blaðið - 24.02.2006, Síða 1

blaðið - 24.02.2006, Síða 1
HELGIIU vera hja íslenska dansflokknum *Sm Tvö v.erk frumsýna um lí'elgina Friálst, óháð & ókeypis! Tengslin ekki til trafala Laufey Elíasdóttir er ung leikkona sem fslendingar eiga eflaust eftir að sjá meira af í framtíðinni en í kvöld verður í Háskólabíói frum- sýnd kvikmyndin Blóðbönd þar sem hún leikur eitt af aðalhlutverkunum. 1 viðtali við Blaðið segist hún hafa lært sitthvað á því að leika í myndinni, sér í lagi um viðbrögð fólks við rangfeðrun sem talin er algengur vandi hérlendis. Laufey er kærasta handritshöf- undarins, Jóns Atla Jónassonar, og leikur á móti mági sinum Hilmari Jónssyni. Systir hennar, Sóley Elíasdóttir leikur einnig í myndinni. Það má því segja að böndin séu bæði á tjaldinu og utan þess. Tengsl þessi voru ekki til trafala nema rétt í byrjun þegar systir hennar gerði grín að aðstæðunum. Ástaratriði í myndinni þótti einnig þrautinni þyngri fyrir alla sem að komu. Laufey segir það ekki hafa verið flókið verk að setja sig inn í hlutverk Önnu, enda Ánna mjög „venjuleg“ stelpa eins og það er kallað. Laufey menntaði sig í Los Angeles þar sem var lögð sér- stök áhersla á leik fyrir kvik- myndir og sjónvarp. Hún stígur þó í fyrsta sinn á fjalirnar eftir nokkra mánuði, en þá mun hún leika í verki eftir Jón Atla. ISÍÐA 20 Höfuðborgarsvæðið meðallestur 67,3 I I 1 *o 15 -Q ro V <U [I 53,8 46,9 16,6 Samkv. fjölmiölakönnun Gallup janúar 2006 ■ GÆLUDÝR Förum dag- lega saman í göngutúr Friðgeir Jóhannsson á eina þjálfaða blindrahund landsins | SfÐA 26 ■ HEILSA Lífrœna rœktun verður að efla Aðeins um fjörutíu aðilar eru með lífræna vottun | SfÐA 18 Kátar í veðurblíðunni Blúiií/Stemr Hugi Veðrið á Islandi er frægt fyrir dynti sína, og eins og allir sannir fslendingar vita skipast skjótt veður í lofti. A sama hátt og heldur þungt verður yfir landanum þegar veður eru válynd hressast menn jafnan þegar blíða er úti. Það má því gera ráð fyrir að þeim Guðrúnu Hönnu Óskarsdóttur og Kristrúnu Sverrisdóttur hafi verið létt í skapi þegar þær nutu samverunn ar i veðurblíðunni í nágrenni leikskólans Sæborgar I gær. Atti ekki von á að skil- málunum yrði breytt Benedikt Jósepsson verktaki segist undrast niðurstöðu borgarráðs varðandi lóðaútboð. Borgarstjóri segir skaðabœtur ólíklegar. .Niðurstaðan kemur á óvart. Ég átti ekki von á að þeir færu að breyta reglunum eftir eigin höfði,“ segir Benedikt Jósepsson, verktaki, sem átti hæsta tilboð í nær allar einbýlis- húsalóðirnar í útboði í Úlfarsárdal. Borgarráð samþykkti í gær tillögu þess efnis að hver og einn geti að- eins fengið eina lóð í útboðinu. „Ég uni niðurstöðunni en mér finnst hún samt skrýtin," sagði Bene- dikt í samtali við Blaðið í gær. Að sögn Benedikts mun hann láta lögfræðinga sína um að kanna laga- legan rétt sinn í málinu. Hann vildi ekkert segja um það hvort til greina kæmi að lögsækja borgaryfirvöld vegna málsins, sagði það verða að koma í ljós síðar. Benedikt sagðist ekki hafa haft tíma til að kynna sér ákvörðunina til hlítar þar sem hann var önnum kafinn við að steypa upp hús í Norðlingaholti. „Þar er ég að byggja hús