blaðið - 23.01.2006, Síða 18
22 I ÍPKÓTTIR
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 blaöiö
Enski boltinn:
Man Utd vann stórslaginn
Ensku landsliðsmennirnir Wayne Rooney og Jamie Carragher eigast við á Old Trafford í gær.
Rio Ferdinand tryggði Manchester
United stigin þrjú á lokamínútunni
í stórleik helgarinnar þegar liðið tók
á móti Liverpool á Old Trafford í
gær. Ryan Giggs átti góða sendingu
úr aukaspyrnu sem Ferdinand skall-
aði í netið og kom Jose Reina, mark-
■ vörður Liverpool, engum vörnum
við. Reyndist þetta eina mark leiks-
ins. Liverpool var þó síst lakari aðil-
inn í leiknum og virtust lengi vel lík-
legri til að skora. Átti Djibril Cisse
m.a. dauðafæri fyrir opnu marki
í seinni hálfleik en skot hans fór
yfir markið. Þrír mánuðir eru síðan
Liverpool tapaði síðast leik í úrvals-
deildinni en það var gegn Fulham
þann 22. október. Með sigrinum
hafa United-menn fjögurra stiga
forskot á Liverpool sem er í þriðja
sætinu en þeir síðarnefndu eiga tvo
— leiki til góða.
Jafnt í fslendingaslagnum
Chelsea tapaði sínum fyrstu stigum
á heimavelli á leiktíðinni þegar
liðið gerði jafntefli við Charlton í
gær. Eiður Smári Guðjohnsen kom
Chelsea yfir á 18. mínútu með marki
af stuttu færi eftir að Thomas Myhre
nafði varið skalla frá Flernan Crespo.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks
benti fátt til annars en að Englands-
meistararnir myndu innbyrða sinn
11. sigur í deildinni í röð. Hermann
Hreiðarsson og félagar mættu hins
vegar dýrvitlausir til leiks í síðari
hálfleik og jöfnuðu verðskuldað á
58. mínútu. Var þar að verki Marcus
Bent sem hafði komið inn á sem vara-
maður skömmu áður. Þegar 10 mín-
útur voru til leiksloka var Ricardo
Carvalho rekinn af velli eftir að hafa
fengið tvö gul spjöld. Gestunum
* tókst þó ekki að nýta sér liðsmuninn
og lokatölurnar 1-1 jafntefli.
Enn tapar Arsenal á útivelli
Þrátt fyrir ógrynni marktækifæra
tókst leikmönnum Tottenham ekki
að skora gegn Aston Villa og urðu
að sætta sig við markalaust jafntefli.
Þeir halda þó enn fjórða sætinu, sem
gefur rétt til að leika í Evrópukeppni
meistaraliða, og hafa fjögurra stiga
forskot á erkifjendurna í Arsenal.
Arsenal tókst ekki að fylgja eftir
glæstum 7-0 sigri á Middlesbrough
síðustu helgi því þeir lágu fyrir Ev-
erton á Goodison Park 1-0. Er þetta
6. útileikurinn á leiktíðinni sem
Arsenal tapar og þurfa þeir heldur
betur að spýta í lófana ætli þeir sér
að ná 4. sætinu.
Ófarir Newcastle ætla engan endi
að taka en liðið tapaði á heimavelli
gegn Blackburn 0-1. Er nú farið að
hitna verulega undir Graeme Sou-
ness, stjóra liðsins, en liðið er í 14.
sæti með 26 stig og hefur aðeins
fengið eitt stig úr síðustu fimm
leikjum.
Sunderland vann sinn annan
sigur á leiktíðinni í fallslag gegn
W.B.A 0-1 og Birmingham burstaði
Portsmouth 5-0 í öðrum fallslag. Þá
heldur ævintýri Wigan áfram en
liðið sigraði Middlesbrough, sem á
í stökustu vandræðum um þessar
mundir, 2-3 á útivelli.
Úrslitin í ensku úrvals-
deildinni um heigina:
Man Utd - Liverpool 1-0
Chelsea -Charlton 1-1
Birmingham - Portsmouth 5-0
Bolton - Man City 2-0
Everton - Arsenal 1-0
Middlesbrough - Wigan 2-3
Newcastle - Blackburn 0-1
Tottenham - Aston Villa 0-0
W.B.A.-Sunderland 0-1
Hagnaður
Man Utd.
minnkar
Hagnaður
Manchester
United effir
tímabilið
2004-05
var 46 millj-
ónir punda
sem er 12,3
milljónum minna en árið áður.
David Gill, stjórnarformaður
félagsins, segir meginástæð-
una fýrir tekjutapinu vera að
hagnaður vegna sjónvarpsút-
sendinga hafi minnkað stór-
lega.„Þetta hefur verið mjög
arðbært ár fyrir félagið og þrátt
fýrir tekjutapið er Malcolm
Glazer (eigandi liðsins) sáttur
með útkomuna,“ sagði Gill í
samtah við sjónvarpsstöðina
BBC. Þá varði Gill umboðs-
greiðslur félagsins en United
hefur verið gagnrýnt fyrir að
greiða umboðsmanninum
Paul Stretford 1,5 milljónir
punda í tengslum við kaupin
á Wayne Rooney frá Everton.
