blaðið - 24.02.2006, Síða 20
20 I VIÐTRL
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 blaAÍÖ
Anna var ekki erfið persóna
I kvöld verður í Háskólabíói frumsýnd ný íslensk kvikmynd -Blóðbönd eftir Árna Ólaf Ágeirsson.
BlaöiO/Frikki
99............................................................
Þegar það kom að kossa atriðinu þá fylltust allir kvíða, meira að segja
leikstjórinn. Hann kom grafalvarlegur í framan og tilkynnti hátíðlega
að - nú væri komið að þessu, líkt og dómur hefði verið kveðinn upp.
Tvö stór kvenhlutverk eru í
Blóðböndum. Annað leikur
hin sívinsæla leikkona Margrét
Vilhjálmsdóttir en um hitt sér
Laufey Elíasdóttir sem var valin
í hlutverkið úr hópi umsækjenda.
Margrét Hugrún Gústavsdóttir
hitti þessa hæfileikaríku ungu
leikkonu yfir kaffibolla á Enr-
icos - en það er veitingahús á
Laugavegi sem einna helst minnir
á heilmili aldraðs heildsala á
Nesinu.
Smágerð þjónustudama sem minnir
á austurlenska Dolly Parton tekur af
okkur pöntun og til að ná úr sér syfj-
unni pantar Laufey sér stóra könnu
af kaffi. Blaðamaður biður um vatn.
„Ég átti heima í Los Angeles um
tíma og þar tók ég svokallaða stúdíó
tíma í eitt ár,“ segir Laufey þegar
blaðamaður spyr hvort hún hafi eitt-
hvað menntað sig í leiklist.
„Stúdíótímar ganga þannig fyrir
sig að maður mætir einu sinni i viku
og fær afhenta einhverja senu úr
kvikmynd sem maður á svo að læra
utan að og leika í næsta tíma. Til-
gangurinn með þessu var að finna
út úr því hverjar hindranir manns
væru, hvaða krafta maður hefði,
hver höfuðvilji persónunnar væri og
svo framvegis.
Ég var m.a. látin leika Cruellu De
Ville, hlutverk Meg Ryan í When
Harry met Sally (þó ekki atriðið
fræga) og hlutverk Bridget Fonda
úr Single White Female. Kennslan
gekk fyrst og fremst út á það að
gera nemendurna hæfa til þess að
leika fyrir kvikmyndir og sjónvarp.
Það var til dæmis mikið lagt upp
úr því að við myndum ekki ofleika.
Kennarinn tók það alltaf fram að
einu tilfellin sem það ætti við væru
þegar það væri annaðhvort verið
að leika homma eða leikara. Hann
var sjálfur hommi,“ segir Laufey og
kímir um leið og hún hellir kaffi í
bollann sinn.
Ekki erfitt hlutverk
í Blóðböndum leikur Laufey unga
konu og hún segir það ekki hafa
kostað mikið erfiði að setja sig í
spor hennar eða skilja hlutverkið.
Að sama skapi þurfti hún ekki að
fitna, grennast eða dvelja löngum
stundum við framandi iðju til að
skilja persónuna betur.
„Þetta er voðalega venjuleg stelpa
um tvítugt. Hún býr með vini
sínum og þau djamma voða mikið.
Anna þarf ekki beint að taka ábyrgð
á neinu öðru en kannski mæta í
vinnuna á augnlæknastofuna, en
svo byrjar hún með augnlækninum
þegar hann kemst í sína krísu. Þá
fer hann í eitthvað frí frá raunveru-
leikanum og fer að rugla í henni. Ég
hugsa allavega að hún hafi orðið
skotnari í honum en hann í henni
og hann tekur ekki ábyrgð á sínum
gjörðum," segir Laufey.
Rangfeðranir algengar
Fannst þér þú lcera eitthvað nýtt í
gegnum það að leika þetta hlutverk
ogpœla íþessu handriti?
