blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 4
4IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 biaöió
Blaðið/SteinarHugi
Ljóðskáld ætlar að
synda yfir Ermarsundið
mun ekki notast við blautbúninga
eða annarskonar útbúnað.
í för með Benedikt verður kvik-
myndalið sem mun festa förina á
filmu og gera í kjölfarið heimildar-
mynd um sjósund á íslandi. Bene-
dikt sem er skáld segir að hann
muni einnig skrifa bók um reynslu
sína.
Benedikt hefur verið ötull í bók-
menntalífi Islands en hann hefur
gefið út fjölda bóka ásamt því
að standa fyrir vikulegum ljóða-
kvöldum þar sem hin ýmsu skáld
troða upp.
Aðspurður hvort hann sé eina
skáldið sem dýfir sér í sjóinn segir
hann nokkur vera í sjósundfélagi
Islands og þar á meðal rithöfundur-
inn Stefán Máni.
Benedikt segist vera í hörkuformi
til þess að takast á við þetta krefjandi
verkefni en bendir á að reynslan vegi
hvað þyngst í sjósundinu.
„Þetta er Mount Everest sjógarps-
ins,“ segir Benedikt aðspurður hvort
það sé ekki gríðarlega erfitt að
synda yfir Ermarsundið sem hann
áætlar að taki um sólarhring.
Benedikt segist ekki vera orðinn
afhuga venjulegum sundlaugum
eftir sjósundið heldur fari þvert á
móti mikill hluti æfinganna fyrir
Ermarsundið fram í sundlaugum
Reykjavíkur.
valur@bladid.net
Eftir Val Grettisson
Ljóðskáldið og sjósundkappinn
Benedikt S. Lafleur ætlar sér að
synda yfir Ermarsundið í ágúst til
þess að mótmæla mansali. Áður
en hann leggur í þá svaðilför mun
hann synda Reykjavíkursund en þá
mun hann synda í kringum Reykja-
vík í lok júlí ef veður leyfir. Hann
segir að Reykjavíkursundið sé um
20 kílómetrar og mun það taka
hann um 12 klukkutíma. Björgun-
arsveitin Ársæll mun fylgja honum
þegar hann syndir í Reykjavík en
breskt félag mun fylgja honum yfir
Ermarsundið.
„Ég mun synda algjörlega
ósmurður," segir Benedikt en hann
Falleg - sterk - náttúruleg
Suöurlandsbraut 10
Sími 533 5800
www.simnet.is/strond
VSTRÖÍTO
Sumarsteikin
fullkomnuð!
Oriental BBQ-marinerin? meiitara flryentínu komin í venlanir
Oriental BBQ-marinering meistara Argentínu steikhúss
hefur notið gríðarlegrar hylli gesta staðarins I 16 ár.
Nú er þessi úviðjafnanlegi kryddlögur fáanlegur I verslunum
svo að eldklárir grillmeistarar heimilanna geta nýtt sér hann
til aukinna vinsælda í sumar.
Gatnamótin við Kringluna
eru enn þau hættulegustu
Slösuðum hefur fjölgað eftir að breytingar voru gerðar á gatnamótum
Kringlumýrar og Miklubrautar. Tjónum hefur hins vegar fækkað.
Þrátt fyrir þær breytingar sem
gerðar hafa verið á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar teljast þau enn vera hættu-
legustu gatnamót landsins. Dregið
hefur úr alvarlegum tjónum á
gatnamótunum en slösuðum hefur
hins vegar fjölgað. Þetta segir Einar
Guðmundsson, forvarnafulltrúi
hjá Sjóvá-Almennum. Sé ekki unnt
að draga úr umferðinni um gatna-
mótin verður að gera frekari breyt-
ingar á þeim.
Fleiri yfir á rauðu og afta-
nákeyrslum fjölgar
Einar segir að þær breytingar sem
gerðar hafi verið hafi fyrst og fremst
miðað að því að draga úr vinstri-
beygjutjónum. „Það hefur skilað ár-
angri,“ segir Einar og eru það gleði-
fréttir að hans sögn. „Reyndar hafa
þau óhöpp verið mjög sjaldgæf í
gegnum tíðina. En þau sem hafa átt
sér stað hafa verið alvarleg.“ Einar
segir að ekki hafi dregið úr öðrum
óhöppum, af völdum aftanákeyrsla
og því að ekið sé yfir á rauðu ljósi.
„Ef eitthvað er þá hafa þau aukist.
