blaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 1
Aukablað um fjármál heimilcuma fylgir Blaðinu í daa Frjálst, óháð & ókeypis! Saparmurat Niyazov Turkmenbashi kaupir jarðýtur Stjórnvöld í Mið-Asíuríkinu Túrk- menistan hafa gert samning við bandaríska fyrirtækið Caterpillar um kaup á jarðýtum fyrir 30 millj- ónir Bandaríkjadala, um 2,2 millj- arða króna. Tækin verða nýtt til að unnt verði að ljúka sem fyrst við manngert stöðuvatn sem áformað er að mynda í eyðimörkinni. Saparmurat Niyazov, hinn sér- lundaði forseti Túrkmenistans, gaf fyrr í mánuðinum út tilskipun þess efnis að hraða bæri myndun mann- gerðs, rúmlega 2.000 ferkílómetra stórs stöðuvatns í Kara Kum-eyði- mörkinni. Framkvæmdir vegna stöðuvatnsins hófust árið 2001 og þykir Niayazov heldur hægt miða. Um leið og tilskipun þessi var birt ákvað Niyazov að skógrækt skyldi hafin á rúmlega 1.000 ferkílómetra svæði til að „breyta loftslagi lands- ins“. Um 80% landsvæðis í Túrk- menistan eru eyðimörk og lygilegar hitasveiflur einkenna loftslagið. „Bókin um allt" Niyazov, sem er betur þekktur undir nafninu „Turkmenbashi“ eða „faðir allra Túrkmena", hefur inn- leitt hamslausa dýrkun á persónu sinni í ríkinu. Rit eftir hann, Ruh- mana eða „bókin um allt“, er skyldu- námsefni á öllum skólastigum og hvarvetna blasa við stórar myndir og styttur af leiðtoganum mikla. „Turkmenbashi" er maður sem framkvæmir eða öllu heldur lætur framkvæma hugmyndir sínar. Margvísleg merkileg verkefni eru í gangi í landinu auk skógræktar- innar fyrrnefndu og manngerða stöðuvatnsins. Nú er t.a.m. unnið að smíði íshallar í höfuðborginni, Ashgabat, þar sem algengt er að sumarhitinn fari yfir 50 gráður. ÞVI „Allt öndinni að kenna' Blalid/Stelnar Hugi Sigurður Skorri fær hér aðhlynningu frá pabba sínum eftir að hafa dottið ofaní tjörnina í grasagarðinum í Laugardal í gær. Bróðir Sigurðar, Kristján Breki, fylgist áhugasamur með. Sigurður var að teygjasig eftirspýtu sem flaut á vatninu með þeim afleiðingum aðhann féll ofan í vatnið.„Ég fór á bólakaf og það varallt öndinniað kenna/'sagði Sigurður og benti á gæsina sem stóð álengdar. Leiga á þyrlum og áhöfnum til álita Talið er að þjálfun áhafna taki um hálft ár. Stjórnvöld stefna að því að koma upp þriggja þyrlna flugsveit. Rekstarfyrirkomulag óráðið. Innan stjórnkerfisins er talið að ekki muni reynast erfitt að koma á nýrri skipan þyrlusveitar Landhelg- isgæslunnar, en ljóst er að umfang hennar og verkefni munu aukast verulega á árinu í kjölfar þeirrar ákvörðunar Bandaríkjastjórnar að kalla björgunarþyrlusveit sína frá landinu fyrir september. Kostnaður vegna þessa mun hlaupa á millj- örðum, en ekki er talið að pólitísk fyrirstaða verði fyrir því. Nefnd á vegum dómsmálaráð- herra hefur þegar tekið til starfa vegna þessa, en hún hefur þrjár vikur til þess að skila tillögum um hvernig leysa megi málið til bráða- birgða. Samkvæmt heimildum Blaðsins kemur allt til álita: sam- starf við grannþjóðir, leiga eða kaup á nýjum þyrlum. Um leið og unnið verður að markmiðum þessum vilja menn gera rekstur flugdeildar Land- helgisgæslunnar hagkvæmari. Á hennar snærum eru nú tvær þyrlur, sitt hvorrar tegundar, auk flug- vélar. Talið er ráðlegast í lengd að Landhelgisgæslan hafi á að skipa þremur þyrlum, sömu tegundar. Þá er miðað við að ein geti að jafnaði verið í skoðun eða viðhaldi, en tvær til taks. Það þykir tryggara enda bil- anatíðni þyrlna há. Innan Landhelgisgæslunnar eru menn áfram um að kaupa fleiri Puma-þyrlur frá Frakklandi, en ekkert mun þó gefið í þeim efnum. Miðað við fyrrgreindar þarfir má þó ljóst vera að önnur þyrla gæsl- unnar verður seld ef ekki báðar. Afhendingartími á nýjum þyrlum mun vera drjúgur, en á hinn bóg- inn er auðvelt að brúa það bil með leigu. Þá óttast menn ekki hörgul á mannskap, um hálft ár taki að sér- þjálfa menn til flugs á slíkum björg- unarþyrlum, en þangað til komi til greina að leigja áhafnir. 1 því samhengi minna menn jafnframt á að ekkert sé meitlað í stein um rekstrarfyrirkomulagið, til greina komi að bjóða einstaka þætti út eða jafnvel allan rekstur gæslunnar. 1 m: ; Reuters Brandinum brugðið á loft Silvio Bersluconi, forsætisráð- herra Italíu, kynnti í gær helstu stefnumál sín fyrir þingkosn- ingarnar sem fram fara 9. og 10. næsta mánaðar. Berlusconi brá á leik með blaðamönnum og hóf sverð á loft er hann lýsti því hversu beinskeytt stefna hans væri. 4,35% FRJALS IBÚÐALAN Okkar markmiö er aö veita framúrskarandi þjónustu á sanngjörnum kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í 540 5000 eöa sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is. Viö viljum aö heima sé best! Áy FRJÁLSl FJ ARIT.STINGARBANKINN

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.