blaðið - 14.06.2006, Síða 20
28 I FJÖLSKYLDAN
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöið
a
, ':j % 3 <\ . , JL_' Böri 1
Herdís L. Storgaard Forstöðumaður Sjóvá Forvarnahúsið
Barnagœlan í sumar
Á þessum tíma árs má sjá auglýs-
ingar víðsvegar um land frá ungum
stúlkum sem bjóða fram þjónustu
sína að gæta barna. Sumar þessara
stúlkna eru mjög ungar, allt niður í
ío ára gamlar.
Barn undir 12 ára aldri hefur ekki
þroska til að forðast slys vegna þess
að líkaminn er ekki nægilega þrosk-
aður og andlegur þroski er þannig
að við getum ekki gengið frá því
vísu að barnið bregðist rétt við.
Börn gæta barna
Samkvæmt vinnuverndarlöggjöf
barna þá flokkast barnagæsla undir
starf sem börnum undir 15 ára er
ekki heimilt að stunda. Á íslandi er
löng hefð fyrir því að börn séu að
gæta barna en sem betur fer er þessi
hugsunarháttur að breytast. Það
er mikil ábyrgð að gæta barna og
það er óforsvaranlegt að leggja jafn
mikla ábyrgð á ungar herðar. Það er
mikilvægt að foreldrar íhugi hvað
geti komið fyrir ef það til dæmis
stendur í barninu. Getur barnapían
losað aðskotahlutinn og hringt á
sjúkrabíl? Ef barn dettur getur barn-
apían greint hvort barnið er með ein-
kenni höfuðhöggs og brugðist við
því? Þessar spurningar þarf foreldri
að spyrja sjálft sig áður en tekin er
ákvörðum að ráða barnapíu sem er
undir lögaldri.
Atriði sem þarf að fara
yfir með barnapíunni.
1. Kann hún/hann skyndihjálp
2. Kann hún/hann neyðarnúm-
erið 112 og hvað á að segja þegar
hringt er á sjúkrabíl
3. Ef barnapía er að gæta barns-
ins heima fyrir veit hún/hann
hvernig bregðast á við ef það
kemur upp eldur
4. Ef barnið verður fyrir slysi eða
140m2 verslun full af vönduðum fötum beint frá
Danmörku.
Stelpu gallabuxur
Str.2-12 ára
Margargerðir
900 kr. Stk.
Jogging gallar
900 kr. Stk.
Dömu pils
Margargerðir
Frá 1295 kr.
Stráka gallabuxur
Str.2-14 ára
Margar gerðir
1200 kr. Stk.
Kjólar
úlpur 2995 kr. Stk.
Margir litir
1000 kr. Stk. .....
Bolir
Str.4-12 ára
Margir litir
795 kr.Stk.
Gallapils
750 kr.Stk.
Barnafötfrá Pippi
og Claire
Verðfrá
100 kr.Stk.
G-strengir
Ein staerð
1 stk. 200 kr.
2 stk 1000 kr.
Dömu peysur
Frá 1295 kr.
Núna
Allt að 75% á útvöldum vörum
ICETREND OUTLET Síðumúla 34
OPIÐ:Virka daga 11-18 laugardaga 11-16
verður veikt getur hún/hann
metið hvernig á að bregðast við
5. Hvað má hún/hann gera með
barninu og hvert má hún/hann
fara.
6. Mikilvægt að hún/hann hafi öll
símanúmer foreldra og til vara
númer hjá nánum ættingja.
Hér hafa einungis verið talin upp
nokkur atriði en foreldrar þurfa að
gera lista yfir atriði sem þeir telja
nauðsynlegt að hafa á hreinu þegar
gengið er frá samkomulagi við
barnapíuna.
Herdís L. Storgaard
forstöðumaður
Sjóvá Forvarnahúsið
herdis.storgaard@sjova.is
Snuð bjarga
lifum barna
í nýjum leiðbeiningum sem
landlæknir hefur sent frá sér um
aðgerðir til varnar skyndidauða
ungbarna, er mælt með að ung-
börn noti snuð í vöggunni. Síðast
voru slíkar leiðbeiningar gefnar
út árið 1994, en í ljósi nýrrar þekk-
ingar hafa leiðbeiningarnar verið
endurskoðaðar og sendar öllu
heilbrigðisstarfsfólki sem sjá um
ungbarnavernd.
Skyndidauði ungbarna, öðru
nafni vöggudauði, er skilgreindur
þannig að ungbarn, oftast á aldr-
inum tveggja-fjögurra mánaða,
deyr í svefni, án undanfarandi
veikinda og vönduð krufning
með viðeigandi rannsóknum
leiðir ekki í ljós dánarorsök.
Tíðni vöggudauða hér á landi
hefur verið með því lægsta sem
þekkist í nálægum löndum.
Meginbreytingin frá leiðbein-
ingunum árið 1994 er sú að í ljósi
ofannefndra rannsókna er nú
mælt með notkun snuðs á svefn-
tíma ungbarna, þó ekki fyrr en
brjóstagjöf er komin vel á veg
enda er brjóstagjöfin einnig talin
vera mikilvæg vörn gegn vöggu-
dauða. Aðrar breytingar eru að
aukin áhersla er nú lögð á að ung-
börn sofi á bakinu. Ef það reynist
af einhverjum ástæðum erfitt er
mælt með að því að þess Sé gætt
að börnin geti ekki oltið á grúfu.
Að öðru leyti er foreldrum ráð-
lagt að ekki sé reykt á heimilum
ungbarna eða þar sem þau dvelja,
að ungbörn sofi jafnan í eigin
rúmi og séu höfð á brjósti ef þess
er nokkur kostur. Þá skal forðast
að nota kodda undir höfuð ung-
barna og að ofdúða þau.
Að hjóla
ergóð
skemmtun
Á hlýjum sumardögum er fátt
skemmtilegra en að storma með
alla fjölskylduna út í hjólatúr um
borgina. Iðjan sú er ákaflega um-
hverfisvæn, felur í sér hreyfingu
sem er holl fyrir okkur öll og hjól
eru einnig prýðileg samgöngu-
tæki. Á tímum okurverðs á bens-
íni er kærkomið að geta komið sér
á milli staða með líkamsorkunni
einni saman.
Hjólreiðar eru fremur ódýrt
sport en flestir ættu að geta fengið
hjól við sitt hæfi, notað eða nýtt, á
viðráðanlegu verði. Vitanlegaþarf
að huga vel að helstu öryggisat-
riðum áður en haldið er af stað, t.d.
eiga öll höfuð að vera vel varin af
viðurkenndum hjálmum og gott
er að skella hnéhlífum á börnin.
Ungir sem aldnir geta notið úti-
veru saman, fengið holla hreyf-
ingu og rjóðar kinnar. Er hægt að
biðja um mikið meira?