blaðið - 23.01.2006, Side 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 blaöi6
íhaldsmönnum spáð sigri
Stephen Harper verður að öllum líkindum nœsti forsœtisráðherra Kanada en íhaldsflokki
hans hefur verið spáð sigri í þingkosningunum sem fram fara í dag. Þar með yrði endir
bundinn á 12 ára valdatíð frjálslyndra í landinu.
Ihaldsmönnum, með Stephen Har-
per í fararbroddi, er spáð sigri í
þingkosningunum í Kanada sem
fram fara í dag. Paul Martin, forsæt-
isráðherra Kanada og leiðtogi frjáls-
lyndra, var með öruggt forskot á Har-
per í upphafi kosningabaráttunnar í
nóvember en síðan hefur dæmið
algerlega snúist við og útlit fyrir að
Harper muni binda enda á 12 ára
valdatíð Frjálslynda flokksins.
Harper segir að það sé mikilvægt
að segja skilið við hneykslismál
sem áttu sér stað í stjórnartíð frjáls-
lyndra og takast á við þau vandamál
sem herja á venjulega Kanadamenn.
Martin segir aftur á móti að sýn Har-
pers sé í andstöðu við félagsleg gildi
Kanadamanna. „Við erum með
flokk (íhaldsmenn) sem sækir fyr-
irmynd sína lengst til hægri í hreyf-
ingu bandarískra íhaldsmanna,“
sagði Martin á kosningafundi á
dögunum.
„Eitt get ég sagt þér, Stephen Har-
per, við höfum okkar eigin gildi
í Kanada,“ sagði Martin en hann
hefur áður lýst því yfir að Harper
muni fylgja stefnu bandarískra
stjórnvalda í málum á borð við
uppsetningu varnarkerfis gegn
flugskeytum og takmörkun á losun
gróðurhúsalofttegunda.
Deilt um giftingar
samkynhneigðra
Martin hefur jafnframt sagt að
Harper hafi í hyggju að draga úr rétt-
indum kvenna til að gangast undir
fóstureyðingu þó að Harper hafi
reyndar heitið því að gera það ekki.
Ennfremur hefur Martin gagnrýnt
Harper fyrir áætlanir hans um að
fella úr gildi lög sem heimila gift-
ingar samkynhneigðra.
Harper hefur aftur á móti lofað því
að draga úr skattlagningu, bæta heil-
brigðisþjónustu, draga úr glæpum
og hreinsa til í stjórnkerfinu.
„Ég held að Martin sé að gera
mistök með því að tala um málefni
sem enginn vill tala um í stað þess
að segja fólki af hverju það ætti að
kjósa flokkinn hans,“ sagði Harper.
Frambjóðendur grípa til ýmissa ráða til að afla sér vinsælda skömmu fyrir kosningar.
Hér bregður Paul Martin, forsætisráðherra Kanada og frambjóðandi frjálslyndra, á leik í
Menningarmiðstöð í Manitoba.
UTSALA
Nú
50%
afsláttur af útsöluvörum
RALPH LAUREN
Laugavegi 40
Hneykslismál skekja frjálslynda jafnaðar-
menn á Bretlandi:
Leiðtogaefni segir
af sér vegna
kynlífshneykslis
Mark Oaten, sem hefur verið tals-
maður frjálslyndra jafnaðarmanna
í innanríkismálum á breska þing-
inu, hefur dregið framboð sitt til
leiðtoga flokksins til baka í kjölfar
kynlífshneykslis. í ljós hefur komið
að Oaten, sem er 41 árs, kvæntur og
tveggja barna faðir, átti í leynilegu
sambandi við 23 ára gamlan mann
sem selur blíðu sína.
Chris Huhne sem vonast til að
verða næsti leiðtogi flokksins sagði
að málið væri slæmt en menn skyldu
þó ekki ofmeta áhrif afsagnarinnar
á flokkinn. „Við erum stór flokkur
og höfum meira en nóg af hæfileika-
fólki innan okkar raða,“ sagði hann.
