blaðið - 14.06.2006, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöió
6IFRÉTTIR
Leitin að hinum sanna tón.
Matthias orgelsmiður frá Bonn í Þýskalandi hefur eytt síðustu fjórum dögum djúpt í iðrum orgelsins í Hallgrímskirkju að leita að
hinum sanna tón. En Matthias var sendur frá framleiðanda orgelsins á dögunum til þess að stilla það.
Mega ekki byggja
heimili fyrir aldraða
Hlutverk lífeyrissjóðanna er að greiða lífeyri
en ekki að standa í byggingaframkvæmdum
Beðið eftir
heimild til
auglýsingar
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytis-
stjóri heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins, segir að beðið sé eftir
heimild frá fjármálaráðuneytinu til
að auglýsa eftir húsnæði fyrir Blóð-
bankann. Davíð segir að heilbrigð-
isráðherra hafi svarað fyrirspurn í
lok þingsins um húsnæðismál Blóð-
bankans og þar komi fram það sem
máli skiptir.
„í fyrirspurninni kemur fram að
húsnæðismál Blóðbankans hafi
verið til skoðunar undanfarin ár
og að óskað hafi verið eftir heimild
fjármálaráðuneytisins til að aug-
lýsa eftir húsnæði, en ekkert svar
hafi borist enn. Ég veit að í fjármála-
ráðuneytinu hafa menn talið að
Landspítalinn hafi ekki getað sýnt
almennilega fram á hvernig skuli
fjármagna leiguna fyrir húsnæði
undir starfsemina,“ segir Davíð.
Stjórn LSH hefur sagt að hún sé
reiðubúin að nota hluta söluand-
virðis eigna spítalans á þessu ári
til að fjármagna hluta leigunnar.
,Okkur í heilbrigðisráðuneytinu er
það mjög vel ljóst að Blóðbankinn
er í heilmiklum vanda og er búinn
að vera það um allnokkurt skeið.
Öll svona húsnæðismál eru háð
ákveðnu ferli. Það verður að fá heim-
ild til að auglýsa eftir húsnæði og
síðan eru tilboð skoðuð. Enn hefur
þó ekki fengist heimild til auglýs-
ingar,“ segir Davíð. Ekki náðist í
ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneyt-
Lífeyrissjóðir landsins hafa ekki
lagaheimild til að byggja eða reka
hjúkrunarheimili og því kemur
slíkt ekki til greina að sögn Hrafns
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Landssamtaka Lífeyrissjóða. Helgi
Vilhjálmsson, betur þekktur sem
Helgi í Góu, hefur látið gera skoð-
anakönnun þar sem í ljós kom að
yfir 70% þeirra sem könnuninni
svöruðu sögðu að lífeyrissjóðirnir
ættu einmitt að koma að byggingu
og rekstri á húsnæði fyrir aldraða.
„Mér sýnst þetta sýna að það er
hægt að fá hvaða svar sem er út úr
skoðanakönnunum. Hin raunveru-
lega spurning hefði átt að vera hvort
viðkomandi vildu að lífeyrissjóðir
kæmu að rekstri og byggingu hús-
næðiðs fyrir aldraða þrátt fyrir að
slíkt myndi skerða ellilífeyri sjóðs-
félaga í viðkomandi lífeyrissjóði,"
segir Hrafn.
Ekki staðið á Qármunum
,Annars finnst mér þessi könnun
í heild sinni ekki marktæk. Þar
kemur fram að aðeins um 30% svar-
enda telja að lífeyrissjóðir eigi að fjár-
festa í skulda- eða hlutabréfum. Ég
spyr á mótiihvað vilja hinir gera við
fjármuni lífeyrissjóða? Samkvæmt
lögum mega lífeyrissjóðir ekki gera
annað en að taka við iðgjöldum og
greiða lífeyri. Það er því útilokað
að könnun Helga verði að lokum til
þess að einhverjar breytingar verði
gerðar á einstaka sjóðum og að
þeir fari að standa í slíkum rekstri.
