blaðið - 23.01.2006, Qupperneq 8
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 blaöiö
$1
Hamas-samtökin
styrkja stöðu sína
Gottgengi samtakanna í kosningum til heimastjórnar Palestínu kann að stefna friðarferl-
inu í voða þar sem Ísraelsmenn neita að rœða við þau. Sumir telja þó að afstaða þeirra sé
að mildast
Hamas-samtökunum er spáð góðu
gengi í kosningum til heimastjórnar
Palestínumanna á miðvikudag og
óttast margir að þar með kunni
friðarferlið að vera í hættu. Þó að
samtökin muni ekki sigra Fatah-
hreyfingu Mahmoud Abbas, forseta,
er búist við að þau verði atkvæða-
mikil á þingi og komist hugsanlega
í ríkisstjórn.
„Við erum vitni að sögulegum
umbreytingum á hinu pólitíska
landslagi í Palestínu,“ sagði Mahdi
Abdel-Hadi, stjórnmálaskýrandi
í viðtali við Reuters-fréttastofuna.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönn-
unum hefur Fatah-hreyfingin enn
forskot á Hamas en saxast hefur á
það að undanförnu.
Fatah-hreyfingin hefur farið
með völdin í heimastjórn Palestínu-
manna síðan henni var komið á lagg-
irnar árið 1994. Staða hennar hefur
þó veikst til muna að undanförnu
vegna ásakana um spillingu, innri
átaka og vangetu til að tryggja ör-
yggi á Gasaströnd síðan ísraelsmenn
hörfuðu af svæðinu á síðasta ári.
Hamas-samtökin unnu nýlega
stórsigur í sveitarstjórnarkosn-
Ung stúlka á kosningafundi Hamas-samtakanna í borginni Ramallah á Vesturbakkanum
ingum á Vesturbakkanum.
Verði samtökin atkvæðamikil á
þingi er talin hætta á að friðarferlið
sé í voða enda hafa þau opinberlega
neitað viðræðum og afvopnun. Hern-
aðararmur samtakanna ber enn-
fremur ábyrgð á tugum sjálfsmorðs-
árása í Israel.
fsraelsmenn hafna við-
ræðum við Hamas
fsraelsmenn hafna öllum viðræðum
sem Hamas-samtökin koma að
nema þau afvopnist og falli frá
áformum um eyðingu fsraels. Sumir
telja þó að Hamas sé hugsanlega að
ganga í gegnum breytingar og af-
staða þeirra sé að mildast. Framboð
þeirra eitt og sér þykir vera til marks
um það en þau buðu ekki fram árið
1996.
Samtökin geta að miklu leyti
þakkað fylgisaukninguna góðgerðar-
starfi sínu og baráttu gegn spillingu.
Þó að ekki sé kveðið á um eyðingu
fsraels í stefnuskrá þeirra segja tals-
menn þeirra að það takmark hafi
ekki breyst.
Samir Mohammed Noor, starfsmað-
ur Reuters, var frelsinu feginn í gær.
Starfsmaður
Reuters
látinn laus
Bandaríski herinn lét í gær lausan
myndatökumann Reuters-fréttastof-
unnar eítir að hafa haldið honum í
fangelsi í næstum átta mánuði án
þess að leggja fram ákærur gegn
honum. Samir Mohammed Noor
var þriðji starfsmaður Reuters
sem sleppt hefur verið úr haldi
heryfirvalda en hinum tveimur
var sleppt fyrir viku síðan. Að
minnsta kosti tveir fjölmiðla-
menn sem vinna fyrir alþjóðlegar
fréttastofur eru enn í haldi.
Noor, sem er 30 ára, var handtek-
inn í júní á heimili sínu i borginni
Tal Afar sem hefur verið eitt af
höfuðvígum uppreisnarmanna
í frak. Hann var meðal annars
í haldi í Abu Ghraib fangelsinu
og Bucca í suðurhluta landsins.
„Við erum fegin því að allir fjöl-
miðlamenn sem starfa fyrir Reuters
eru nú frjálsir," sagði David Schles-
inger, yfirmaður hjá Reuters. Hann
sagði þó að menn hefðu áhyggjur
af því hversu langan tíma það hefði
tekið að fá fólkið laust, ekki síst í
ljósi þess að ekki voru til staðar
trúverðug sönnunargögn gegn því.