Reyndar er lítið að marka svona
tölur vegna þess hve stutt er síðan
breytingarnar gengu í garð,“ segir
Einar en framkvæmdum við breyt-
ingarnar lauk í lok ágúst á síðasta
ári. Hann hefur þó tekið saman
tölur um tjón á gatnamótunum
frá lokum ágúst og fram í apríl. „Á
því tímabili er aukning á fjölda
slasaðra þrátt fyrir að tjónum hafi
fækkað á sama tímabili. Þá er ég að
bera saman þetta tímabil við sama
tímabil á síðustu árum. Það virðist
vera að fleiri séu að slasast í afta-
nákeyrslum." Einar segir að mögu-
lega geti þessi staðreynd stafað af
því að til þess að koma fjórða fasa
gatnamótanna fyrir, það er að segja
beygjuljósum inn á Miklubraut, hafi
þurft að stytta tímann þegar grænt
er á hverju ljósi fyrir sig. „Mér sýn-
ist að menn séu því að keyra meira
yfir á rauðu ljósi. Fólk er að reyna
að ná græna ljósinu og koma því
tiltölulega hratt að gatnamótunum
og þurfa því að hemla snöggt niður.
Það gæti verið skýringin á auknum
aftanákeyrslum.“ Einar áréttar þó
að þetta þyrfti að rannsaka betur,
en þetta sé hans tilfinning.
Fjölförnust og hættulegust
Einar segir að samkvæmt talningu
Reykjavíkurborgar sé ljóst að þessi
gatnamót séu þau fjölförnustu í
borginni. Þarna keyri um það bil
46 þúsund bílar um Miklubraut-
ina á sólarhring og litlu færri fari
Kringlumýrarbrautina eða 42-44
þúsund. „Ein svona ljósagatnamót
eru greinilega ekki að anna þessari
umferð. Þess vegna hljóta menn að
þurfa að gera eitthvað meira þarna.“
Hann segist hafa fullan skilning á
þeim sjónarmiðum sem mótmæla
byggingu stórra umferðarmann-
virkja, en þá verði menn að huga að
ástandinu. „Þegar við horfum upp
á að fimmtíu manns slasist að með-
altali árlega á þessum gatnamótum
og árekstrar séu allt að 150 þá er það
auðvitað óásættanlegt."
Að mati Einars er ljóst, að takist
ekki að draga úr umferðinni um
gatnamótin þá verði að gera þau
örugg með viðeigandi aðgerðum.
Gatnamótin eru því að hans sögn
enn þau hættulegustu á landinu
en hann bendir á að á gatnamótum
Miklubrautar og Grensásvegar
hafi tjónum fjölgað mjög mikið
og fylgi þau nú fast á hæla hinna
gatnamótanna.
Mynd/BrynjarGauti
Golf við Gróttuvita
Margir nýta sumartímann til aö fara á golfvöllinn til aö lækka forgjöfina eöa spila til gamans. Krían á þaö þó til aö trufla sveiflu kylf-
inga þegar leikið er á golfvelli Ness á Seltjarnarnesi.
Siglt til Vestmannaeyja
á hálftíma árið 2010
Fullkomnaðu grillsteikina að hœtti Argentinu steikhúss!
Á ríkisstjórnarfundi í gær kynnti
Sturla Böðvarsson, samgönguráð-
herra, tillögur sínar um samgöngur
til Vestmannaeyja, í ljósi loka-
skýrslu starfshóps sem fjallaði um
framtíðarmöguleika í samgöngum
við Vestmannaeyjar. Sturla lagði til
að að ferjulægi í Bakkafjöru verði
framtíðartenging milli Vestmanna-
eyja og lands. I fréttatilkynningu
frá samgönguráðuneytinu segir að
áætlað sé að á næsta ári fari fram
umhverfismat, hönnun og öflun
annarra leyfa vegna framkvæmdar-
innar. Miðað við þær tímaáætlanir
á að vera hægt að taka höfnina í
Bakkafjöru í notkun árið 2010.
„Að teknu tilliti til þeirrar niður-
stöðu starfshópsins að ekki sé rétt-
lætanlegt að leggja til að farið verði
í frekari rannsóknir varðandi gerð
jarðganga milli lands og Vestmanna-
eyja og þess hversu fýsilegur kostur
ferjulægi í Bakkafjöru er miðað við
þær rannsóknir sem unnar hafa
verið, var ekkert því til fyrirstöðu að
taka ákvörðun í málinu. Það verður
ánægjulegt að sigla milli lands og
Eyja á hálftíma árið 2010,” sagði
Sturla.