við skorum á þig að skoða samkeppnina fyrst og koma
svo til okkar!
Rikulegur staðalbúnaður
- 17" álfelgur - loftkæling
- litað gler - sjálfskipting
- 6 diska CD spilari - útvarpsfjarstýring í stýri
X-Trail Sport 2.690.000,-
X-Trail Elegance sjálfskiptur 2.890.000,-
Meðal ótal verðlauna og viðurkenninga:
„Bestur“ - Fifth Gear
„Best recreationai 4x4“ - Auto Express
„Best compact 4x4“ - What Car?
„Best in class“ - Channet 4
„Best Small Wagon“ - Overlander Magazine
Júsjenkó gagnrýnir þingmenn harkalega:
Gasdeilan sögð
tylliástæða
Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, segir vantraust þingmanna á ríkisstjórnina vera í senn
óskiljanlegt og ólögmætt.
Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu,
hefur gagnrýnt þjóðþing landsins
harkalega fyrir að lýsa yfir van-
trausti á ríkisstjórn hans út af
umdeildum gassamningi við Rússa.
Hann sakar þingmenn um að valda
óróa í landinu í aðdraganda þing-
kosninganna í mars. „Ákvörðun
þeirra er óskiljanleg og ólögmæt,“
sagði Júsjenkó við fréttamenn í
Kasakstan, þar sem hann var við
innsetningarathöfn Nursultan Naz-
arbayev, forseta, í gær.
Stjórnmálaskýrendur og stjórn-
málamenn í Kíev segja að gassamn-
ingurinn hafi aðeins verið tylli-
ástæða fyrir stjórnarandstöðuna til
að koma höggi á stuðningsmenn
Júsjenkós, forseta, fyrir kosning-
arnar 26. mars næstkomandi.
„Hvaða samningur sem er hefði
gert ríkisstjórnina að skotspæni,“
sagði Olexander Dergachyov, rit-
stjóri pólitísks tímarits í Kíev.
,Aðalástæða vantraustsins eru kom-
andiþinkosningar,“sagðistjórnmála-
skýrandinn Andriy Yermolayev.
Þar sem þriggja vikna vetrarfrí
þjóðþingsins hefst á morgun búast
flestir sérfræðingar og stjórnmála-
menn við því að ríkisstjórn Jekanú-
rofs muni stjórna landinu fram að
kosningunum í mars.