Skarð
Rugova vandfyllt
Viðrœðum umframtíð Kosovo frestað
Ekki er ljóst hver mun fylla skarð
Ibrahim Rugova, forseta Kosovo-hér-
aðs, sem lést úr lungnakrabbameini
á laugardag, 61 árs að aldri. Fyrir-
huguðum viðræðum um framtíðar-
skipan mála í Kosovo hefur verið
frestað til upphafs næsta mánaðar
vegna andláts hans. Viðræður milli
yfirvalda í Serbíu og Kosovo-Albana
áttu að hefjast í Vín á miðvikudag.
fbúar Kosovo-héraðs hafa jafnframt
margir hverjir áhyggjur af hvaða
áhrif andlát hans muni hafa á sjálf-
stæðisbaráttu albanska minnihlut-
ans í héraðinu.
Þó að Kosovo tilheyri enn Serbíu
Edge barstóll
- ftölsk hönnun og framleiösla
Minningarathöfn um Ibrahim Rugova f
Pristina, höfuðborg Kosovo-héraðs.
hefur héraðið verið undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafs-
bandalagsins síðan um mitt ár 1999
eftir að bandalagið hrakti á brott
hersveitir Slobodan Milosevic.
Samúðarskeyti hafa borist hvað-
anæva að vegna andláts mannsins
sem sumir kalla „Ghandi Balkan-
skagans". Fulltrúar Sameinuðu þjóð-
anna og héraðsstjórn Kosovo hittust
tvisvar á laugardag til að koma sér
saman um eftirmann Rugova til að
leiða viðræðunefndina. Að loknum
fundunum gáfu yfirvöld eingöngu
út stutta tilkynningu þar sem
Rugova var vottuð virðing og íbúar í
hinu róstusama héraði hvattir til að
halda ró sinni. Nexhat Daci, forseti
þingsins, hefur tímabundið tekið
við embætti forseta.
Eldfimt ástand í Nepal:
Atök skæruliða og stjórnarhers
Að minnsta kosti 20 manns fórust
þegar átök brutust út á milli upp-
reisnarmanna Maóista og stjórn-
arhermanna í Nepal. Heryfirvöld
greindu frá þessu í gær. Skothríðin
hófst á laugardag þegar uppreisnar-
menn réðust á varðflokk hersins í
þorpinu Phapar Badi, um 160 km
sunnan við höfuðborgina Katm-
andu. Að sögn heimildarmanns
innan hins konunglega hers Nepals
féllu 14 uppreisnarmenn, 5 hermenn
og einn lögreglumaður í átökunum.
Skæruliðarnir, sem segjast vera
undir áhrifum kínverska byltingar-
leiðtogans Maó Tsetung, vilja koma
á sósíalísku ríki í stað konungsveld-
Lögregla f Katmandu handtekur lýðræöis-
sinna eftir mótmæli gegn konungsveld-
inuum helgina.
isins. Barátta þeirra hófst fyrir um
áratug og hefur kostað um 12.000
mannslíf. Nokkrir lögreglumenn
hafa verið drepnir eða særðir í Nepal
síðan 2. janúar þegar uppreisnar-
menn bundu enda á einhliða vopna-
hlé sem staðið hefur í fjóra mánuði.
Á laugardag kom einnig til átaka
á milli lögreglu og hundruða mót-
mælenda sem kröfðust afsagnar
Gyanendra konungs en hann rak
bráðabirgðaríkisstjórn landsins
og tók sér alræðisvald í fyrra. Að
minnsta kosti 300 voru handteknir
og 50 slösuðust í átökunum. Tveir
helstu stjórnmálaflokkar landsins
hafa heitið því að virða bann við
mótmælum að vettugi þangað til að
Gyanendra afsalar sér völdum.
ffl&m *
isny *
Líves ^
lustfor ,
a CoatP;
mn I
www.FurlsDead.com
'<)II IIII
P
L - M £ rjjá
Félagar f dýraverndunarsamtökunum PETA og AnimaNaturalis vöktu óskipta athygli vegfarenda í Barcelona þegar þeir sviptu sig
klæðum og lögðust naktir á götuna fyrir utan ráðhús borgarinnar á laugardag. Alls tóku 70 manns þátt í gjörningnum sem ætlað var
að vekja athygli á þjáningum loðdýra en til að búa til einn loðfelld þarf skinn af um 70 minkum.
Betra skiputag á nýju árí!
...meðskrifstofuvörum frá Múlalundi
339kr. pr.stk,
Fax: 552-8819 • www.mufalundur.is
Skrifborðs
Mottur
■J A-4 & A-5 ! t »
iboðs.. moppur
Vinnustofa SÍBS
V Hátúni IQc • 5; 562-8500 •