blaðið - 14.06.2006, Side 8

blaðið - 14.06.2006, Side 8
8IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöið t • j-'~yt www.bilamarkadurinn.is Smiðjuvegur 46-e s: 567-1800 ©MILdiœi NÝR HÚSBÍLL FORDTRANSIT125T 350NÝRHÚSBÍLLTD Svefnaðst. Fyrir 6, Vel Búinn Húsbflll! PEUGEOT 2061400 XTSJÁLFSK. 09/99 Ek.80 þ.k V.690,- Lán 240,- VOLVO S 70 2,5 20V sjálfsk. 03/97 ek.117 Toppbfll. FIAT DUCATO CLIPPER 20 HÚSBÍLL 03 ek 22þ.kmV 3450,-Lán 2500,- HYUNDAISANTA FE 4WD SJÁLFSK. 05/01 ek.88 þ.kmV.1690,- FORD F2S0 HARLEY DAVIDSON. Árg.04 Ek.13þ.m Sklpti Ó/D VOLVO CROSS COUNRTY 4x4 4/02 ek.94 þ.k UMBOÐSBÍLL EINNMEÐÖLLU VOLVOV90 SJÁLFSK. 05/98 Ek.175þkm LINCOLN NAVIGATOR LTD Árg.99 Ek.120 þ.m. Góður Bíll NISSAN PATROL SE+ 35"03/99 Ek.197þk V.1950 Lán 1190,- A/lótorhjólakappar ATHUGIÐ Bitt og skraðu það og láttu t nynd. Einnig verðum við m I sérsvæðlsalfyrirallaö lOhjól. i erum með semannastsöluá n. Mótorhjólin verða ■ i nprimj 0g í blóðum. | Óvissuástand á helstu fjármálamörkuðum Fjárfestar óttast enn frekari vaxtahækkanir sökum verðbólguþrýstings. Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn segir ástand alþjóðahagkerfisins gott þrátt fyrir að blikur séu á lofti. Verðlækkanir héldu áfram á helstu hlutabréfamörkuðum heims í gær. Fjárfestar losuðu sig við hlutabréf á mörkuðum vegna ótta um að verð- bólguþrýstingur í Bandaríkjunum og Bretlandi verði til þess að seðla- bankar þessara landa grípi til frekari vaxtahækkana. Einnig er búist við að Seðlabanki Evrópu haldi áfram að hækka vexti á evrusvæðinu. Fjár- festar óttast meðal annars að frekari vaxtahækkanir í stærstu hagkerf- unum verði til þess að draga úr hag- vexti annars staðar í heiminum. Ástandið á fjármálamörkuðum hefur að undanförnu einkennst af áhættufælni og óvissu um framtíðar- horfur meðal fjárfesta. Fleimsmark- aðsverð á olíu hefur verið í sögulegu hámarki undanfarið og það hefur meðal annars leitt til verðbólguþrýst- ings í hagkerfum flestra ríkjum. Sá þrýstingur hefur gert að verkum áð fjármagnskostnaður í helstu hag- kerfum heims fer hækkandi með neikvæðum afleiðingum fyrir verð hlutabréfa. En vaxtahækkanir hafa í för með sér að fjárfestar kjósa frekar að festa fé sitt í skuldabréfum frekar en hlutabréfum. Óttast er að mælingar á verð- þróun á næstunni í löndum eins og Bandaríkjunum muni staðfesta þessa þróun og eru hlutabréfamark- aðir nú þegar teknir að bregðast við þeim væntingum að bandaríski seðlabankinn muni hækka vexti í lok þessa mánaðar. Fjárfest í dollurum Óvissuástandið á fjármálamörk- uðum kemur ekki síst niður á hag- kerfum sem fjárfestar skilgreina sem „ný hagkerfi” (e. emerging markets). Bera tók á flótta fjárfesta frá þessum mörkuðum síðdegis á mánudag en þá tóku hlutabréf og gjaldmiðlar ríkja í Rómönsku- Ameríku að falla. Síðan þá hefur svipaðra áhrifa gætt í hagkerfum Suðaustur-Asíu og í Austur-Evrópu. Það að dollarinn heldur áfram að styrkja sig eftir langt veikingartíma- bil bendir til þess að fjárfestar telji óvissutíma og vilji festa fé sitt á tryggasta markaðnum í alþjóðahag- kerfinu - Bandaríkjunum. En þrátt fyrir að bandaríska hag- kerfið hafi verið að rétta úr kútnum standa stjórnvöld í Washington frammi fyrir miklum vanda. Vegna hins gríðarlega mikla halla á við- skiptum við önnur ríki auk fjárlaga- hallans þurfa Bandaríkjamenn að reiða sig á erlenda fjárfesta til þess að fjármagna neyslu innanlands. Þetta ástand kallar meðal annars á að gengi dollarans þarf að lækka verulega gegn gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda Bandaríkjanna. Auk þess telja sérfræðingar mjög mikil- vægt að Kínverjar leyfi gengi yuans- ins að falla verulega gagnvart doll- ara til þess að draga úr óhagstæðum viðskiptahalla í Bandaríkjunum. Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum skapar gríðarlegt misræmi í alþjóða- viðskiptum og óttast er að jafnvægi náist ekki í framtíðinni án þess að því fylgi gengishrun mikilvægra gjaldmiðla og alvarlegur samdráttur víðsvegar um heim. Erfiðir valkostir Helstu seðlabankar heimsins standa nú frammi fyrir erfiðum valkostum. Verðbólguþrýstingurinn kallar á vaxtahækkanir seðlabanka en á sama tíma er hugsanlegt að gangi þeir of hraustlega til verks muni það draga verulega úr hagvexti í heiminum. Sumir sérfræðingar á fjármálamörkuðum telja að hefð- bundnar vaxtahækkanir hafi lítil áhrif á verðbólgu þar sem olíuverðs- hækkanir séu komnar til af öðrum þáttum en lögmálum framboðs og eftirspurnar. Þeir benda á að hið háa olíuverð sé ekki tilkomið vegna mik- illar eftirspurnar sem myndi hjaðna við minnkandi hagvöxt. Óvissan um framþróun deilunnar um kjarn- orkuáætlun klerkjastjórnarinnar í Teheran, ótryggt ástand i Nígeríu, uppreisnarástandið í írak og upp- risa pópúlískra stjórnmálaafla í Rómönsku- Ameriku gera fyrst og fremst að verkum að olíuverðið er hátt. Fá teikn eru á lofti um að það muni breytast á næstu misserum. Sérfræðingar telja því að vandi helstu seðlabanka heims sé mun flóknari en ella. Alþjóðahagkerfið vex þrátt fyrir blikur á lofti En þrátt fyrir ýmsar blikur á lofti og hræringar á fjármálamörkuðum undanfarið eru margir þeirrar hyggju að horfurnar séu ekki dökkar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að hagvöxtur í heiminum í ár verði um 5% og litlu minni á næsta ári. Samkvæmt sjóðnum er þetta .heilbrigður” vöxtur. Á fundi með blaðamönnum í Canberra í Ástralíu í gær sagði aðalstjórnandi Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, Rodrigo de Rato, að fjármálamarkaðir hafi verið að leiðrétta óraunhæfar væntingar und- anfarinna ára. De Rato bætti við að vöxturinn í hagkerfum væri nógu stöðugur til þess að standa af sér óvissástandið. Leyfi fyrir allt að 50 hrefnum Gefin verða út leyfi fyrir því að veiddar verði allt að fimmtíu hrefnur í vísindaskyni á þessu ári. Með því verður alls lokið við veiðar á 150 hrefnum af þeim 200 sem hvalarannsóknaráætlun Hafra nnsóknastofnunarinnar gerði ráð fyrir. Sú áætlun var lögð fyrir Alþjóðahvalveiðiráðið árið 2003. Hún gerir ráð fyrir veiðar á tvö hundruð hrefnum, tvö hundruð langreyðum og eitt hundrað sandreyðum á rannsóknatímabilinu. Veiðunum er stjórnað af Hafrannsóknastofnun. Framkvæmd hrefnuhluta áætunarinnar hófst sumarið 2003, en ekki hefur enn verið ákveðið að hefja framkvæmd langreyðar- eða sandreyðarhlutans. Einnig var ákveðið að taka færri dýr en upphaflega var gert ráð fyrir. Unnur Birna á ferð og flugi Unnur Birna Vilhjálmsdóttir fer víð um þessar mundir enda er fegursta kona heims eftirsótt. Hún var á meðal stuðningsmanna brasil- íska landsliðsins í knattspyrnu í Berlín í gær. Brasilía lék sinn fyrsta leik á HM í gær en þá öttu heimsmeistararnir kappi við Króata.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.