Hinsvegar hafa lífeyrissjóðir ítrekað
boðist til að veita lán til bygginga á
húsnæði fyrir aldraða. Að því leyti
hefur aldrei staðið á fjármunum frá
sjóðunum,“ segir Hrafn.
Skrefi á undan öðrum
Segja má að hið almenna lífeyris-
sjóðakerfi sé frá árinu 1970 þegar
skylduaðild að lífeyrissjóðum var
sett á.
„Við erum þannig mörgum árum á
undanöðrumþjóðum hvað uppbygg-
ingu á þessu sviði varðar. Hinsvegar
var allt til ársins 1990 aðeins greitt
iðgjald af dagvinnu launafólks, en
ekki öllum launum eins og nú er. Líf-
eyrissjóðirnir hafa þvi ekki verið að
byggja sig almennilega upp nema á
allra síðustu árum,“ segir Hrafn.
Það þýðir að einstaklingar sem
eru að fá greitt út úr lífeyrissjóð-
unum í dag hafa greitt lífeyrisiðgjald
í til þess að gera stuttan tíma og það
hefur þau áhrif að lífeyrisgreiðslur
til þeirra eru lægri en annars væri.
Hóta forsætisráð-
herra Palestínu
Hátt settur félagi í flokki Ehuds Olm-
erts, forsætisráðherra ísraels, hótaði
því á mánudag að Ismail Haniyeh,
forsætisráðherra ríkisstjórnar
Hamas-hreyfingarinnar í Palestínu,
verði ráðinn af dögum taki liðsmenn
samtakanna á ný að standa fyrir
sjálfsmorðsárásum í fsrael. Sjö Pal-
estínumenn, hið minnsta, týndu lífi
í eldflaugaárás fsraelshers á Gaza-
svæðinu í gær.
Tzachi Hanegbi, formaður utan-
ríkis- og öryggismálanefndar ísra-
elska þingsins, fét þessi ummæli falla
í viðtali við útvarp ísraelska hersins.
Spenna fer nú mjög vaxandi á landa-
mærum ísraels og Gaza-svæðisins
þar sem komið hefur ítrekað til átaka
auk þess sem Hamas-hreyfingin
hefur skýrt frá því að yfirlýsing um
vopnahlé sé úr gildi fallin.
Vísað til fallinna Hamas-leiðtoga
„Yassin og Rantissi bíða þín, Haniyeh,”
sagði þingmaðurinn og vísaði þannig
til þeirra Sheikh Ahmed Yassins,
eins af stofnendum Hamas, og Abdel-
Aziz al-Rantissi, eins af leiðtogum
hreyfingarinnar. Báðir þessir menn
voru drepnir í flugskeytaárásum ísra-
ela á Gaza-svæðinu árið 2004. Sagði
Hanegbi sömu örlög bíða Haniyeh
forsætisráðherra framfylgdi hann
þeirri stefnu að réttlætanlegt væri
að myrða gyðinga í þeim tilgangi að
lama þjóðlífið allt í ísrael.
Tzachi Hanegbi er valdamikill
þingmaður Kadima-ffokks Ehuds
Olmerts forsætisráðherra fsraels.
Hann hefur m.a. lýst yfir því að „óum-
flýjanlegt” sé að til átaka komi á milli
Hamas og ísraela. Amir Peretz varn-
armálaráðherra hafði einnig í hót-
unum við leiðtoga Hamas um liðna
helgi. Sagði hann að enginn sem hót-
aði ísraelum gæti verið öruggur um
að halda lífi.
