blaðið - 14.06.2006, Síða 4
4 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöiA
Sérstyrktur diskur fyrir fslenskt veéurfar
STAFRÆNT SJONVARP
WWW.SVAR.IS
SÍDUMÚLA 37-SÍMI510 6000
Repúblíkanar ræði Iraksstríð
og góða stöðu efnahagsmála
Karl Rove, helsti ráðgjafi George W. Bush Bandaríkjaforseta, segir
repúblíkana ekki þurfa að biðjast afsökunar á stríðinu í írak.
Karl Rove lagði línuna fyrir repúblikana í New Hampshire I gær. Reulers
Karl Rove, helsti pólitíski ráðgjafi
George W. Bush Bandaríkjaforseta,
sagði á mánudagskvöld að flokks-
bræður forsetans sem sæktust eftir
endurkjöri í kosningunum vestra í
haust ættu að leggja áherslu á styrk
efnahagslífsins í málflutningi sinum.
Að auki bæri þeim að ræða stríðið í
Irak án ótta við að slíkt kæmi þeim
illa í kosningabaráttunni.
„Við þurfum ekki biðjast afsökunar
á því [stríðinu í Irak],” sagði Rove í
ræðu sem hann flutti í fjáröflunar-
kvöldverði í New Hampshire. Lýsti
Rove yfir þvi að þeir sem stutt hefðu
stríðið þyrftu ekki að skammst sín
fyrir eða réttlæta að hafa upprætt þá
ógn sem stafað hefði af Saddam Hús-
sein Iraksforseta. Mikið starf væri
óunnið í írak og ekki væri tímabært
að ræða mögulega heimkvaðningu
herliðs Bandaríkjamanna þar.
Rove lét nýlega af störfum sem
ráðgjafi forsetans í Hvita húsinu og
mun einbeita sér að baráttu Repú-
blíkanaflokksins fyrir kosningarnar
í haust.
f ræðunni sagði Rove að þeir demó-
kratar sem berðust fyrir því að inn-
rásarliðið yrði kallað heim ættu að
standa frammi fyrir erfiðum spurn-
ingum i þessu samhengi fremur en
repúblíkanar, flokksbræður Bush
forseta. Demókratar vildu leggja á
flótta frá írak í stað þess að uppfylla
skyldur Bandaríkjamanna við land
og lýð. Rove beindi gagnrýni sinni
sérstaklega að þeim John Kerry,
þingmanni frá Massachusetts og
forsetaframbjóðanda árið 2004, og
John Murtha, þingmanni frá Penn-
sylvaníu, sem báðir mæla mjög ein-
dregið fyrir því að liðsaflinn í frak
verði kallaður heim. „Þessir menn
hafa rangt fyrir sér í öilum grund-
vallaratriðum,” sagði Rove.
Um 400 manns sóttu kvöldverð-
inn tii að hlusta á Rove hvetja flokks-
menn til afreka í New Hampshire.
Repúblíkanar hafa löngum verið
ráðandi í ríkinu en nú er litið svo
á að það geti ekki talist öruggt vígi
þeirra. Gestir borguðu 100 Banda-
ríkjadali fyrir kvöldverðinn en þeir
sem vildu fá að hitta Rove auk þess
að borga fyrir matinn inntu af hendi
250 dali.
Demókratar hafa farið með sigur
af hólmi í New Hampshire í þremur
afsíðustu fjórum forsetakosningum,
þeir biðu þar lægri hlut árið 2000.
Demókratar hafa einnig náð góðum
árangri í ríkisstjórakosningum þar
á síðustu 20 árum eða svo.
Repúblíkanar óttast margir
hverjir að litlar og minnkandi vin-
sældir Bush forseta muni skaða
flokkinn mjög í kosningum í fjöl-
mörgum ríkjum Bandaríkjanna í
haust. Rove hefur tekið efnislega
undir þennan málflutning og sagt
engan vafa leika á því að stríðið i
írak hafi dregið úr vinsældum forset-
ans. Rove heldur því hins hins vegar
fram að Bandaríkjamenn kunni al-
mennt og yfirleitt vel við forsetann
en þeir séu ósáttir við stríðið.
Alweg einstök tilfinning
Ganverskir trésmiðir lyfta upp líkkistu sem er í laginu eins og gosdrykkjarflaska. (
Gana keppast menn við að kveðja ástvini meö því að jarða þá í skrautlegum likkist-
um. Haglega gerðar líkkistur sem er (forminu eins og kjúklingar, fiskar og myndavél-
ar eru ákaflega vinsælar.
Atvinnuleysi mælist mjög
lítið annan mánuðinn í röð
Atvinnuleyfi fyrir íbúa átta nýrra þjóða innan EES eru nú úr sögunni. Fyrirtæki þurfa þó að
tilkynna þessa starfsmenn til Vinnumálastofnunar. Ekki uppfylla öll fyrirtæki þá skyldu.
leyfi hyggist þau ráða einstaklinga
frá átta nýjum ríkjum Evrópusam-
bandsins til vinnu. Mikið var fjallað
um þessa breytingu áður en hún
gekk í gildi, og töldu margir að með
henni væri verið að opna vinnumark-
aðinn hér á landi of mikið. I kjölfarið
væri hætta á að erlendir verkamenn
frá Austur-Evrópu streymdu hingað
til lands sem aldrei fyrr.
