blaðið - 16.02.2006, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 blaöÍA
Hugsanleg stjóraskipti hjá Stoke
íslendingaliðinu Stoke City í
ensku 1. deildinni í knattspyrnu
hefur gengið afleitlega undanfarnar
vikur á fótboltavellinum og hefur
aðeins fengið þrjú stig í níu leikjum.
Ástandið er ekki síður slæmt utan
vallar í efstu stöðum félagsins. Nýi
framkvæmdastjórinn, Johan Bos-
kamp, hefur átt í útistöðum við
John Rudge en hann er eins konar
yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.
Málið er nú komið í þann farveg að
það er fullvíst að annar hvor þeirra,
ef ekki báðir, verða látnir fara frá
Stoke City.
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarfor-
maður Stoke City, sagði í samtali við
útvarpsþáttinn Mín skoðun á XFM í
gær að fyrir lok næsta mánaðar yrðu
þessi mál komin á hreint en það
Johan Boskamp framkvæmdarstjóri
Stoke City
væri nokkuð ljóst að málið yrði ekki
leyst farsællega. Gunnar Þór sagði
ennfremur að það væri vel hugsan-
legt að báðir aðilar, Johan Boskamp,
framkvæmdastjóri, og John Rudge,
yfirmaður íþróttamála, yrðu reknir.
Deila þeirra félaga byrjaði í nóvem-
ber síðastliðnum og þá fór Boskamp
fram á það við stjórn Stoke að John
Rudge yrði rekinn. Stjórn félagsins
varð ekíd við því og vonaði að þeir
næðu saman á ný en það hefur sem
sagt ekki gerst.
Stoke City er sem stendur í 16. sæti
ensku í. deildarinnar með 40 stig og á
sunnudag mætir Stoke úrvalsdeildar-
liði Birmingham í ensku bikarkeppn-
inni, FA-Cup, en leikurinn er í 16-liða
úrslitum keppninnar.
Gunnar Þór sagði í áðurnefndum
útvarpsþætti að það væri mikill lott-
ávinningur ef Stoke tækist að komast í
8-liða úrsht bikarsins og talaði um að
hugsanlega fengjust fyrir það 900.000
sterlingspund sem er jafnvirði um 100
milljóna íslenskra króna.
Dagný Linda lenti í 23. sæti
Akureyrarstúlkan Dagný Linda
Kristjánsdóttir lenti í gær í 23. sæti i
bruni á ólympíuleikunum í Tórínó.
Þetta er svo sannarlega glæsilegur
árangur. 45 konur voru skráðar
til leiks í bruninu og einar fjórar
þeirra luku ekki keppni. Brautin
þótti mjög erfið og skyggni var
ekki gott. Þetta gerir árangur Dag-
nýjar Lindu enn glæsilegri.
Dagný Linda var á tímanum ein
mínúta, 59,43 sekúndur sem var
2,94 sekúndum frá besta tímanum
sem Michaela Dorfmeister frá Aust-
urríki náði. Martina Schild frá
Sviss var önnur og Anja Pársson
frá Svíþjóð varð þriðja.
Árangur hennar er einhver sá
albesti sem íslenskur skíðamaður
hefur náð á vetrarólympíuleikum.
Aðeins fimm aðrir íslenskir kepp-
endur hafa náð betri eða jafn- Benediktsson í 23. sæti, Steinunn og 23. sæti í stórsvigi og svo varð
góðum árangri. Eysteinn Þórðar- Sæmundsdóttir í 16. sæti í svigi, Kristinn Björnsson í 22. sæti í Salt
son varð í 17. sæti í svigi, Kristinn Ásta Halldórsdóttir 20. sæti í svigi Lake City árið 2002.
Dagný Linda Kristjánsdóttir skfðadrottning.
Keflavík vann B-riðilinn í 8. flokki
Um síðustu helgi fór fram heljar-
innar körfuboltamót fyrir stelpur í
8. flokki en það eru stúlkur á 14. ári.
Keppt var í B-riðli og fór keppnin
fram í Rimaskóla. Sigurvegarinn
fluttist svo upp í 4. umferð A-riðils
en þar er keppt um íslandsmeistara-
titilinn í þessum aldursflokki.