GiÚ sagðist vera bjartsýnn á
komandi ár þrátt fyrir að Un-
ited hafi ekki komist í 16-liða úr-
slit meistaradeildarinnar. Verið
væri að stækka Old Trafford
um 8.000 sæti og framtíðin hjá
félaginu væri björt. Þá vakti
hann einnig máls á því að Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri
United, hefði fullan stuðning
stjórnarinnar þrátt fyrir ófar-
irnar í meistaradeildinni og að
enski meistaratitillinn væri að
öllum líkindum genginn þeim
úr greipum. „Alex hefur fullan
stuðning allra. Ég hef engar
fyrirætlanir um að leita að stað-
gengli fyrir hann,“ sagði Gill.
m
Fabio Cannavaro fagnar sigurmarki sfnu gegn Empoli f gær.
ítalski boltinn:
Toppliðin sigruðu
Juventus heldur áfram sigurgöngu
sinni á heimavelli í ítölsku knatt-
spyrnunni en liðið sigraði Empoli
2-1 í Tórínóborg í gær. Það voru þó
gestirnir sem komust yfir strax á 3.
mínútu en ítalski landsliðsmaður-
inn Fabio Cannavaro skoraði tvö
mörk og sá til þess að ítölsku meist-
ararnir tækju stigin þrjú. AC Milan
vann góðan útisigur á Siena 0-3 með
mörkum frá Andryi Schevchenko
og tveimur frá Kaka og Róma vann
sömuleiðis stórsigur á Udinese, 1-4,
á útivelli. Á laugardagskvöldið fékk
Inter Palermo í heimsókn og sigraði
örugglega 3-0. Juventus er því sem
fyrr í efsta sætinu með 53 stig, Inter
er með 48 og AC Milan í því þriðja
með 43.
efíf,
Startarar
Altenatorar
fyrír
Fólksbíla
Vörubíla og
vlnnuvélar
elnnlg aðrlr
varahlutir
Rauðagerði 64 s.553 1244 ijosboginnehf@simnet.is
Þú finnur íþróttaferð við þitt hæfi á www.expressferdir.is
Express Ferðir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100
Spilling í ensku
úrvalsdeildinni
Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálf-
ari Englands, segir að spilling ríki
í ensku úrvalsdeildinni og að þrjú
félög hafi gerst sek um að greiða
knattspyrnumönnum ólöglega til
að lokka þá til liðs við sig. Þetta
kom fram í dagblaðinu News of the
World í gær en af ótta við lögsóknir
vildi blaðið ekki birta nöfn þeirra fé-
laga sem Eriksson á að hafa rætt um.
Blaðið gefur þó ýmsar vísbendingar
um það um hvaða félög sé að ræða.
Eriksson lét hafa þetta eftir sér á
fundi sem hann átti við blaðamann
blaðsins sem dulbjó sig sem arab-
ískur höfðingi. Fundurinn var hald-
inn undir því yfirskini að „arabíski
höfðinginn" vildi kaupa úrvalsdeild-
arliðið Aston Villa og fá Eriksson til
að gerast knattspyrnustjóri liðsins.
Ummæli enska landsliðsþjálf-
arans koma í kjölfar sams konar
ásakana frá knattspyrnustjóra Lu-
ton Town, Mike Newell. Newell átti
fund með enska knattspyrnusam-
bandinu síðastliðinn miðvikudag
þar sem hann kvartaði yfir vinnu-
brögðum stórliða og sagði þau beita
ólöglegum aðferðum við að nálgast
leikmenn þar sem himinháum upp-
hæðum væri lofað undir borðið.
Ferguson átti að hætta
eftir þrennuna
Á fundinum talaði Eriksson óvar-
lega um nokkra leikmenn enska
landsliðsins og birtust þau ummæli
Sven-Göran Eriksson
á dögunum og hafa valdið miklu
fjaðrafoki. Sagði hann m.a. að Mi-
chael Owen væri ekki ánægður hjá
Newcastle, að Rio Ferdinand ætti
það til að vera latur og að David Beck-
ham myndi snúa aftur til Englands
ef Eriksson bæði hann um það. Frétt
News of the World þótti afar neyðar-
leg fyrir Eriksson en ensku landsliðs-
mennirnir sem um var rætt hafa þó
staðið þétt að baki stjóra síns og lýst
yfir áframhaldandi og einlægum
stuðningi við hann. Eftir að fréttin
birtist tilkynnti Eriksson að hann
myndi að öllum líkindum lögsækja
blaðið.
Eriksson lét einnig hafa eftir sér á
fundinum að Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester United,
hefði átt að hætta eftir að liðið vann
meistaradeildina árið 1999. „Eftir að
þeir unnu þrennuna hefði Ferguson
einfaldlega átt að segja takk fyrir og
bless,“ sagði Eriksson.
í ByýjP iy- M**’ \
li|í
r ' ! %
f-Jh
4
ÉH
'|P - i, •*. 1
Dean Ashton
WestHam
færliðsstyrk
Enska úrvalsdeildarliðið West
Ham hefur gengið frá kaupum
á enska sóknarmanninum
Dean Ashton frá Norwich
City. Kaupverðið fyrir hinn
22 ára gamla leikmann er
7,25 milljónir punda en það
er metgreiðsla hjá Hömr-
unum. Ashton var keyptur til
Norwich frá Crewe fyrir ári
síðan og kostaði þá 3 milljónir
punda en hann hefiir skorað
18 mörk í 46 leikjum fyrir
Norwich. West Ham ætti því
ekki að vera á flæðiskeri statt
hvað framherja varðar því
Bobby Zamora, annar sókn-
armaður liðsins, framlengdi
á dögunum samning sinn
við félagið til ársins 2010.