blaðið - 12.01.2006, Page 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
ÞAÐ VERÐUR AÐ
STÖÐVA ÞESSA MENN
DV hefur verið tifandi tímasprengja síðustu misseri, eða allt frá því að
nýir eigendur tóku við blaðinu. DV hefur verið sem krabbamein í samfé-
laginu sem fær að dafna og vaxa í skjóli auðugustu manna landsins. Þeir
hafa haldið blaðinu gangandi og engir nema þeir bera ábyrgð á þeirri
ritstjórnarstefnu sem fylgt hefur verið frá fyrsta degi.
Sá hörmulegi atburður sem varð vestur á fjörðum í fyrradag tengist
beint forsíðuumfjöllun DV. Það að ritstjóri DV skuli voga sér að segja
opinberlega að þeir séu ekki beinn málsaðili og komi málið því ekki við
er hreinasta móðgun við ættingja og vini viðkomandi manns sem þurfa
nú að lifa við sorg sína. Siðleysi og dómgreindarleysi ritstjóra DV er svo
algjört að það er full ástæða til að spyrja um andlega heilsu hans.
Málsvörn mannorðsmorðingjanna er engin - málsvörn DV er engin og
málsvörn eigendanna, sem þagað hafa þunnu hljóði, er engin. Líklega
finnst þeim skemmtilegra að stunda sín viðskipti áfram á innlendum og
erlendum vettvangi en að horfast í augu við ábyrgð sína. Líf og mannorð
einstaklinga er lítils virði í hringekju viðskiptanna þar sem tíminn er
peningar. Það löngu orðið tímabært að þessir menn fari að axla ábyrgð
á gjörðum sínum. Þeir settu línuna fyrir DV 1 upphafi og að halda því
fram að blaðið eða efni þess komi þeim ekki við er hvítþvottur af verstu
gerð.
Blaðið hefur ítrekað varað við ritstjórnarstefnu DV í leiðaraskrifum
sínum og hvatt eigendur þess blaðs til að hreinsa til í eigin ranni. Það
hafa þeir ekki gert þrátt fyrir að DV hafi skipulega staðið fyrir rógsher-
ferðum og einelti af verstu gerð. Hundruð fjölskyldna eiga um sárt að
binda eftir umfjöliun DV, á mörgum stöðum munu sárin aldrei gróa.
Almenningur á ekki að sætta sig við þetta. Það er óþolandi að slíkur
fjölmiðili sem DV skuli vera gefinn út í okkar litla þjóðfélagi. Það er óþol-
andi að menn skuli sjá sér hag í að gefa slíkt blað út og halda því gang-
andi. Við skulum rétt vona að ritstjóraferill Jónasar Kristjánssonar og
Mikaels Torfasonar sé á enda. Farið hefur fé betra. Það verður að stöðva
þessa menn.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingan Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbi.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur.
Mánudaginn 16. janúar
Matararfur íslendinga
blaóió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Magnús G Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • mag0@bladid.net
Bjami Daníelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjami@bladid.net
14 I ÍLIT
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaóió
Skáklandið ísland
„Skákin er ekki aðeins tómstundaiðja,“
skrifaði Benjamin Franklin árið 1779.
„Marga mikilvæga eðlisþætti manns-
hugans - nýtilega í lífshlaupi hvers
manns - má vekja og efla með tafl-
mennsku, svo að þeir séu undirbúnir
hvenær sem á þarf að halda. Lífið
sjálft er einskonar skák.“
Nú er ævintýralegt um að litast í ís-
lensku skáklífi. Við, liðsmenn Hróks-
ins, erum stolt af þeim árangri sem
okkar félag hefur náð. Við höfum á
sl. fjórum vetrum farið í hátt í eitt-
þúsund skólaheimsóknir og erum
nú að klára fjórðu hringferðina um
landið. Þegar vetrarstarfinu lýkur
hafa alls 20 þúsund börn, kennarar
og fleiri fengið bókina Skák og mát,
eftir Anatoly Karpov í þýðingu
Helga Ólafssonar stórmeistara, að
gjöf frá Hróknum og Eddu útgáfu.
Þúsundir barna hafa tekið þátt í skák-
viðburðum Hróksins á síðustu árum
- barnaskákmótum, fjölteflum og
námskeiðum.
Líflegt starf
Víðar er unnið gott starf. Skák-
samband íslands, heildarsamtök
skákfélaga á íslandi, lýtur forystu
Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, sem er
glæsilegasti leiðtogi sem íslensk skák-
hreyfing hefur eignast. Á vegum
Skáksambandsins er haldið úti Skák-
skóla íslands, sem Helgi Ólafsson
veitir forstöðu. Starf Helga á liðnum
árum verður seint ofmetið, því segja
má að hann og nokkrir aðrir hafi
staðið vaktina þegar þörfin var mest.
Því staðreyndin er sú að skáklíf á Is-
landi var ekki upp á sitt besta undir
aldamótin. Áhugi krakka fór minnk-
andi, sifellt færri skólar tóku þátt í
skákmótum og alltaf leið lengra milli
afreka íslenskra skákmanna. Það er
því í raun full ástæða til að heiðra
þá áhugamenn um skák á Islandi,
sem ekki gáfust upp - upp í hug-
ann kemur umsvifalaust Taflfélagið
Hellir og þeirra ágætu forystumenn
sem ávallt héldu dampi; hið forn-
fræga Skákfélag Akureyrar og hið
síkvika Taflfélag Garðabæjar. Elsta
skákfélag íslands, Taflfélag Reykja-
víkur, gafst heldur aldrei upp, þrátt
fyrir tímabundinn mótbyr í íslensku
skáklífi og hefur nú á að skipa kraft-
Hrafn Jökulsson
mikilli og metnaðarfullri stjórn.
