blaðið - 14.06.2006, Síða 16
16 I MATUR
Blaöiö/Frikki
Oít var þörí en nú er nauðsyn
Eyðum ekki óþarflega miklu í mat
Greiningardeild KB banka segir
að meginskýringin á mikilli
hækkun vísitölunnar í júnímán-
uði sé hækkun matvælaverðs, sem
hækkaði um 3,7% í mánuðinum.
Verð á grænmeti hefur hækkað
um 6,6%, 10,6% á ávöxtum og
mjólkurvörur hafa hækkað um
6,6% í júní. Síðastliðna 12 mánuði
hefur matvælaverð hækkað um
12% og það er ekki lítið. Bent
hefur verið á að þessi hækkun
matvæla viðhaldi verðbólgunni.
En hvað geta neytendur gert til að
stemma stigu við þessu?
Hvaða brögðum getum við beytt
til að koma í veg fyrir að útgjöld
heimilisins fari alveg úr böndunum
þegar það kemur að því að kaupa í
matinn? Sérfræðingar Blaðsins hafa
tekið saman nokkur sparnaðarráð
sem geta hjálpað til við að halda
niðri verðbólgunni á sama tíma og
pressa er sett á smásala að halda
verðinu skikkanlegu.
Viltu skera þetta fyrir mig?
Það er margt sem meðvitaðir neyt-
endur geta tekið til bragðs. Oft var
þörf en nú er nauðsyn. Verslunareig-
endur bjóða ýmsan varning á upp-
sprengdu verði sem engin þörf er á
að kaupa fyrir háar upphæðir. Til
að mynda eru niðurskornir ávextir
seldir dýrum dómum í flestum versl-
unum. Væri ekki þjóðráð að kaupa
sér heldur heila melónu og biðja svo
afgreiðslufólkið að skera hana niður
og deila melónunni með vinum?
Ávextir missa næringargildi sitt
því lengur sem þeir eru látnir standa.
niðurskornir og þar með missir neyt-
andinn af þeim gæðum sem varan
ætti að bjóða uppá. Það sama má
segja um grænmeti.
Salatið
Einn bakki af litlum, íslenskum
sérrý tómötum kostar tæplegar
fjögurhundruð krónur á meðan lít-
ill bakki af úrvali úr salatborðinu
kostar 369 krónur.
Því er það þjóðráð að sækja sér
fetaostinn, sérrý tómatana, hne-
turnar og mozarellakúlurnar i sal-
atborðið, kaupa svo poka af góðu
káli og gera þannig flott sumarsalat
í stað þess að kaupa t.d. einungis
tómatana á tæpar fjögurhundruð
krónur og allar hinar vörurnar (sem
endast ekki lengi) fyrir aldeilis upp-
sprengt verð!
Með þessu móti má fá gott salat
fyrir fjóra til sex á um það bil átta
hundruð krónur og eiga enga af-
ganga í stað þess að horfa upp á
ósköpin öll af grænmeti skemmast
í ískápnum og borga kannski fyrir
það tæplega tvöþúsund krónur.
Sparað í hádeginu
Og talandi um afganga. Ef eitthvað
verður eftir af kvöldmatnum má
iðulega gera góðar samlokur úr kjöt-
metinu og bæta við smávegis osti
eða taka restina með í litlu plastíláti
í vinnuna næsta dag, hita það í ör-
bylgjunni og borða svo með bestu
lyst.
í dag tíðkast það víða að fólk
skreppi á veitingastaði í hádeginu
til að fá sér hádegismat sem kostar,
með kaffi, yfirleitt um 1500 krónur.
Einnig er algengt að fólk kaupi sam-
lokur á um þrjú til fimmhundruð
krónur í verslunum. Ef nokkrir
vinnufélagar sameinast um að kaupa
brauð og álegg má leggja sömu upp-
hæð út en niðurstaðan verður sú að
hver og einn er kannski að greiða
um hundrað krónur fyrir góðan há-
degisverð. Kaffið er svo jafn gott í
vinnunni og á kaffihúsinu og ef vel
viðrar er miklu skemmtilegra að
sitja úti á palli eða stétt í hádeginu
og fá örlitla sól í andlitið og ferkst
loft í lungun.
margret@bladid.net
GRILLAÐ MEÐ
HEREFORD
GUÐNIÁ HEREFORD
Grillaður lax með
sítrónu-koriander olíu
720 gr laxaflök
2 bollar sítrónu olía
1 búnt fersk koriander
1 skræld sítróna steinhreinsuð og skorin
f litla bita
Pillið koriander blöðin af stilkunum og
saxið og blandið ásamt sítrónubitunum út í
sítrónuolíunaffæst í heilsuhúsinu).
Skerið laxaflakið í 4 jafna bita og þerrið
kryddið með salt og pipar pensli með
ólifuolíu og grillið í c.a. eina minútu á hvorri
hlið á mesta hita. Færið síðan á efri grindina í
c.a. 2-3 minútur. Borið fram með sítrónu-
korianderolíunni, bakaðri kartöflu og
steiktri grænmetisblöndu að eigin vali v
Blaðtö/Frikki
5
i
Heimurinn
Það er Ijóst að mannanna börn búa við
misjafnar aðstæður í þessu lífi.
A þessum fréttamyndum frá Reuters má
sjá ávaxtasala sofa undir borðinu sínu á
lestarstöð í Mumbai sem áður nefndist
Bombay á Indlandi og fátækar konur taka
á móti matargjöfum bandaríkjamanna í
Jakarta á Indónesiu, en f þeirri milljóna-
borg búa margir við bágar aðstæður.
Er þér heitt?
Skrifstofu-
og tolvukœlar
[íshúsið ehf S: 566 6000
Æmmmk Æmam