blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 12
12 I ÁLIT MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 blaðiö KlaAiA Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. MIKILVÆGUR AFANGI Igær gengu í gildi lög sem leiðrétta réttarstöðu samkynhneigðra hér á landi. Fagna ber því að samkynhneigðir muni framvegis njóta sama réttar að lögum og hinir gagnkynhneigðu. Með lögum þessum hefur ísland skipað sér í hóp þeirra ríkja sem gengið hafa alla leið til að bæta rétt- arstöðu homma og lesbía. Það er vel. í raun vekur furðu að svo langan tíma skyldi þurfa til að leiðrétta réttar- stöðu samkynhneigðra Islendinga. Ríkisvaldið hefur engan rétt til þess að stjórna því hvernig fólk kýs að verja lífi sínu og með hverjum svo fremi sem ákvarðanir viðkomandi valda ekki sannanlegum skaða í samfélaginu. Á ís- landi viðgengst lífsháttastjórnun sem fyrir löngu er gengin út yfir það sem hóflegt getur talist. I barnfóstrusamfélaginu er skipulega unnið að því að svipta menn ábyrgð á eigin lífi. Það sama á við um þá lífshætti sem frjálsir borgarar í landinu kjósa sér. Nú þegar gengin eru í gildi lög þess efnis að samkynhneigðir skuli í einu og öllu njóta sama réttar og gagnkynhneigðir leitar hugurinn til þess hug- rakka fólks sem hóf þessa baráttu. Gífurlegs hugrekkis og sjálfstrausts var þörf til að geta komið fram í svo íhaldsömu samfélagi sem ísland var og gengist við kynhneigð sinni. Jafnframt krafðist það mikils sálarstyrks af viðkomandi að krefjast viðurkenningar og jafnréttis í samfélagi sem engan veginn var undir slík umskipti búið. Nú hefur blessunarlega orðið mikil breyting á samfélagi íslendinga. Skoð- anakannanir hafa leitt í ljós að umburðarlyndi fer vaxandi á Islandi. Þær hafa einnig sýnt að meirihluti Islendinga tekur því fagnandi að samfélagið sé orðið fjölbreyttara og opnara en áður. I umræðu þeirri sem fram hefur farið um nauðsyn þess að leiðrétta rétt- arstöðu samkynhneigðra hefur athygli manna eðlilega beinst að kirkjunni og afstöðu þeirra sem þeirri stofnun ráða. Því er iðulega haldið fram að best fari á því að kirkjan sjálf komist að niðurstöðu varðandi kirkjuleg hjónabönd samkynhneigðra en sæti ekki þrýstingi. Sú virðist hafa orðið niðurstaða umræðunnar hér á landi. Á íslandi nýtur kirkjan hins vegar stuðnings og verndar ríkisvaldsins. Telja ýmsir af þessum sökum stofnunina „ríkiskirkju“ fremur en „þjóðkirkju". Vegna þess hversu nátengd kirkjan er ríkisvaldinu má eðlilegt telja að samfélagið hafi skoðun á afstöðu ráðamanna hennar til hjónabanda samkynhneigðra. Ætla má að umræða um kirkju og samkyn- hneigð fari vaxandi nú þegar nýju lögin eru í gildi gengin. Mikilvægum áfanga á sviði mannréttinda hefur verið náð á Islandi. Ásgeir Sverrisson Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: íslandspóstur • 25%affólksb(ladekkjum low profile. '• 15% afsl.af vinnu i V við smur. L »« 1000 kr. bætiefni V»fylgir frítt með smuri, Ath.þvottatilboð. Smurþjónusta Peruskipli Rafgpymar* • pjOFUU. £R ver ta h BÍJN EÍN SpTvíNÍliMÍia Tmrt VFíR^^t'TÚ^UL-eGrí iP^DöMSGff^f GnEtNiG/fRPFi LM Éa/VKaM/A... úúúú...tyviK4Wili(vn>) Mumi LfcKKA LÁAIsUlutíAlL IBU-&ALAVA, VÍVUP. TyR.ifLl5% OG, í KjoL-fflfUhP M(/?v feo-p^Vfrl-p a Hcífu^^orCarSv'æpíNí/ I Sta-P JA^NVeL L/tKKA... Illdeilur og skítkast fyrir allra augum Það er ekki ofsögum sagt að tilkoma internetsins og rafrænna boðskipta hafi haft umtalsverð áhrif á hvernig fólk hefur samskipti sín á milli. Þá er ég ekki aðeins að tala um tölvupóst, msn og netsíma sem eru allt ágætar uppfinningar heldur einnig spjallvef- ina og bloggsíðurnar. Þegar ágætur kunningi minn bjó í útlöndum hélt hann um tíma úti vef- siðu til að vinir og vandamenn gætu fylgst með því sem hann hefði fyrir stafni. Síðan átti þv( öðrum þræði að vera eins konar fréttaveita sem myndi spara honum ómakið að skrifa hefð- bundinn tölvupóst. Einnig hafði sitt að segja að fáeinir vinir hans og kunn- ingjar héldu úti svipuðum síðum og hann þekkti því ágætlega til þessa samfélags. Samskipti við ókunnuga Ekki hafði síðan verið lengi í loft- inu þegar kunninginn var búinn að komast í kynni við fjöldann allan af fólki sem hann kunni engin deili á fyrir. Hann var jafnvel 1 meiri dag- legum samskiptum við þetta fólk en marga sem stóðu honum nær. Gegnum bloggsíður átti hann í reglu- legum samskiptum við fólk úti í bæ, fylgdist með daglegu Hfi þess og átti við það orðastað