Stúlkurnar í Keflavík urðu hlut-
skarpastar. Þær spila í 7. flokki og
keppa því í tveimur flokkum og eru
allar á 13. ári.
Úrslit leikja í mótinu
urðu sem hér segir:
Keflavfk - Grindavík, 28-16,
Grindavík - Fjölnir, 21-16,
Snæfell - Skallagrímur, 29-27,
Grindavík - Snæfell, 21-26,
Keflavík - Snæfell, 44-18,
Skallagrímur - Fjölnir, 25-30,
Keflavík - Fjölnir, 37-17,
Fjölnir - Snæfell, 39-29,
Grindavík - Skallagrímur, 19-20,
Keflavík - Skallagrímur, 40-18.
Lið Keflavíkur varð sigurvegari í
þessum B-riðli. Þær fluttist þá sem
sagt upp í A-riðil og keppa þar um
íslandsmeistaratitilinn.
Stigaskor fyrir Keflavík á mótinu
voru eftirfarandi:
Telma Lind Ásgerisdóttir, 30,
Árný Sif Gestsdóttir, 28, María Ben
Jónsdóttir, 24, Lovísa Falsdóttir, 16,
Kristjana Vigdís Ingvadóttir, 14, Sig-
rún Albertsdóttir, 12, Erna Hákonar-
dóttir, 10, Anita Eva Viðarsdóttir, 5,
Sara Dögg Margeirsdóttir, 4 og He-
lena Ösp Ævarsdóttir 2 stig.
í u M f 'vjfcj
Lið Keflavíkur 1' 7.-og 8. flokki stúlkna f körfubolta fagnaði eftir mótið þar sem þemað var förðun og andlitsmálning af ýmsu tagi.
Olnbogabörn
Jæja, nú er liðinn nógu langur tími
til þess að ég getið snúið mér að
umfjöllun um nýjasta tískufyrir-
bærið í íþróttaheiminum - oln-
bogaskotin. Ég hef haft það fyrir
venju að láta dálítinn tíma líða
áður en ég fjalla um málefni sem
erfitt er að rökræða í tilfinninga-
hita þess augnabliks þar sem mál-
efnið felur í sér persónubundna
aðila - geranda og þolanda. Ég er
reyndar ennþá dálítið reiður út í
Serbann sem rann olnboga sínum
til rifja Ólafs Stefánssonar á EM í
Sviss í handknattleik.
Vitaskuld er notkun þessa líkams-
hluta - olnbogans - engan veginn
nýlunda í átökum flokkaíþrótta,
hvorki í körfuknattleik né öðrum
íþróttagreinum, og hvorki hérlendis
né erlendis. Breytingin hér heima á
Fróni kann einkum að vera fólgin í
auknum fjölda sjónvarpsupptökuvéla
á kappleikjum, samhliða meiri með-
vitund og faglegri þekkingu stjórn-
enda aðildarfélaganna - sem virðast
á köflum búa yfir jafn mörgum sjálf-
boðaliðum í lögfræðiráði eins og í
unglingaráði viðkomandi félags.
Flestir innan körfuknattleikshreyf-
ingarinnar þekkja skoðanir mínar á
kærumálum - eða öllu heldur þeim
atvikum og forsendum sem að baki
þeim búa. Vera kann að meiri hags-
munir leiði til fleiri kærumála og
meiri áherslu á þann þátt starfsem-
innar - og vera kann einfaldlega að
meira sé orðið um slík brot en áður.
Ég held þó ekki.
Ljót og óíþróttamannsleg brot eiga
ekki að sjást í kappleik. Vissulega
geta komið upp tilvik þar sem menn
gleyma sér í hita leiksins eða jafnvel
að um óviljaverk sé að ræða. En ásetn-
ingur, sérstaklega fjarri boltanum,
er einfaldlega óásættanlegur. Um
slíkt verður hreyfingin að senda fyr-
irbyggjandi skilaboð í formi harðra
refsinga.
Fyrir nokkrum vikum urðu fjör-
ugarumræðurinnankörfuknattleiks-
hreyfingarinnar um tiltekin „oln-
bogaskot" og gárungarnir fóru meðal
annars að reyna að bera saman ein-
stök atvik við refsingar aganefndar -
svona eins og hugtakið „olnbogaskot"
væri ávallt skilgreint með sama hætti.