Olmert forsætisráðherra sem
staddur var í London á mánudag tók
efnislega undir hótun Hanegbis. Er
hann var spurður hvor ísraelsk stjórn-
völd væru tilbúin að láta drepa menn
í ríkisstjórn Hamas sagði Olmert
ljóst að hver sá sem tengdist hryðju-
verkastarfsemi gæti ekki verið ör-
uggur um líf sitt. „Ég tel að það væri
ekki ráðlegt af mér að útskýra þetta
nánar,” bætti Olmert við.
Hamas-hreyfingin fór með sigur
af hólmi í þingkosningunum í Palest-
ínu í janúarmánuði. Samtökin viður-
kenna ekki tilverurétt fsraelsríkis.
Haniyeh forsætisráðherra sagði
blaðamönnum á Gaza-svæðinu í gær
að líflátshótunin væri „dæmigerð
fyrir þá pólitísku brjálsemi” sem
margir af leiðtogum ísraela væru
haldnir.
Hamas-hreyfingin stóð fyrir tæp-
lega 60 sjálfsmorðsárásum í fsrael
þegar uppreisn Palestínumanna
Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palest-
ínu, er gætt af fjölda lífvarða.
hófst árið 2004. Hreyfingin hætti
slíkum árásum um mitt ár 2004.
Snemma árs 2005 náðist samkomu-
lag um vopnahlé sem haldið hefur
verið að mestu.
Hörð átök um
þjóðaratkvæðagreiðslu
Þótt Hamas fari nú fyrir ríkisstjórn
Palestínu á hreyfingin í hatrammri
baráttu um völdin við Mahmoud
Abbas, forseta. Abbas hefur ákveðið
að 26. júlí fari fram þjóðaratkvæða-
greiðsla í Palestínu um myndun
sjálfstæðs ríkis palestínsku þjóðar-
innar innan skilreindra landamæra.
Þessi nálgun felur í sér óbeina viður-
kenningu á tilverurétti Ísraelsríkis.
Hamas-hreyfingin er því andvíg þjóð-
aratkvæðagreiðslunni og funduðu
þeir Abbas og Haniyeh um málið í
gær. Hamas hefur 74 af 132 sætum á
þingi Palestínu og beinist viðleitni
hreyfingarinnar einkum að því að
hefta framgang yfirlýsingarinnar á
þingi. Ljóst er að yrði slík yfirlýsing
samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu
myndi það enn veikja stöðu stjórnar
Hamas sem sætir einangrun á al-
þjóðavettvangi sökum afstöðunnar
til fsraelsríkis.
SjödrepniráGaza
Hamas-hreyfingin lýsti yfir því á
föstudag að vopnahléið væri úr gildi
fallið. Yfirlýsingin var birt eftir að
ísraelski herinn hafði drepið sjö
Palestínumenn, þar af þrjú börn, á
Gaza-svæðinu. fsraelar segja að mis-
tök hafi verið gerð og hafa harmað
dauða fólksins. Herinn hefurþó ekki
tekið á sig ábyrgð og sagt er að málið
sé í rannsókn.
Frá því þetta gerðist hafa liðsmenn
hernaðararms Hamas skotið tugum
eldflauga á ísrael. Þessara árása
hefndu ísraelar í gær þegar loftárás
var gerð á bíl sem að sögn ísraela bar
eldflaug sem í ráði var að skjóta yfir
landamærin frá Gaza-svæðinu. Pal-
estínskir læknar og vitni sögðu að sjö
manns hefðu týnt lífi í þessari árás
og ekki færri en tíu særst. Fullyrt var
að ísraelar hefðu skotið tveimur flug-
skeytum að bifreiðinni en hvorugt
þeirra hefði hæft skotmarkið.
Vorum að fá glæsilegan By-Torinn barnafátnað frá Noregi I
Sumarfatnaður Hátiðarbúningar Prinsessukjólar
'MnuS
Janusbúðin
Opð: mán-fös kl 10-18
laugard. K1 10-14
Janusbúðin - við erum komin í sumarskapiö • Barnónsstíg 3, 101 Reykjavík • Síini: 552-7499