„Það er engin gusa í þessu, heldur
er þetta áfram stöðugur straumur,"
segir Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar. „Það er hins-
vegar mikil eftirspurn eftir vinnuafli
um þessar mundir eins og sést af nýj-
ustu tölum um atvinnuleysi. Ég geri
því ráð fyrir að það verði áframhald-
andi straumur af erlendu vinnuafli
hingað til lands,“ segir Gissur.
(samstarfi við aðila
vinnumarkaðarins
í nýjum lögum er gert ráð fyrir að fyr-
irtæki sem ráða til sín starfsmenn frá
hinum átta nýju ríkjum Evrópusam-
bandsins, tilkynni um ráðninguna
til Vinnumálastofnunar. En hvernig
skyldi það hafa gengið eftir?
„Það er allur gangur á þessu, en mér
sýnist núna að öll stærri fyrirtæki séu
orðin klár á þessum skyldum sínum.
Það eru hinsvegar einyrkjarnir og
minni fyrirtæki sem við erum að
stríða við. Það tekur auðvitað alltaf
einhvern tima að koma mönnum
í skilning um að það sé lögbundin
skylda að tilkynna um ráðningu á
þessum starfsmönnum. Við erum
núna leiðbeinandi og hóflegir í að-
Atvinnuleysi mældist aðeins 1,3% í
maímánuði og stóð í stað milli mán-
aða. Það jafngildir því að rétt rúm-
lega 2.000 einstaklingar hafi verið án
vinnu í mánuðunum tveimur. Þetta
er mun minna atvinnuleysi en mæld-
ist í sama mánuði í fyrra þegar það
var 2,2%. Þetta kemur fram í tölum
Vinnumálastofnunar.
Atvinnuleysi mælist 1,2% á höfuð-
borgarsvæðinu á móti 1,4% atvinnu-
leysi á landsbyggðinni. Mest er það
á Norðurlandi eystra, eða 2,5% en
minnst er það á Austurlandi eða 0,6%.
Ef rýnt er ( kynjahlutfall atvinnu-
lausra kemur í ljós að nokkuð hallar á
kvenþjóðina. Um 1,8% kvenna eru án
atvinnu en aðeins 0,9% karla.
Engin gusa af erlendum
starfsmönnum
Atvinnuleyfum til erlendra starfs-
manna fækkaði verulega milli ára
samkvæmt skýrslunni. Ástæðunnar
er að leita í breyttri löggjöf, en nú
þurfa fyrirtæki ekki að fá atvinnu-
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar
gerðum okkar gegn fyrirtækjum, en
ef við höldum áfram að finna mörg
tilvik um að fólk sé ráðið til starfa
án þess að okkur sé tilkynnt um það,
munum við beita harðari úrræðum á
næstunni,“ segir Gissur.
Hann segir ennfremur að erfitt sé
að hafa eftirlit með því hvaða fyrir-
tæki eru að fá til sín starfsmenn. Þar
séu stéttarfélögin í lykilhlutverki, en
þau tilkynni um fyrirtæki sem ekki
eru að standa sig hringinn í kring um
landið.
Þegar ný lög vor sett var mjög gagn-
rýnt að Vinnumálastofnun eigi að
hafa eftirlit með því hvort umræddir
starfsmenn fái greidd rétt laun í sam-
ræmi við gildandi kjarasamninga.
Gissur telur að sá hluti framkvæmd-
arinnar hjá stofnunni hafi gengið vel.
„ Já, það tel ég. Við þurfum hinsvegar
á aðilum vinnumarkaðarins að halda
í því sambandi, bæði stéttarfélög-
unum og Samtökum atvinnulífsins.
Þessir aðilar leiðbeina fyrirtækjum
um rétta staðsetningu einstaklinga
í launastigum kjarasamninga,“ segir
Gissur.
Aldrei fleiri
umsóknir
um nám í HÍ
Umsóknir um nám í Háskóla
Islands hafa aldrei verið fleiri,
en umsóknarfrestur rann
út þann 6. júní síðastliðinn.
Um 2.400 stúdentar sóttu
um í grunnnámi og um 800 i
meistara- og doktorsnámi og
viðbótarnámi til starfsréttinda.
Þessu til viðbótar voru
umsóknir erlendra stúdenta um
500. Enn er unnið að afgreiðslu
innkominna umsókna og ætti
endanlegur fjöldi nýnema að
liggja fyrir undir lok þessa
mánaðar. Að þessu sinni óskuðu
290 einstaklingar eftir því að
þreyta inntökupróf i læknadeild
Háskólans og er það mesti fjöldi
frá upphafi.