blaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 blaðiö
Félagar í Kommúnistaflokknum
gagnrýna ritskoöun yfirvalda
Fyrrum háttsettir félagar í kínverska Kommúnistaflokknum vara yfirvöld
viö þvf aö ströng ritskoðun geti haft hörmulegar afleiðingar í för með sér.
Hópur fyrrum háttsettra félaga í
kínverska Kommúnistaflokknum
hefur gagnrýnt harðlega meðferð
yfirvalda á fjölmiðlum og upp-
lýsingamiðlun. í opnu bréfi til
yfirvalda sem birt var á þriðjudag
fordæmir hópurinn nýlega lokun
dagblaðsins Bingdian.
Höfundar bréfsins vara við því að
ströng ritskoðun kunni að hafa
hörmulegar afleiðingar í för með sér
fyrir þau umskipti sem eiga sér stað
í stjórnmálum landsins.
„Sagan hefur sýnt okkur að
aðeins einræðisstjórn þarf að rit-
skoða fréttir vegna þeirrar rang-
hugmyndar að hún geti haldið
almenningi í fáfræði," stendur í
bréfi hópsins. Bréfið var undirritað
2. febrúar en var birt opinberlega á
þriðjudag.
Það sem kemur einna mest á
óvart við þessa gagnrýni er að hún
skuli vera lögð fram af háttsettum
félögum í Kommúnistaflokknum.
Á meðal þeirra sem undirrita bréfið
eru Li Rui, fyrrum aðstoðarmaður
Maó Tsetung, Hu Jiwei, fyrrverandi
ritstjóri málgagns flokksins og Zhu
Houze, fyrrverandi áróðursmeistari
Kommúnistaflokksins.
Dagblaðið vakti reiði yfirvalda
Dagblaðið Bingdian sem einkum
sinnir rannsóknablaðamennsku
hefur nokkrum sinnum vakið
reiði yfirvalda á undanförnum
mánuðum.
Li Datong, ritstjóri blaðsins, sagði
í viðtali við breska ríkisútvarpið
(BBC) að yfirvöld hefðu lokað blað-
inu vegna greinar eftir Yuan Weishi,
prófessor við Zhongshan-háskóla,
sem birtist n. janúar. Yuan gagn-
rýnir sögukennslu í Kína i greininni
og segir meðal annars að í sögu-
bókum sé sök yfirvalda aldrei við-
urkennd heldur sé skuldinni skellt
á aðra.
Samtökin Blaðamenn án landa-
mæra hafa margoft gagnrýnt þær
hömlur sem settar eru á fjölmiðla í
Kína og segja að kínverskum blaða-
mönnum sé oft bannað að fjalla um
viðkvæm mál. Á lista yfir frelsi fjöl-
miðla á síðasta ári lenti Kína í 159.
sæti af 167.
Grunur um kosningasvindl á Haítí
ibúi í Port-au-Prince virðir fyrir sér kjörseðil á ruslahaugum fyrir utan Port-au-Prince, höfuðborg Haítfs. René Préval, frambjóðandi í
forsetakosningunum í landinu sagði á þriðjudag að komið hefði verið í veg fyrir að hann ynni sigur í fyrstu umferð kosninganna með
stórfelldu svindli. Bráðabirgðastjórnin á Haítí hefur fyrirskipað rannsókn á því hvort eitthvað sé hæft í ásökunum Prévals og verða
endanleg úrslit ekki tilkynnt fyrr en niðurstöður hennar liggja fyrir
Reykingabann
á Englandi
Þeir sem starfa að heilbrigðismálum
á Englandi fagna nýjum lögum sem
banna reykingar á krám, veitinga-
stöðum og klúbbum í landinu frá
og með næsta sumri. Þingmenn á
breska þinginu samþykktu á þriðju-
dag að banna reykingar í öllum lok-
uðum rýmum en deilur höfðu staðið
mánuðum saman um tillöguna. Patr-
iciaHewitt, heilbrigðisráðherra, segir
að lögin muni „bjarga þúsundum
mannslífa“ og opinber stofnun sem
sinnir krabbameinsrannsóknum
sagði að þetta væri mesta framfara-
skref sem stigið hafi verið í þágu
heilsu almennings í hálfa öld.
Simon Clark, sem er í forsvari
stuðningssamtaka reykingamanna,
sagði að þau hefðu tapað þessari
orustu en ekki endilega stríðinu.
„Fólk mun halda áfram að reykja og
sú hugmynd að allir muni hætta að
reykja vegna þess eins að þeir geti
ekki reykt á krám er vitleysa," sagði
hann í viðtali við breska ríkisút-
varpið í gær.
Andstæðingar laganna hafa
einnig gagnrýnt það vegna þess að
þeir telja að bannið brjóti gegn borg-
aralegum réttindum.
Reuters
Mynd af nöktum og kefluðum fanga i Abu Ghraib fangelsinu í (rak. Áður óbirtar myndir
sem teknar voru í fangelsinu alræmda árið 2003 voru birtar í sjónvarpsþætti í Ástralíu
í gær.
Nýjar myndir af
misþyrmingum
Ástralska sjónvarpsstöðin SBS sýndi
í gær nýjar ljósmyndir og mynd-
bandsupptökur af misþyrmingum
bandarískra hermanna á íröskum
föngum í Abu Ghraib fangelsinu í
Irak. Á einu myndbandanna sést
maður berja höfði við vegg og á
öðru sjást íangar sem neyddir hafa
verið til að stunda sjálfsfróun fyrir
framan myndavélar. Sumar mynd-
anna sýndu höfuð- og líkamsáverka
á föngum.
Á nokkrum myndanna sjást
hermenn sem þegar hafa verið sak-
felldir fyrir illa meðferð á föngum.
Þar á meðal eru Lynndie England
og Charles Graner sem saksóknarar
segja að hafi verið höfuðpaurinn.
I sjónvarpsþættinum kom fram
að myndirnar hefðu verið notaðar
sem sönnunargögn í réttarhöldum
í Bandaríkjunum og að bandarísk
stjórnvöld hefðu reynt að koma í veg
fyrir birtingu þeirra.
Talsmaður bandaríska varnar-
málaráðuneytisins sagði að misnotk-
unin á föngunum væri sorgleg og
hefði skaðað ímynd þjóðarinnar.
Óttast er að birting myndanna
auki enn á þá ólgu sem ríkir í löndum
múslima vegna frétta af misþyrm-
ingum breskra hermanna í Basra
og birtingar á umdeildum skop-
myndum af Múhameð spámanni.
GARÐHEIMAR
heimur heillandi i
hluta og hugmynda
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
' •* v ^ www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is