Afsögn Oatens á sér stað aðeins
örfáum vikum eftir að Charles
Kennedy sagði af sér formennsku
vegna áfengisvandamála. Þá eru
aðeins örfáir dagar síðan McNally
lávarður, leiðtogi frjálslyndra jafnað-
armanna í lávarðadeildinni, viður-
kenndi að hann hefði átt við áfengis-
vanda að stríða.
Eftir að Oaten dró sig í hlé eru
Huhne, Sir Menzies og Simon Hug-
Kynlifshneyksli varð leiðtogaefninu Mark
Oaten að falli.
hes einir eftir í framboði til leiðtoga
flokksins. Alistair Carmichael hefur
tekið við tímabundið sem talsmaður
innanríkismála fyrir Frjálslynda
jafnaðarmannaflokkinn.
Fjögur
systkini fórust
Að minnsta kosti 11 manns fórust
í árásum uppreisnarmanna í
nágrenni Bagdad í gær. 1 hópi
fallinna voru fjögur systkini.börn
lögreglumanns í borginni Balad
Ruz, 72 km norðaustur af höfuð-
borginni. Uppreisnarmenn skutu
flugskeytum á heimili lögreglu-
mannsins og fórust börnin sem
voru á aldrinum 6-11 ára og frændi
þeirra. Lögreglumaðurinn slapp
heill á húfi en kona hans særðist.
1 gær fundust einnig lík Sayid
Ibrahim Ali, háttsetts leiðtoga
súnníaraba, og sonar hans á
opnu svæði í grennd við borgina
Hawija, um 240 km norður af
Bagdad. Feðgarnir voru skotnir
til bana á laugardag er þeir
voru á heimleið úr jarðarför.
Þá fórust fjórir lögreglumenn og
níu særðust þegar sprengja sprakk
í vegarkanti í Baqouba skömmu
fyrir dögun. Þrátt fyrir hrinu of-
beldis í gær sagði háttsettur foringi
í bandaríska hernum að árásir í
landinu öllu hefðu dregist saman
um 40% í vikunni miðað við vikuna
á undan. í Bagdad drógst tíðni
Kjarreldar
í Astralíu
Slökkviliðsmenn börðust við kjarr-
elda í þremur fylkjum Ástralíu um
helgina. Eldarnir breiddust hratt út
enda hlýtt í veðri og vindasamt. Eld-
arnir loguðu á stórum svæðum í Vikt-
oríu, Suður-Ástralíu og Tasmaníu en
síðdegis í gær hafði aðeins lítilsháttar
eignatjón orðið af þeirra völdum.
í Suður-Ástralíu þurffi að kalla
út liðsauka frá Nýju-Suður-Wales
til að reyna að ráða niðurlögum
þriggja stórra kjarrelda.
ISuður-Ástralíu höfðu þegar
meira en 2.000 hektarar lands
orðið eldinum að bráð í gær og
heimili voru í hættu. Þá voru
meira en 4.000 heimili án raf-
magns í Adelaide vegna eldanna.
I Viktoríufylki höfðu um 1.000
hektarar lands brunnið í gær og
var eldurinn farinn að nálgast
bæinn Anakie suðvestur af Melbo-
urne. Þar að auki loguðu eldar á
þremur öðrum stöðum í fylkinu.
Þriðjungur
Frakka talar
ekki ensku
Erlendir ferðamenn í Frakklandi
hafa oft kvartað yfir lítilli ensku-
kunnáttu heimamanna. Þessar
kvartanir eru ekki úr lausu lofti
gripnar því rúmlega þriðjungur
Frakka talar ekki ensku samkvæmt
nýrri könnun. Engu að síður telur
rúmlega helmingur þeirra mik-
ilvægt að læra erlent tungumál í
skóla. Könnunin leiddi í ljós að 34%
aðspurðra sögðust ekki tala ensku,
12% sögðust tala hana reiprenn-
andi, og 6% skildu hana og töluðu
ágætlega en tæpur helmingur
sagði enskukunnáttu sína slæma.
RAMMADAGAR
Komið og gerið góð kaup
10-60% afsláttur
af myndarömmum dagana 23. janúar tii 4. febrúar
®!i FUJIFILM
www.ljosmyndavorur.is
Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450