blaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 24
241 VEIÐI
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2006 blaöið
Styttist i að leynivopn ársins verði kynnt
Latex púpa brún
Höfundur: Birgir Örn Arnarson
Uppskrift
Öngull: Kamasan B100G, stærð 10 og 12 Tvinni: UNI6/0 svartur
Búkur: Ultra Lace brúnt en nokkrir vafningar með svörtum tvinna undir eins og sést á
mynd
Frambúkur: Jan Siman Squirrel Plus dubbing bursti, Reddish Brown
Kúla: Gullkúla í stærð 2.8
Vatnaveiðin
senn af hefjast
Þrátt fyrir að veiðitímabilið sé
formlega hafið má gera ráð fyrir að
megin þorri veiðimanna hafi enn
ekki farið lengra með veiðistangir
sínar en út í garð til að æfa köstin
fyrir sumarið. Þetta er hinsvegar að
breytast því veiðitímabilið er rétt
við það að hefjast.
ÁvefStangveiðifélagsReykjavíkur,
www.svfr.is, er því til að mynda
haldið fram að með hlýnandi veðri
muni bæði menn og fiskar fara af
stað. „Líklegt er að bleikjuveiðin í
Soginu lifni ef hitastig mjakast upp
á við og svo hefst vatnaveiðin víðast
hvar nú á mánudaginn ásamt urriða-
veiði í Elliðaám," segir þar orðrétt.
Verslunin Veiðihornið hefur síðustu
ár staðið fyrir fluguhnýtinga- og
hönnunarkeppni sem ber nafnið
Leynivopnið, en keppnin er haldin í
samstarfi við Landssamband Stang-
veiðifélaga. Fyrsta keppni þessarar
tegundar var haldin árið 2003,
þannig að keppnin í ár er því sú fjórða
í röðinni.
„I nokkur ár hafa verið haldnar
fluguhnýtingakeppnir þar sem
keppendur hnýta hefðbundnar veiði-
flugur. í framhaldi af því vaknaði
sú hugmynd að reyna að töfra leyni-
flugur úr boxum veiðimanna, því
margir þeirra eiga leynivopn sem
þeir hafa ekki gert opinber," segir Ól-
afur Vigfússon, hjá Veiðihorninu.
Fræg í Noregi
„Inn í keppnina hafa komið margar
skemmtilegar flugur, sem margar
hverjar hafa lifað og eru notaðar af
veiðimönnum, ekki bara á fslandi
heldur víða um heiminn. Það á til að
mynda við Leynivopnið árið 2003,
sem ber nafnið Flóin. Þar er á ferðinni
rækjueftirlíking sem við höfum selt
gríðarlega mikið af til Noregs. Þannig
var mál með vexti að hingað í versl-
unina kom norskur veiðimaður og
keypti eina úr borðinu okkar. Hann
reyndi hana í Noregi með fínum ár-
angri og nú er hún mikið notuð við
sjóbirtingsveiði í Oslóarfirði í Nor-
egi. Mér skilst ennfremur að veitt sé
grimmt á hana þarna úti.
Ónnur fluga sem hefur reynst mér vel
er Latex-púpan sem varð í öðru sæti
árið 2004 sem og fleiri.“
Höfundur: Sigurbjörn Árnason.
Uppskrift:
Öngull: VMC 9909 gull, stærð 10 eða 12
Tvinni: Hvítur UNI8/0
Fálmarar: Stilkar úr hanafjöður, litaðlr
með vatnsheldum tússpenna
Stél: Fanir úr hanahálsfjöður
Stilkar og augu: Girni með bræddum
enda
Búkur: Hvítu garni vafið á öngulinn. Rist
er í garnið og burstað upp undir öngli
Bak: 5 mín. Epoxy lím blandað með
föndurlakki
Netkosning
„Það eru venjulegir veiðimenn sem
eru að senda inn flugur í keppnina.
Við biðjum um uppskrift og síðan
er alltaf gott að fá umsögn og veiði-
sögur, en það er ekki skilyrði. Við
gerum þá kröfu að flugurnar séu
ekki þekktar fyrir og einhver veiði-
reynsla þarf að vera komin. Það er til
mikils að vinna, því veitt eru vegleg
verðlaun, bæði veiðibúnaður og veiði-
leyfi. Keppnin þetta árið stendur nú
sem hæst. Myndir af flugunum sem
sendar voru inn eru nú á heimasíð-
unni okkar, sem er www.veidihornid.
is. Þar er hægt að taka þátt í netkosn-
ingu sem er nýbreytni, en þar fer
hver að verða síðastur þar sem lokað
verður fyrir hana á miðnætti í kvöld.
Landssambandið hefur síðan skipað
dómnefnd sem úrskurðar um það
hver er sigurvegarinn, og hefur þar
niðurstöðu netkosningarinnar til
hliðsjónar. Þeir sem hafa áhuga á að
taka þátt i þessum skemmtilega leik
okkar ættu því að skella sér á heima-
síðuna í dag og kjósa. Úrslitin í keppn-
inni munu síðan verða tilkynnt á
næstunni,“ segir Ólafur.
Álka
Höfundur PállÁgúst Ólafsson
Uppskrift
Öngull: Legglangur#6
Tvinni: UNI8/0 rauður
Búkur: UNI silfur tinsel
Vængur: Hanahálsfjaðrir, 2 hvítar og 2
bleikar 9
Kragi: Strútsfjöður appelsfnugul
Haus: Rauður
» > » r
- 0
t*»*
! VEÍÐ/XO KTIÐl
20 0 6
JLS vatnasvæði
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók meö ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
SláttuuéiamarKaðurinn ..\V\CkO
Ný verslun á Vagnhöfða 8 ^ntfSP I
Bestu verðin í bænum M w
4 Hó an drrfs
með safnara
Verð nú kr. 27.900.-
Verð áður kr. 34.900.-
4,75 Hö án drifs
með safnara
Verð nú kr. 29.900.-
Verð áður kr. 34.900.-
Flymo loftpúðavél
25% afsláttur
Verðfrá 14.990.-
Á TILBOÐI
18 Hö Briggs & Stratton
Besta verðið í bænum kr. 249.000.
Fylgir grassafnari
15% afsláttur af annarri vöru í verslun (nema sláttutraktorum)
raiigjDD3
fyrir atvinnumenn
12” án blaðs, verð 74.900.-
14” án blaðs, verð 76.900.-
H] Electrolux
Viögeröa- og varahlutaþjónusta fyrir siáttuvélar og reiðhjól
NYTT
Briggs & Stratton orf
4 gengis (þarf ekki að blanda
olíu við bensin - minni hávaði)
Verð nú 26.900.4
Verð áður 37.900.-
SláttuuélamarKaðurlnn
s: 517 2010
Opið 10-14 laugardaga
Rafmagns velsög
Verð 7.900.-
Bensín vélsög
Verð kr. 14.900.-