á lóðum sem ég fékk í út- boði hjá borginni." Markmiðum borgarinnar náð Samkvæmt ákvörðun borgarráðs í gær fær hver og einn einstaklingur sem sótti um lóð í Úlfarsárdal aðeins eina lóð. „Tillaga mín var samþykkt með fjórum atkvæðum í borgarráði með hjásetu Sjálfstæðisflokksins og með því er markmiðum útboðsins náð,“ sagði Steinunn Valdís Óskars- dóttir, borgarstjóri, í samtali við Blaðið. Aðspurð hvort hún óttist lögsókn vegna þessarar ákvörðunar sagðist hún ekki geta lagt mat á það. ,Ég get ekkert sagt til um það á þess- ari stundu. Það er hinsvegar mitt mat að yfirlýst markmið útboðsins hafi verið að gefa einstaklingum kost á lóðum,“ sagði hún og bætti við að hún hefði ekki lagt fram til- löguna hefði hún ekki trú á því að hún stæðist. Ekki venjulegt útboð ,Ég bendi á það að það er ekki kom- inn á neinn samningur,“ sagði Stein- unn. „Það hefur enginn orðið fyrir neinum skaða. Þar af leiðandi hef ég ekki trú á að einhver eigi rétt á skaðabótum." Hún sagði samning ekki kominn á fyrr en borgarstjóri gerir tillögu um hverjum rétturinn sé seldur. „Um þetta mál gilda til dæmis ekki útboðsreglur á borð við þær sem Reykjavíkurborg setur um opinber útboð. Við teljum ein- faldlega að það sé rétt að gera þetta svona, enda snýst þetta mál ekki um lögfræði heldur er þetta réttlæt- ismál. Við stöndum við það sem við lýstum yfir, einn maður-ein lóð.“ Annað orðalag notað næst .Steinunn kvaðst hafa átt fund með Benedikt Jósepssyni þar sem hann vildi koma því á framfæri að hann hefði verið að fara að settum reglum. „Hann sagðist hins vegar skilja okkar sjónarmið og ég gat ekki heyrt betur en að hann myndi una þessari niður- stöðu.“ Að sögn borgarstjóra verða útboðsskilmálar orðaðir á þann veg að ekki miskiljist. Hún segist þó telja að í þessu tilviki sem um ræðir hafi orðalagið ekki boðið upp á að það mætti misskilja. „Það er alveg klárt hvað við ætluðum okkur með þessu og þeim markmiðum er verið að framfylgja með þessari tillögu." Borgaryfirvöld hvött til að leyfa gleðigöngu Ken Livingstone, borgarstjóri London, hvatti fyrr í vikunni Júrí Lúzhkov, starfsbróður sinn í Moskvu, til að hætta við umdeilt bann á gleðigöngu samkynhneigðra í borginni. Borgarstjórar Berlínar og Parísar hafa gert það sama. Göngur samkynhneigðra hafa ekki enn verið leyfðar í Moskvu þar sem trúarleiðtogar vara við því að þær muni leiða til ofbeldis. Nokkur helstu samtök sam- kynhneigðra í Evrópu hafa hótað því að grípa til aðgerða í Moskvu breyti borgaryfirvöld ekki stefnu sinni. Stórt og líflegt samfélag homma og lesbía er í borginni þó að það beri ekki mikið á því opinberlega. Samkynhneigð karl- manna var bönnuð samkvæmt lögum á tímum Sovétríkjanna og þó að banninu hafi verið aflétt fyrir rúmum áratug eru viðhorf margra til samkynhneigðra enn íhaldssöm og jafnvel fjandsamleg. Tillaga um að efna til göngu samkynhneigðra síðar á árinu vakti reiði og mótmæli ýmissa trúarhópa. Réttindasamtök sam- kynhneigðra sökuðu íslamskan kennimann um að egna fólk til ofbeldis eftir að hann hvatti til þess að hommar i borginni yrðu grýttir.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.