blaðið

Ulloq

blaðið - 16.02.2006, Qupperneq 25

blaðið - 16.02.2006, Qupperneq 25
blaðið FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 BÖRN OG UPPELDI I 25 Öll börn á aldrinum 5-7 ára liggja þessa dagana yfir Orkubók Latabæjar og velta fyrir sér hvort þau hafi borðað nægilega mikið af grænmeti, kjötmeti, ávöxtum og vatni. Eins passa þau upp á að þrífa herbergin sín, hreyfa sig og tannbursta. Þrátt fyrir að þetta hljómi eins og draumur þá eru ekki allir foreldrar sáttir við þessa markaðsherferð. Reynir Harðarson sálfræðingur er einn þeirra og í samtali við Blaðið segir hann frá „lúmskri markaðs- herferð og óþarfa ábyrgð“ sem er varpað á kornung börn. „Mér finnst athugaverðast að það sé verið að varpa óþarfa ábyrgð á kornung börn. Eg hef reynt að halda dóttir minni frá þessu eftir fremsta megni en það gerist sífellt erfiðara. Það eru allir í leikskólanum að tala um þetta, þetta er í sjónvarpinu og blöðunum. Það er ekki undan þessu vikið,“ segir Reynir og tekur fram að honum finnst samræmið á milli stig- anna afar skrýtið. „Það er jafn mik- ilvægt að fara snemma að sofa og drekka vatn en fyrir það fá börnin +10 stig. Ef ég tala fyrir dóttir mína þá hefur hún engan skilning á þessum tölum og uppsöfnun á stigum. Satt best að segja vil ég ekki að hún fari að líta á mat sem keppi- kefli og finni til samviskubits ef hún stendur sig ekki nógu vel eða fái mín- usstig ef hún veitir sér eitthvað eða er veitt eitthvað. Ég vil að það geti verið ánægjulegt og jákvætt.“ Einum of Reynir segir að honum finnist sem það sé farið meira af kappi en forsjá í þetta allt saman. „Ástæðan er sú að það eru allir svo uppteknir af hreysti og hollustu. Sumir átta sig ekki á að það geti verið eitthvað athugavert við þetta að einu eða neinu leyti. Þetta er skemmtilegt fyrir krakkana að fá svona límmiða og fá eitthvað til að keppast að og mér finnst svona umbunakerfi ágæt en kannski ætti þetta kerfi að vera fyrir foreldra og börn. Ég hef séð þess dæmi að börn eru mjög meðvituð um þetta kerfi og neita sér um góðgæti í veislum og í heimsóknum hjá afa og ömmu. Mér finnst það einum of,“ segir Reynir og bætir við að svona geti líka haft neikvæð áhrif. „Ef krakkar hafa til- hneigingu til áráttu/þráhyggju þá getur þetta verið fínn farvegur fyrir það. Þá erum við komin með átrask- anir á æðra plan, hjá kornabörnum, og það nær engri átt.“ Ekki á móti hollu Ifferni Sjálfur segist Reynir vera fullfær um að sjá til þess að dóttir hans fái hollustu og hann telur að það eigi við um flesta. „Ég er alls ekki á móti hollu líferni, góðu matarræði, tiltekt, tannburstun og þess háttar,“ segir Reynir og hlær. „En það eru aðrir þættir sem gleymast oft, eins og sam- vera með börnunum, að lesa fyrir þau og aðrir jákvæðir þættir í þeirra skapgerð og persónuleika. Kannski hentar þetta mörgum sérlega vel en ef allt gengur vel heima fyrir þá finnst mér að það eigi ekki að koma svona kerfi í höfuðið á börnunum." Tiltekin merki álitin góð og jákvæð Reynir segir að þessi mikla markaðs- herferð sé það versta við Orkuátak Latabæjar. „Mér finnst langverst að þetta er markaðsherferð fyrir ákveðin fyrirtæki sem eru ekkert endilega að bjóða hollustu vöruna. Það er hægt að finna margt hollara en það sem er á þessum límmiðum en auðvitað festist það í börnum og jafnvel foreldrum að þessi tilteknu merki séu góð og jákvæð. Þetta er lúmsk markaðsherferð sem er beint gegn börnum og foreldrum. Á hinn bóginn skil ég það sjónarmið að til þess að koma þessu á þá þarf styrkt- araðila og þeir vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð en ég vil frábiðja mér þetta.“ svanhvit@bladid. net Reynir Harðarson: „ Ef krakkar hafa til- hneigingu til áráttu/þráhyggju þá getur þetta verið fínn farvegur fyrir það. Þá er- um við komin með átraskanir á æðra plan, hjá kornabörnum, og það nær engri átt. Gcíar vcrur, ac 'JBL flœóunum vííum! Kakari • • Dalvegi 4 • Sími 564 4700 Opið: Mánud.-föstud. 06:00- 18:00, laug. 06:00-17:00, sunn. 07:00-17:00 Hamraborg 14 • Sími 554 4200 Opið: Mánud-laugard. 08:00-18:00, laug. 08:00-16:00, sunn. 09:00-16:00 Markaðsherferð fyrir ákveðin fyrirtæki Sálfræðingur gagnrýnir Orkubók Latabœjar ogsegir hana varpa óþarfa ábyrgð á ung börn aukþess sem hún geti í vissum tilfellum haft neikvœð áhrif

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.