blaðið - 14.06.2006, Page 22
Túnis - Sádí-Arabía
KI.16
Leikstaður:
Allianz-leikvangurinn í Munchen.
Veðbankarnir:
Sigur Túnis á HM: 500/1
Sigur Sádí-Arabíu á HM: 750/x
Heimslisti FIFA:
Túnis: 21
Sádí-Arabía: 34
Þýskaland - Pólland
KI.19
Leikstaður:
Westfalen-leikangurinn í
Dortmund.
Veðbankarnir:
Sigur Þýskalands á HM: 15/2
Sigur Póllands á HM: 400/1
Heimslisti FIFA:
Þýskaland: 19
Pólland: 29
Spánn - Úkraína
mmmmm mmmmm
H-riðill
mmmmmM U *
KI.13
Leikstaður:
Zentralstadion í Leipzig.
Veðbankarnir:
Sigur Sj)ánar á HM: 14/1
Sigur Ukraínu á HM: 66/1
Heimslisti FIFA:
Spánn: 5
Ukraína: 45
Tímaspursmál hvenær
Eiður skrifar undir
Spænskir fjölmiðlar sögðu frá því í
gær að aðeins væri tímaspursmál
hvenær Eiður Smári Gudjohnsen
gengur til liðs við Barcelona. Fjöl-
miðlar segja að íslenski landsliðsfyr-
irliðinn muni gera þriggja ára samn-
ing við spænsku meistarana sem
þurfa að greiða átta milljónir punda
fyrir kappann.
Þrátt fyrir að Jose Mourinho,
knattspyrnustjóri Chelsea, hafi
margoft lýst ánægju sinni með Eið,
hann kallaði hann á sínum tíma
,hinn ljóshærða Maradona,” varð
ljóst eftir kaupin á Michael Ballack,
frá Bayern Munchen, og Andriy
Shevchenko, frá A.C Milan, að hann
myndi ekki fá mörg tækifæri með
félaginu.
Eiður kemur til með taka sæti
sænska framherjans, Henrik Lars-
sons, hjá Barcelona. Larsson hefur
ákveðið að halda aftur til föður-
landsins og leikur með Helsingborg
á næsta keppnistímabili.
(TALSKA LEIKAÐFERÐIN? Richard Kingston markvörður Ghana litur eftir Italska sóknarmanninum Vincenzo laquinta. Meiðsli laqunita voru ekki al-
varleg enda skoraði hann annað mark Itala f leiknum undir lok leiksins. (talir sigruðu með tveim mörkum gegn engu og koma sterkir til leiks í E-riðli.
30 I ÍPRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006 blaöiö
,Manolo el del bombo" fórnaði öllu fyrir landslið sitt
Þráttfyrir að spœnska landsliðið valdi alltafvonbrigðum á stórmótumfylgir maðurinn með trommuna þeim hvert á land
sem er. Ogþráttfyrir að konan hafifariðfrá honum er hann hamingjusamurþví að Spánverjar elska hann.
Manola með trommuna á barnum sínum í Valencia. Barnum lokar hann þegar fer á
landsleiki.
Allir þeir sem hafa fylgst með fleiri
en einni heimsmeistarakeppni í sjón-
varpi vita að það er hægt að ganga
að nokkrum hlutum vísum þegar
sýndar eru nærmyndir af áhorf-
endum á leikjum. í fyrsta lagi er hægt
að ganga út frá því að sjá nærmynd
af þokkadís á áhorfendapöllunum
sem er að styðja brasilíska landsliðið,
í öðru lagi er alltaf sýnd nærmynd af
annaðhvort Pele eða Platini að horfa
á einhvern leik og í þriðja lagi er sýnd
mynd af feitlögnum stuðningsmanni
spænska landsliðsins að berja á
trommu. Fæstir vita að spænski
trommuleikarinn er ávallt hinn
sami, Manolo Caceres, og hann hefur
helgað líf sitt spænska landsliðinu og
misst fjölskylduna fyrir vikið.
Hann gengur undir nafninu „Man-
olo el del bombo” eða Manolo með
stóru trommuna. Manolo hefur mætt
nánast á alla leiki spænska landsliðs-
ins frá því 1978 með trommuna sína
og farið fyrir stuðningsmönnum
með bumbuslætti. Þegar heimsmeist-
arakeppnin var haldin á Spáni, 1982,
ferðaðist hann á puttanum um allt
land til þess að komast á leiki lands-
liðsins. Hann ferðaðist samanlagt um
15.800 kílómetra. Hvert sem hann fór
var honum tekið fagnandi og ókunn-
ugir hýstu hann og gáfu honum að
eta og drekka.
Vegna þessa gríðarlega áhuga er
hann elskaður af Spánverjum. En
frægðin hefur verið dýrkeypt. Man-
olo hefur nánast misst allt. í dag er
hann 57 ára og hefur lítið annað að
lifa fyrir en fótboltann og bumbu-
sláttinn. Kona hans yfirgaf hann
með börnin árið 1987 á meðan Man-
olo barði bumbuna á landsleik í Aust-
urríki. Hann kom að tómu heimili
þegar hann snéri aftur. Auk þess
hefur hann eytt óheyrilegum pen-
ingum í það að elta landsliðið um öll
heimsins horn.
Manolo á lítinn bar sem er við
hliðina á leikvangi knattspyrnuliðs-
ins Valencia en sökum þess að hann
lokar alltaf barnum þegar hann er
á ferðalögum er reksturinn engin
gróðralind. En þrátt fyrir fórnirnar
er Manolo ánægður með hlutskipti
sitt í lífinu. Hann segist að þrátt fyrir
fjölskyldumissinn hafi hann eignast
ást heillar þjóðar. Heimspeki hans
er einföld: hamingjan felst í góðri
heilsu og gera það sem manni þykir
skemmtilegt. Hann segist hafa þessa
tvo hluti i lífi sínu en njóti einnig
þess þriðja: hann hjálpar fólki við að
skemmta sér á knattspyrnuleikjum.
Manolo hefur farið gegnum tíu
trommur á ferli sínum sem erkistuðn-
ingsmaður spænska landsliðsins.
Hann týndi einni þegar hann var í
Kostaríka og gaf aðra í Venesúela.
Fyrir nokkrum árum hrifsuðu bos-
nískir pörubiltar af honum fyrir leik-
inn. Hann gerði dauðaleit að tromm-
unni en fann hana loks í ruslatunnu
fyrir utan leikvanginn rétt áður en
flautað var til leiks.
Manolo er með sjö heimsmeistara-
keppnir undirbeltinu. Hann ætlar að
setjast í helgan stein eftir þá tólftu en
þá verður hann orðinn 77 ára gamall,
það er að segja takist Spánverjum
alltaf að komast í lokakeppnina.
Það væri í anda kaldhæðni örlag-
anna ef spænska landsliðið færi loks
að leika eftir getu þegar Manolo el del
bombo hverfur af sjónarsviðinu.
Svipmyndir úr lífí„Manolo el del bombo"