jafnt í gamni sem alvöru. I fæstum tilfellum vissi hann hvernig þetta fólk sem hann „um- gekkst“ svo mikið leit út. Stundum vissi hann ekki einu sinni hvað það hét í raun og veru. Spjallsvæði á internetinu eru ekki síður forvitnilegur afkimi netheima. Þau gera fólki sem á sameiginleg áhugamál eða hugðarefni kleift að skiptast á skoðunum og efla kynni sín á milli. Gildir einu hvort áhugamálið er ljósmyndun, frímerkjasöfnun, verndun hálendisins eða eitthvað allt annað. Með nýju tækninni er unnt að skiptast á skoðunum á fljótari og auð- veldari hátt en áður og hún sameinar jafnframt fólk sem á sitthvað sameig- inlegt en hefði að öðrum kosti hugsan- lega ekki kynnst. Einar Kárason Bylur hæst í tómum tunnum Ég hef svolítið fylgst með sumum þessara spjallsvæða, ekki síst vinnu minnar vegna. Þar er misjafn sauður í mörgu fé og oft hefur mér sýnst að þeir leggi mest til málanna sem minnst hafa að segja. Það bylur hæst í tómu tunnunum í netheimum eins og í raunheimum. 3* € Það sem gerirþéssi samfélögeinnigsér- stök er að þar fara skoðanaskipti fram fyrir allra augum. Af þeim sökum eru flestir frekar varfærnir í yfirlýsingum og hugsa sig vel um áður en þeir sleppa hugsunum sínum lausum á netið. Þó eru alltaf einhverjir sem ekki gera sér grein fyrir því hvað er við hæfi að birta opinberlega og hvað ekki. Sumir reyna jafnvel allt hvað þeir geta til að koma af stað deilum og illindum og það er með hreinum ólíkindum að lesa þær svívirðingar og sleggjudóma sem fólk sem felur sig bak við dulnefni skilur eftir sig á netinu. Þrátt fyrir þá galla sem fylgja sam- skiptum á internetinu finnst mér þetta samskiptaform í sjálfu sér ekki slæmt. Það er fyrst og fremst dálítið sérstakt og kannski dæmigert fyrir þá tíma sem við lifum á. Menn standa í illdeilum og skítkasti við fólk sem þeir hafa ekki hugmynd um hvað heitir eða hvernig lítur út. Það gæti þess vegna verið nágrannar þeirra, vinir eða ættingjar. Þátttakendur í þessu samfélagi kynnast hver öðrum ágætlega upp að vissu marki. Þeir vita jafnvel ýmislegt hver um annars fjöl- skylduhagi, matarvenjur og áhugamál svo nokkuð sé nefnt. Þrátt fyrir það þekkjast þeir stundum ekki betur en svo að þeir myndu ekki bera kennsl hver á annan ef þeir mættust úti á götu eða úti í búð. Höfundur er blaðamaður Klippt & skorið Hiö ágæta flugfélag lceland Express býður farþegum sínum upp á ýmsa lesningu til sölu um borð í vélum sínum og stundar meira að segja bóksölu i há- loftunum, en það er bókin Draumalandið eftir Andra Snx Magnason sem ein íslenskra bóka nýtur þess heiðurs. ( sætisvasanum má líka finna þykkan bækling frá félaginu og þar ritar Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri lceland Express eins konar leiðara þar sem stuðningi er lýst við málflutning Andra Snæs, enda segir Birgir hagsmuni félagsins að „nátt- úra (slands haldist eins óspillt og hægt er." Það er sjálfsagt rétt athugað, en klippara finnst það samt eilítið skrýtin prédikun ( hinum vængjuðu álrörum félagsins. Islenska útrásin hefur haldið áfram þrátt fyrir blikur á himni íslensks efnahags- lífs. Umsvifamestur á þeim vettvangi er vafalaust Björgólfur Thor Björgólfsson, en hann ástundar víking sinn undir merkjum fjár- festingafélagsins Novators. Nafnið erþó engan veginn einstakt og geta menn víða um veröld fundið ýmis fyrirtæki undir því nafni, t.d. umsvifamikinn fram- mmr' U leiðanda loftvarnaflugskeyta I í Úkraínu. Fari menn á vefinn B og slái inn novator.com birtist Laa■MSÍ1 síðan ekki vefur okkar manna, heldur fyrirtækis á sviði vefviðskipta (Toronto og er lítið um það að segja út af fyrir sig, en óneitanlega vekur merki fyrirtækisins athygli. Það er nefnilega alveg sláandi svipað merki annarra íslenskra útrásarfursta, nefnllega vina okkar og velgjörðarmanna hjá Baugi. Félagi Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, skjalar orðróma á vef tfmaritsins (www.mann- lif.is) og skrifar nú af mik- illi velþóknun um fyrstu verk Gísla Marteins Baldurssonar sem for- manns Umhverfisráðs Reykjavíkurborgar, því hann hefur lagt fram tillögu um afnám banns við hundahaldi í borg- inni og ýmsar tilslakanir gagnvart hundaeig- endum aðrar. Reynir er greinilega ánægður með Villa og hans fólk í borgarstjórn, en ennþá ánægðari eru sjálfsagt þær Ylfa (2) og Lena (1), hreinræktaðar amerískar Cocker-tfkur ritstjórans. Andres@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.