blaðið - 27.03.2006, Síða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 27. MARS 2006 blaðið
Valdaráns hersins minnst í Argentínu
Um þessar mundir eru 30 ár liðinfrá því að herinn tók völdin í Argentínu. Landsmenn minnast tímamótanna
með ýmsum hœtti og samstaða þjóðarinnar er sögð algjör. Upplýsingar um ógnarstjórnina verða loks birtar.
Þess hefur verið minnst í Arg-
entínu síðustu daga að 30 ár eru
liðin frá valdaráni hersins sem
kallaði mikinn hrylling yfir þjóð-
ina. Herstjórnin ríkti í sjö ár og er
talin hafa líf um 30.000 manna á
samviskunni.
Fjöldafundir hafa verið haldnir vítt
og breitt um Argentínu til að minn-
ast tímamótanna. Mest hefur borið
á fundum sem efnt hefur verið til
á Plaza de Mayo-torgi í miðbæ höf-
uðborgarinnar, Buenos Aires, en
þar hafa mæður og ömmur fórnar-
lamba herstjórnarinnar haldið til
um hverja helgi á undanliðnum
árum til að leggja áherslu á þá kröfu
sína að glæpir herforingjanna verði
rannsakaðir og upplýsingar verði
birtar um afdrif fórnarlambanna. f
Argentínu er jafnan rætt um „hina
horfnu“ (sp. „Los desaparecidos“)
þegar vísað er til þeirra sem herfor-
ingjastjórnin lét myrða.
Efnt hefur verið til tónlistarvið-
burða í tilefni þessara tímamóta
og stjórnmálamenn hafa verið dug-
legir við að flytja ræður. Þátttaka í
atburðum þessum hefur verið gífur-
lega mikil og segja menn í Argent-
ínu að sjaldan hafi á undanliðnum
árum ríkt viðlíka þjóðarsamstaða í
landinu.
Skítuga stríðið og
Condor-áætlunin
Herstjórnin í Argentínu ríkti frá
Nestor Kirchner Argentínuforseti faðmar að sér eina af „mæðrum Maí-torgsins" í
Buenos Aires en þar hafa mæður og ömmur„hinna horfnu" safnast saman reglulega á
undanliðnum árum til að krefast upplýsinga um örlög ástvina sinna.
OPNAÐI FYRIR MER
NYJAR VIDDIRÍ
„Eftir Fjármála- og rekstrarnámið hjá NTV hef ég
öðlast viðamikla og dýrmæta þekkingu sem mun
nýtast mér í öllu sem ég á eftir að taka mér fyrir
hendur í framtíðinni. Ég er mun verðmætari starfs-
kraftur eftir námið!"
Kári Sigurfinnsson
Sölumaður hjá Tölvulistanum
FJARMAL & REKSTUR
Frábært námskeið fyrir þá sem
vilja bæta við sig þekkingu í
fjármálum og rekstri fyrirtækja.
Námið snýr m.a. að rekstrar-
fræðum, fjármálastjórnun og
áætlanagerð með áherslu á
efnistengdri verkefnavinnu.
Námskeiðið er ætlað þeim sem
hafa reynslu í Excel og grunn-
þekkingu á bókhaldi.
Kvöldnámskeið:
Þri.-fim. kl. 18:00-22:00
ogálau. kl. 13:00-17:00.
Byrjar 4. apríl og lýkur 3. júní.
Morgunnámskeið:
Þri. - mið. - fim. kl. 8:30 -12:30
Byrjar 18. apríl og lýkur 1. júní.
Helstu námsgreinar:
■ Fjármálastjórnun
Kenndur er arðsemisútreikningur, fjallað
um ávöxtunarkröfur, áætlunargerð
fyrirtækja og aðferðir við að meta virði
verðbréfa og fjárfestinga.
■ Rekstrarfræði
Fariö er ígrunnatriöi rekstrarhagfræði,
rekstur fyrirtækja, umhverfi þeirra,
mismunandi rekstrarform, markmið
og skipulag fyrirtækja.
Notkun Excel við fjármál og rekstur
Nemendur eru þjálfaðir við notkun Excel í
rekstri, einkum við gerð rekstraráætlana,
notkun fjármálafalla og arðsemismats.
SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS - HLÍÐASMÁRA 9 - 201 KÓPAVOGI
1976 til 1983. Hún blés til herfarar
gegn stjórnarandstæðingum, raun-
verulegum sem ímynduðum. Mikill
fjöldi ungs fólks, einkum vinstri
sinna, hvarf á þessum árum sem
jafnan ganga undir heitinu „skít-
uga stríðið“ í Argentínu. Herfor-
ingjarnir þar áttu samstarf við
skoðanabræður sína sem ríktu á
þessum árum í öðrum ríkjum Róm-
önsku-Ameríku. Gekkþað samstarf
undir heitinu „Condor-áætlunin”.
Á grundvelli hennar skiptust her-
foringjastjórnir á upplýsingum um
pólitíska andstæðinga sína og sam-
einuðust um margvísleg glæpaverk.
