blaðið - 23.01.2006, Síða 12
12 I BÍLAR
MÁNUDAGUR 23. JANÖAR 2006 bla6Í6
Gómuð i frygðarlegum
stellingum með Dodge Challenger
Hann er enda hvers manns hugljúfi
Öryggisverðir við alþjóðlegu norður-
amerísku bílasýninguna í Detroit
urðu furðu lostnir um kl. tvö aðfar-
arnótt sl. þriðjudags er þeir gengu
fram á allsnakta konu í frygðar-
legum stellingum á húddi vöðvabíls-
ins Dodge Challenger er þar var til
sýnis. Var konan umkringd æstum
karlpeningi sem smellti af henni
myndum í gríð og erg. Ekki er vitað
hvað konunni gekk til, eða hvernig
henni tókst að laumast inn í sýning-
arsalinn, en af fjölmiðlum er fjalla
um bílamál má ráða að sú athöfn að
halla sér nakinn upp að sportlegum
bílum sé sérstakt áhugamál sumra
fulltrúa kvenþjóðarinnar.
Með þá vitneskju í farteskinu
höfðu fulltrúar Chrysler bílasmiðj-
unnar einmitt fengið hina kynþokka-
fullu Evu Longoriu, úr þáttunum um
eiginkonurnar aðþrengdu, til þess
að stilla sér upp við nýjasta módelið
af Imperial lúxusbíl þeirra.
Challenger eintakið sem frygðar-
fyllta konan kaus að halla sér upp að
er annars merkileg bifreið. Hún er
enn á tilrauna- eðahugmyndastiginu
en áætlað er að hann fari á markað
árið 2007 eða 2008. Er um að ræða
endurvakningu á gamla Challenger
módelinu, þó með viðeigandi við-
og endurbótum í takt við tímann.
Módelbíllinn sem var til sýnis er þó
ekki til stórræðanna enda byggður
úr trefjagleri frekar en hinum hefð-
bundnu bílagerðarefnum.
Dodge Challenger er fallegur bfll á að Ifta. Gaman væri ef nektarmódelið hressa væri
með á myndinni.
Varnir gegn þrálátum bílakulda
Margt er til ráða
Veturinn hefur sjálfsagt ekki farið
fram hjá neinum upp á síðkastið
og mikið er hann hressandi. Loftið
hreint og frískandi og göturnar
glampa hvítum bjarma á nærliggj-
andi byggingar. En veturinn er ekki
bara grín og gaman, honum fylgir
oft gífurlegur kuldi sem nístir inn
að beini og gerir bæði menn og bif-
reiðar hæga í gang. Hver kannast
ekki við að setjast í kaldan bíl á
mánudagsmorgni og eyða í kjölfarið
næstu fjórum klukkustundunum
í að koma hita í kroppinn á ný?
Góðir vísindamenn hafa hins vegar
fundið lausn á þessu vandamáli líkt
og flestum þeim er hrjá mennina.
Hér er ekki vísað til gróðurhúsa-
áhrifanna margfrægu, heldur hinna
ýmsu tækja og tóla sem ætlað er að
hjálpa bílnum að hitna á köldum
morgnum. Páll Eyvindsson hjá Bíla-
nausti féllst á að segja lesendum
Blaðsins frá nokkrum slíkum.
„Mér detta helst þrenn úrræði
í hug gegn bílakulda," segir Páll.
,Fjarstartið, þegar startari bifreiðar-
innar er tengdur við fjarstýringu
þannig að hann má ræsa meðan
morgunkaffið er drukkið, er einna
vinsælast. Það er þó einn af óæski-
legri kostunum að mínu mati. Með
því móti mallar bíllinn í hægagangi,
eyðir óþarfa eldsneyti og er lengi að
hita sig.“
Bensín- og dísilfíringar
Betri kosti segir Páll vera svokallaðar
bensín- og dísilfíringar sem setja má
í bílinn. Þær má stilla þannig að þær
fari sjálfkrafa í gang á gefnum tíma
(einhverju áður en lagt er af stað
til vinnu). Fíringarnar eru tengdar
inn á vatnsgang bifreiðarinnar og
hita upp vatnið á kælikerfi hennar
þannig að hann verði tilbúinn til
gangsetningar. „Miðstöðin er fljót-
ari að hitna fyrir vikið og um leið
sparast bensín í kaldræsingunni og
hvað eina. Þetta er ekki ólíkt olíufír-
ingunni sem kveikir upp í heita vatn-
inu þar sem ekki eru hitaveitur.“
Að lokum nefnir Páll sem kost 220
volta element sem virkar á svipaðan
hátt og áðurnefndar fíringar. „Þú
stingur þessu inn í mótorinn með
sama fyrirkomulagi og olíufíring-
unum, nema að hér er um að ræða
hraðsuðuelement, ekki ólíkt því sem
fólk notar oft til te-gerðar. Komið er
fyrir innstungu í grillinu eða fram-
stuðaranum sem er svo notuð til að
tengja elementið við rafmagnsinn-
stungu í grenndinni. Græjan fer svo
ýmist í gang eftir sjálfvirkri tima-
stillingu eða fjarstýringu. Elementið
er ágætur kostur, en lítið notað á Is-
landi. Á hinum Norðurlöndunum
er það hins vegar mjög vinsælt, það
er ekki óalgengt að sjá rafmagns-
pósta ætlaða elementunum á stærri
bílastæðum."
Að lokum, Páll, hvertþessara úrrceða
notarþú til að hitaþinn bíl?
„Ég nota ekkert af þessu, í rauninni.
Starta bara bílnum í gang þegar kalt
er, passa mig yfirleitt að vera vel bú-
inn áður en ég legg af stað.“
haukur@bladid.net
www.flugger.is
Frakkinn Gilles Panizzi ekur Skoda Fabia
bifreið sinni á annarri leið Monte Carlo
rallsins á laugardag.
Monte Carlo rallinu lokið:
Grönholm
sigraði á Focus
Finninn Marcus Grönholm, á
Ford Focus, sigraði í Monte Carlo
rallinu en það er fyrsta rallkeppni
keppnistímabilsins. Grönholm
var rúmri mínútu á undan núver-
andi heimsmeistara, Frakkanum
Sebastien Loeb. Loeb ekur á
Citroén-bifreið fyrir Kronos-liðið. 1
þriðja sæti varð landi Grönholms,
Tony Gardemeister á Peugeot 307.
Grönholm náði yfirhöndinni á
fóstudag eftir að Loeb mistókst að
ljúka síðustu keppnisleið dagsins í
kjölfar óhapps sem hann varð fyrir.
Loeb var fyrstur í mark á
fimm sérleiðum á laugardag en
Grönholm tókst að halda for-
ystunni og var tími hans rúmri
mínútu betri en Frakkans.
Það voru mikil vonbrigði fyrir
Loeb að lenda í öðru sæti en hann
sýndi afburðaökuleikni í rallinu.
Segja má að vonir hans um að sigra
hafi að engu orðið þegar Citroén
Xsara-bifreið hans rann út af
fjallavegi á síðustu leið á fyrsta degi.
Samkvæmt reglum rallsins gat hann
tekið þátt í rallinu á ný eftir að búið
var að gera við bílinn en fimm mín-
útur voru dregnar af honum fyrir að
hafa ekki klárað leiðina. Sú refsing
gerði út um vonir hans á sigri.
Auglýsinqadeild
510-3744
Ritstjórn
510-3799
blaðid=