blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 11
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006
MATUR I 11
Kann að
meta papaja-
ávöxtinn
Sem áhugamanneskja um heilsusam-
legt mataræði þá les ég flest sem á
vegi mínum verður um það efni. Ég
hafði íeinni
bókinni lesið
um papaja
fyrir meira
en 20 árum.
Hversuhollur
hann væri
o.s.frv. Égbjó
erlendis og
fann þennan
ávöxt í lítilli
exótískri kjallarabúð innan um
kókoshnetur og kardimommur. Ég
kunni ekkert á hann - keypti hann
grænan og óþroskaðan og fannst
lítið til koma og endaði þarna
skyndilega áhugi minn á papaja
Kynni mín af ávextinum endurnýj-
uðust fyrir alvöru ío árum síðar
þegar ég var á einu námskeiðinu
erlendis. Þá fékk ég papaja í des-
ert, vel þroskaðan, sætan og safa-
ríkan. Þessi ávöxtur lætur lítið yfir
sér, hann fellur vel inn í grænmeti-
skörfur stórmarkaðanna, það lítur
út fyrir að hann hafi alltaf verið
þarna og muni alltaf verða. 1 útliti
er hann eins & blanda af avókadó
& mangó, liturinn er gulur & út í
rautt þegar hann er fullþroskaður
en óþroskaður er hann grænn. Ég
hreifst mjög af þeim undraverðu
eiginleikum sem þessi látlausi en
næringarríki ávöxtur bjó yfir. Inni-
heldur meira a-vítamín en gulrótin
& meira c-vítamín en appelsínan!
Stútfullur af andoxunarefnum, sér-
lega e-vítamínríkur auk þess að
innihalda kalk, járn & ýmis b-vít-
amín. Svo er hann stútfullur af melt-
ingarensímum (meltingarhvötum)
sagði kennarinn fullur af lotningu.
En aðalatriðið er eftir: Þið nuddið
hýðinu innanverðu á andlitið ykkar
eða hvar sem er á kroppinn og þar
er á ferðinni eitt besta og ódýrasta
yngingar/endurnýjunarefnið fyrir
húðina, líka hægt að nota á sól-
bruna og skrámur. Ef þetta höfðar
ekki til ykkar þá hlakka ánamaðk-
arnir í safnhaugnum til að fá hýðið
því þeir eru sagðir verða stórir og
bústnir á mettíma (athugandi fyrir
veiðimenn...).
En hvar og hvernig
notum við papaja?
Hann er frábær í salöt, bæði græn-
metis-, ávaxta-, bauna- og korn-
salöt. Nokkrar sneiðar af honum á
kjötsneið gera hana meyra og fína,
skorinn niður í teninga með öðrum
ávöxtum og grænmeti er hann
frábært salsa með kjöt-, fisk og
grænmetisréttum. Einn og sér með
nokkrum klökum er hann mjög
svalandi og gómsætur morgun- og
millimálahristingur. Steinarnir úr
honum eru í miklu uppáhaldi hjá
mér, ég þurrka þá og nota út á salat.
Þeir eru á bragðið eins og blanda
af piparrót og kapers. Og verðið?
Fjórum sinnum ódýrari í dag en
fyrir 5 árum... Svo ég hvet alla til
að prófa!
Fleiri fróðleiksmola úr búri Sollu
„himnesku“ má finna á www.him-
neskt.is.
Sólveig Eiríksdóttir
GRILLAÐ MEÐ
HEREFORD
GriUuð hrefnusteik
Hvalkjöt er mjöggott á grillið.
Þegar kjöt er sett
í mjólk verður
hún til þess að
lýsisbragðið síast
inn í allan bitann
og því gerir þetta
illt verra. Hver
steik er sirka
180 grömm. Við
veltum steikinni
upp úr olíu og
muldum pipar
(t.d. svörtum
og grænum) og
grillum á háum
hita í sirka 30 sek-
úndur á hvorri
hlið og látum
steikina hvíla í
nokkrar mínútur.
Hrefnupiparsteik.
Til að byrja með skerum við þunnt
lag utan af steikinni til þess að ná lýs-
isbragðinu burt í stað þess að setja
kjötið í mjólk eins og amma gerði.
Stir fry grænmeti
Notið wok-pönnu ef hún er til í eld-
húsinu, annars þá stærstu sem völ
er á. Grófskerið gulrætur, kúrbít,
rauða papriku, blómkál og brokkólí,
Blaöiö/Frikki
eitt stykki af hverju og hálfan vönd
af kínakáli. Setjið það á heita pönn-
una. Kínakálið steikt í stutta stund
ásamt heilum chili, hálfu engifer og
6 hvítlauksgeirum sem er skorið fínt
og sett ásamt 1 'A dl. sojasósu og 'A
dl. af vatni.
Hágæða /TlG-Pð
sláttutæki
Collector 45 sláttuvél
4 hestafla
B&S mótor
55 Itr. grashlrðlkassi
Combí 45S sláttuvél meö drifi
4 hestafla
B&S mótor
55 Itr. grashirðikassi
Carden Combi sláttutraktór
12,5 hestafla, sjálfskiptur
B&S mótor
170 Itr. grashiröikassi
Estate Pro 22 sláttutraktór
22 hestafla, sjálfsklptur
B&S mótor
300 Itr. grashiröikassi
Vetrarsól ehf. Askalind 4 k'ópavogi Sinii 564 1864