Talið er að um 30.000 manns hafi
horfið í tíð herforingjastjórnarinnar
í Argentfnu. Af hálfu stjórnvalda
hefur verið staðfest að 13.000 stjórn-
arandstæðingar hafi verið myrtir
á þessu tímabili. Stjórnvöld hafa
enda verið harðlega gagnrýnd fyrir
hversu treg þau hafi verið til að veita
upplýsingar um raunverulega rás
atburða í Argentinu á timum ógn-
arstjórnarinnar. Nú hafa stjórnvöld
hins vegar ákveðið að skjalasöfn frá
þessum tíma verði opnuð og upplýs-
ingum miðlað til almennings. Ymsir
eru hins vegar fullir efasemda um
að hugur fylgi máli.
Flugferðir dauðans
Ættingjar hinna horfnu munu því
væntanlega loks fá tækifæri til að
leita upplýsinga um afdrif ástvina
sinna. Álgengt var á þessum árum
að öryggislögreglumenn stjórn-
valda bönkuðu að dyrum að kvöldi
dags og hefðu stjórnarandstæðinga
á brott með sér í ómerktum bif-
reiðum. Mjög margir þeirra áttu
ekki afturkvæmt. I einhverjum til-
vikum var meintum og raunveru-
legum andstæðingum herstjórnar-
innar safnað saman, þeir settir upp
í flugvél sem flogið var yfir Atlants-
hafið þar sem fólkinu var kastað út.
í Argentínu nefna menn þetta „flug-
ferðir dauðans“. En upplýsingar um
þær eru af heldur skornum skammti
og t.a.m. er ekki vitað hversu margir
voru myrtir með þessum hætti.
Nestor Kirchner, forseti Argent-
ínu, hefur verið ausinn lofi fyrir þá
ákvörðun sína að opna skjalasöfnin.
Ástandið í Argentínu þessa dagana
þykir um margt mina á það sem
ríkti 1983 þegar herstjórnin leið
undir lok. Þá eins og nú fóru menn
í hópum um götur og hrópuðu
„nunca más“, „aldrei aftur“. Þrátt
fyrir margvísleg áföll, einkum á
sviði efnahagsmála, og pólitíska
ólgu á undanförnum árum þykir
valdaránsafmælið til marks um að
stoðir lýðræðisins séu styrkari en
nokkru sinni fyrr í Argentínu.
Máli trúskiptings
vísað frá í Afganistan
Dómstóll í Afganistan hefur vísað
frá máli manns sem ákærður hafði
verið fyrir að kasta íslamstrú og ger-
ast kristinn. Niðurstaða dómsins
sem birt var i gær er sú að sannanir
skorti í málinu.
Dómurinn sem og forseti Afgan-
istan, Hamid Karzai, höfðu sætt
miklum alþjóðlegum þrýstingi
sökum málsins. Dauðadómur hefði
vofað yfir manninum hefði hann
verið fundinn sekur. Nokkrir ís-
lamskir klerkar höfðu krafist þess
að maðurinn, Abdul Rahman, yrði
umsvifalaust tekinn af lífi.
Rahman var í haldi í Kabúl, höfuð-
borg Afganistans, en þar semlíf hans
var talið í hættu þar var hann í gær
fluttur í alræmt fangelsi fyrir utan
borgina þar sem margir af hættuleg-
ustu andstæðingum stjórnvalda eru
vistaðir. Rahman var sleppt úr haldi
síðar um daginn.
Mál Rahmans hefur vakið athygli
um heim allan. Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
hafði beðið Karzai forseta um að
hafa af því afskipti og Benedikt
páfi hafði gert hið sama í nafni
trúfrelsisins.
Rahman kastaði íslamstrú fyrir
16 árum þegar hann starfaði fyrir
kristin hjálparsamtök sem aðstoð-
uðu afganska flóttamenn.
HHS á Bifröst
„Þegar ég frétti af nýju HHS deildinni á Bifröst
vissi ég að þar væri komið námið sem ég hef
alltaf beðið eftir. Þetta nám er nýtt hér
á landi og er óvenjulegt og fjölbreytt. Nú hef ég
stundað nám við deildina (eitt ár og get með
sanni sagt að það hefur staðið fyllilega undir
væntingum. Þessi blanda af hagfræði, heimspeki
og stjórnmálafræði kemur verulega vel út og
skilar sér í nýrri og dýpri sýn á fréttir og umræðu
í þjóðfélaginu. Auk þess koma þessi fög að
flestu því sem mér finnst skipta máli varðandi
heimsmálin (dag, hvernig núverandi staða er
tilkomin, hvaðan við erum að koma og hvert við
erum að fara. Ég er sannfærð um að þetta nám
eigi ekki aðeins eftir að víkka sjóndeildarhring
minn og auka skilning minn á stöðu mála, heldur
eigi námið einnig eftir að skila sér í fjölbreyttu
og líflegu starfi, gjarnan við alþjóðastörf þar sem
áhugasvið mitt liggur."
Frekari upplýsingar:
www.hhs.is
Ingveldur Björg Jónsdóttir,
nemi i HHS við félagsvisinda-
og hagfræðideild
r*
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN
BIFRÖST
311Borgarnes I Sími 433 3000
Stjórnenda- og leiðtogaskóli i 88 ár