Og út um land eru kraftaverkin að
gerast. Suður í Vestmannaeyjum og
vestur á Snæfellsnesi hafa sannkall-
aðar skáksprengingar orðið; víða um
Norðurland, Austurland og Suður-
land hafa komið fram einstaklingar,
ýmist innan skólanna eða utan, al-
búnir að leiða framsókn skáklistar-
innar. Margar sögur væri hægt að
segja af skáklífi í einstökum grunn-
skólum - allt frá Hallormsstað til Ár-
neshrepps, frá Hrísey til Hvolsvallar.
Skákbyltingin lifir
Skákbyltingin á íslandi snýst
ekki fyrst og fremst um útbreiðslu
á einni íþrótt, list eða vísindagrein.
Skákin er að sönnu elsta og rótgrón-
asta þjóðaríþrótt Islendinga. Friðrik
Ólafsson stórmeistari var ein fyrsta
og vinsælasta hetja íslenska lýðveld-
isins og lagði með afrekum sínum
grunn að heimsmeistaraeinvíginu
1972 - sem varð til þess að erlend stór-
veldi beindu sjónum til Islands þegar
halda þurfti fundi um framtíð heims-
ins. Skákin er í hávegum höfð um allt
land, og íslendingar vilja vera góðir í
skák.
En höfuðröksemdirnar með skák-
listinni eru þó aðrar en sögulegar
eða jafnvel tilfinningalegar. Rann-
sóknir sýna að skákkunnátta grunn-
skólabarna er til þess fallin að bæta
árangur í öðrum námsgreinum.
Skákin þjálfar rökhugsun, um leið
og hún reynir á ímyndaraflið, kennir
okkur að bregðast við óvæntum að-
stæðum, nota tímann og læra jafnt
af sigrum sem ósigrum. Og svo er
skákin líka skemmtileg og brúar
öll bil. Það skiptir ekki máli hvort
maður er ungur eða gamall, feitur
eða mjór, strákur eða stelpa, blindur
eða sjáandi. Allir geta teflt.
Framtíðin í íslensku skáklífi er
björt. Nú er næsta skref að láta lang-
þráðan draum rætast: Að færa skák-
ina inn í grunnskólakerfið. Mark-
miðið verður ekki fyrst og fremst að
ala upp súperstórmeistara, heldur að
bæta íslenska menntakerfið - og ala
upp hugsandi fólk.
Höfundur er skákfrömuður.
Klippt & skorið
klipptogskoridfiivbl.is
Klippari minntist á það um daginn að í
Suðvesturkjördæmi - Kraganum svo-
nefnda - leituðu Samfylkingarmenn
að verðugum leiðtoga fyrir þingkosningarnar
á næsta ári og að nafn Jóns
Baldvins Hannibalssonar
hefði borið á góma í því
samhengi. Nú berast þau tíð-
indi úr kjördæminu og víðar
raunar, að ef til vill væri heilla-
vænlegast að stilla einfald-
lega upp á lista. Nefna menn í því samhengi að
þannig megi munstra Jón Baldvin, komast hjá
dýru prófkjöri og deilum sem kynnu að rísa (
framhaldinu vegna hlutfalla gömlu flokkanna,
sem á sínum tfma mynduðu Samfylkinguna.
Svipuð sjónarmið hafa verið nefnd (Suðurkjör-
dæmi og víst er um það að þingmönnum mun
ekki lítast illa á þessar ráðagerðir.
Vangaveltur voru um það um daginn,
þegar skýrt var frá ráðningu Ara
Edwald til 365 miðla, að lllugi Gunn-
arsson, hagfræðingur og fyrrverandi aðstoð-
armaður Davíðs Oddssonar, væri í sigtinu sem
arftaki Ara hjá Samtökum
atvinnulífsins. Þ6 það tal %
hafi e.t.v. verið ótímabært f
þá, mun nafn llluga hafa
verið hent á lofti hjá stjórn
SA og almenntgerður góður j
rómur að. Með einni undan-
tekningu þó. Stjórnarmað-
urinn Kristín Jóhannesdóttir frá Baugi Group
og einn sakborninga í Baugsmálinu mun ekki
taka það i mál að lllugi verði fyrir valinu og seg-
ist ekki þurfa að útskýra af hverju. Var svona
ekki kallað „berufsverbot" hér i gamla daga?
Prófkjörshugur er f Samfylkingar-
mönnum (Reykjavik og símhringingar
hafnar af fullum krafti. Innvigðir telja
erfitt að leggja mat á stöðuna og telja fylgi efstu
manna geta verið á hreyfingu fram á síðustu
stundu. Steinunn V. Óskars-
dóttir, borgarstjóri, sem flestir
voru búnir að afskrifa fyrir
nokkru, hefur náð sér á strik
með nokkrum vel völdum
fjárútlátum úr borgarsjóði
og eins munu margir eiga erfitt með að kjósa
gegn oddvitanum. Óvenjuhljótt þykir hins vegar
um hugmyndafræðinginn Stefán Jón Hafstein.
Kunnugir segja svo að skriður sé kominn á Dag
B. Eggertsson, ekki sé hægt að líta fram hjá
honum sem „manni framtíðarinnar" og að hann
sé líklegastur til þess að leggja Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson [ kosningunum I vor.