„Já, það má segja það. Hér á ís-
landi eru mörg skilnaðarbörn. Of-
salega margir eiga tvo pabba og
tvær mömmur og svo framvegis
og kannski er það eitthvað út af
þessum lífsstíl að rangfeðranir eru
eins algengar og raun ber vitni. Ef
maður skoðar söguna þá er þetta í
fjórðu hverri fjölskyldu minnir mig.
I myndinni kemst aðalpersónan að
því að hann er ekki raunverulega
faðir stráksins sem hann heldur að
hafi verið sonur sinn í tíu ár. Þetta
verður eðlilega mikið sjokk fyrir
hann, en samt hefði það ekki þurft
að vera þannig að það kæmi verst
niður á litla stráknum sem hefur
aldrei þekkt annan pabba. Svona
erfiðar aðstæður koma oftast verst
niður á börnunum,“ segir Laufey.
Þurfti að kyssa mág sinn
Það má segja að fólkið sem stendur
á bak við myndina sé einnig tengt
ýmsum blóðböndum líkt og gengur
og gerist á okkar litla landi. Hand-
ritshöfundurinn Jón Atli Jónasson er
kœrasti Laufeyjar en Hilmar Jónsson
er kvæntur systur hennar, SóleyEltas-
dóttur sem einnig leikur hlutverk í
myndinni. Hvernigfannst Laufey að
þurfa að leika ástkonu mágs síns og
meira að segja þurfa að kyssa hann?
„Það er enginn búinn að minn-
ast á þetta“, segir Laufey og skelli-
hlær. „Auðvitað var þetta svolítið
skrýtið en það var ekkert alvarlegt.
Reyndar... þegar það kom að kossa
atriðinu þá fylltust allir kvíða, meira
að segja leikstjórinn. Hann kom graf-
alvarlegur í framan og tilkynnti há-
tíðlega að - nú væri komið að þessu,
líkt og dómur hefði verið kveðinn
upp. En svo var þetta bara „mömmu-
koss“ sem reyndi ekkert á. Það var
samt mjög fyndið að þegar ég fékk
hlutverkið þá fékk systir mín kast
og hrópaði sifjaspell og önnur at-
hygliverð orð. En það var allt í gríni
auðvitað.“
Stefnir á að leika meira
Sóley leikur hlutverk í myndinni en
þœr Laufey eru samt ekki saman í
neinu atriði. Hvernig persónu leikur
Sóley?
„Hún leikur vinkonu Ástu sem
er karakterinn hennar Möggu Vil-
hjálms. Þetta er svona dæmigerð
besta vinkona sem stendur með
henni í gegnum dramað. Sjálf búin
að skilja við manninn sinn og segir
Ástu alveg hvernig hún eigi að fara
að þessu og svona. Plottar þetta eins
og sannri vinkonu sæmir,“ segir
Laufey og hlær.
Gœtirðu hugað þér að leggja leiklist-
inafyrir þig?
„Já, algerlega. Ég er meira að segja
að fara að leika í leikriti sem heitir
Hundrað ára hús og er eftir Jón Atla.
Við byrjum að æfa fyrir það á laug-
ardaginn. Verkið fjallar um gamalt
fólk á elliheimili ásamt hjúkrunar-
konu og lækni. Ég lagði líka stund
á leiklistartengt nám sem er kennt
í Listaháskóla Islands. Námsbrautin
kallast Fræði og framkvæmd og
eftir útskrift geta nemendur lagt það
fyrir sig sem þá langar helst, hvort
sem um er að ræða gerninga, sviðs-
leik, kvikmyndaleik eða bara hvað
sem er sem tengist þessu á einn eða
annan hátt. Þetta er frábært nám en
ég tók mér samt frí þessa önn til þess
að geta einbeitt mér að leiklistinni
af fullum krafti,“ segir Laufey Elías-
dóttir að lokum og blaðamaður efast
ekki um að meira eigi eftir að sjást
af þessari fínu leikkonu á fjölunum
eða hvíta tjaldinu í framtíðinni.
margret@bladid.net
■
'-■ r:../-rýýý£\
'
Lcmgavegi 69 £? s-55l 7955
Sjáið úrvalið í verslun okkar WWW. flOÍCUSfDOfíUS JS