Menn gætu bara sett orðið „olnboga-
skot“ í aganefnd eins og hvern annan
sjálfsala og fengið út samræmdar
niðurstöður.
Málið er auðvitað ekki svo einfalt.
Ávallt þarf að meta ýmis atriði á borð
við það hvort bolti var í leik, hvaða
líkur eru á ásetningi höggsins, hvort
dómari sá brotið og hvaða skýrslu
hann gefur um atvikið, hversu vel
brotið sést á myndbandi o.s.frv.
Agabrot á ekki að leysa
á spjallsíðum
Áganefnd vinnur gríðarlega
mikið og óeigingjarnt starf. Er eitt
af þessum vanmetnu sjálfboðaliða-
störfum innan hreyfingarinnar og
geta aldrei kveðið upp úrskurð án
þess að einhver verði óánægður - og
í rauninni verður enginn ánægður.
Menn eiga að virða störf þessara
aðila og þakka þeim enda eru þetta
gjarnan einstaklingar sem eru ekki
á hverju strái - þurfa að hafa til að
bera jafnvel nauðsynlega menntun
eða mikla reynslu. Eflaust myndu
margir þeirra vilja verja tíma sínum
til annars en slíkra starfa.
Umfjöllun einstakra félaga er auð-
vitað einnig athyglisverð í hverju
dæmi fyrir sig. Menn fjalla ávallt
um sinn aðila sem saklausa píslar-
vottinn en aðstandendur liðs fórnar-
lambsins sjá hinn brotlega fyrir sér
sem versta fól og vilja undantekn-
ingarlítið fá glæpamanninn umsvifa-
laust dæmdan í bann út árið. Merki-
legt er annars hvað afstaða þessara
aðila getur snúist þegar hlutverka-
skipti verða í næsta agabroti. í raun
broslegt.
Það sem veldur mér hvað mestum
áhyggjum er samt að í umfjöllun
félaga um leikbrot og agaviðurlög
leikmanna sinna virðast sjaldan
koma upp áhyggjur af raunverulegu
framferði leikmannsins. Getur það
verið t.d. að menn séu sáttir við að er-
lendur atvinnumaður liðsins fremji
slíkt ásetningsbrot? Getur verið að
mönnum sé sama um slíkt, jafnvel
þótt það kunni að skaða árangur liðs-
ins í formi leikbanna leikmannsins,
eða jafnvel kostnaðar við að fá nýjan
leikmann.
Vissulega eru dæmi um félög sem
hafa ekki reynt að réttlæta brotin,
a.m.k. ekki út á við - og raunar jafn-
vel fordæmt þau. En tilvikin um hitt
eru of mörg og áberandi. Opinberar
árásir á aganefnd, réttarfarsreglur
aganefndar eða jafnvel um samsæri
KKÍ á hendur félaginu. Þetta eru allt
skýringar sem við höfum fengið að
heyra á undanförnum árum. Þetta
geta ekki talist eðlileg viðbrögð, a.m.k.
ekki ef menn ræða málin án tillits til
einstakra atvika eins og ég er e.t.v. að
reyna að gera hér nokkrum vikum
frá síðasta atviki. Úrbætur eiga að
eiga sér stað með yfirveguðum hætti
á ársþingum - ekki á spjallsíðum
vegna tilfinningahita augnabliksins.
Það er hins vegar spurning hvort
við þurfum að fara að semja reglu-
gerðir og skilgreina olnbogaskot sem
hluta leiksins með sama hætti og víta-
skot og þriggja stiga skot...
Einnig er hægt er að nálgast pistill-
inn á KKÍ.is.
ÞPORT
■'DEIL.DIM
BLACK CAT
POOLBORÐ
GLÆSILEGT 7 FETA
POOLBORÐ FRÁ GÆÐAFRAM-
LEIÐANDNUM BCE
[VERÐ: 95.200,-
VERÐÁÐUR: 119.000,-
Sportdeildin • Bæjarlind 1-3 • 201 Kópavogur • Slmi: 577 4040 • www.holeinone.is